Page 1 of 1
Óska eftir góðum E36

Posted:
Tue 11. Jul 2006 22:06
by prins
Já ég er að óska eftir BMW E36 bíl, samt ekki 316.. helst 318, 320, 323 og jafnvel 325. Ekki keyrður mikið meira en 180þúsund km. Vill bara 4dyra, en það skiptir ekki öllu máli hvort að hann sé beinskiptur eða sjálfskiptur. Verðið gæti verið eitthvað í kringum 600 þús kallinn.
Endilega skjótið á mig það sem þið eruð með.
E36 325I

Posted:
Thu 13. Jul 2006 12:31
by Krusifight
Ekki keyrður mikið meira en 180þúsund km
afhverju?

Posted:
Thu 13. Jul 2006 12:58
by Kristjan
Að bíll sé ekinn undir 180 þúsund er ekki endilega ávísun á lítið slit,,,, bara svo þú vitir.

Posted:
Thu 13. Jul 2006 14:00
by jonthor
Neibb, minn var að detta í 180þús og hefur aldrei verið betri


Posted:
Thu 13. Jul 2006 14:14
by ValliFudd
og minn að detta í 190 þús


Posted:
Thu 13. Jul 2006 15:02
by jonthor
ValliFudd wrote:og minn að detta í 190 þús

Gratz!

Posted:
Thu 13. Jul 2006 15:15
by prins
jáneinei en það hlýtur samt að vera meiri líkur á að bíllinn sé betur farinn ef hann er minna ekinn.. en auðvitað eru til góð eintök sem eru meira ekinn og er ég líka alveg til í að skoða það, en þetta fer bara allt eftir eintakinu held ég ekki bara km tölunni

Posted:
Thu 13. Jul 2006 15:16
by moog
Minn er í 182 þús... "and never been better"
Ekki láta aksturinn hræða þig... ég myndi frekar taka bíl ekinn 190 þús. ef það er góð þjónustubók og saga á bak við hann heldur en bíl ek. 170 þús. og engin saga...

Posted:
Thu 13. Jul 2006 15:34
by force`
hehe ég er reyndar á e32 750, en hann er ekinn 330 þús og er þéttari en flestir 750 sem ég þekki til, lygilega þéttur alveg.

Posted:
Thu 13. Jul 2006 16:36
by Eggert
Ef bíll er á annað borð ekinn meira en svona 130 þús km, þá getur ástandið verið hvernig sem er. Skoðaðu frekar bílana vel heldur en að einblína á akstur. Ekkert að því að kaupa bíl sem er ekinn 250 þús ef hann er í góðu standi.