Page 1 of 2

BMW 507

PostPosted: Fri 04. Apr 2003 14:12
by ofmo
ég veit að það er rugl að spurja að þessu en mig langar í BMW 507 til þess að gera upp....

Veit einhver um þannig grip?

Re: BMW 507

PostPosted: Fri 04. Apr 2003 19:25
by iar
ofmo wrote:ég veit að það er rugl að spurja að þessu en mig langar í BMW 507 til þess að gera upp....

Veit einhver um þannig grip?


Mmmm það væri gaman að sjá svoleiðis bíl hér á klakanum... 8) Efast samt um að það sé eintak á landinu. :?

PostPosted: Sat 05. Apr 2003 01:21
by hlynurst
Voru ekki um 252 bílar framleiddir? Það ætti að vera svolítið erfitt að ná sér í eintak. :?


Image

PostPosted: Sat 05. Apr 2003 02:56
by morgvin
Sko ég fá einn og þið fáið svo bara kannski er það ekki ?

PostPosted: Sat 05. Apr 2003 13:25
by Haffi
Kærasti systur minnar átti svipaðan bíl sem hann erfði frá afa sínum ... seldi hann þegar ég var svona 12 ára. Veit ekki hvort hann hafi verið seldur útúr landi eða það hafi verið einhver önnur týpa. Allavega gamall roadster þar á ferð :)

BMW507

PostPosted: Mon 07. Apr 2003 23:54
by Þórður Helgason
Látið ykkur dreyma.

Sko, til væri ég að taka svona bíl, hann er frábær og með

því fallegra sem sést hefur. Nýju sportbílarnir eru að taka línur frá honum.

Nokkur hundruð smíðuð, 252 stk, V8 160 DIN hö, 220 km/h,

örlítið of dýr $8.500 og seldist ekki vel í USA (markhópurinn var í USA)

Ansi sjaldgæfur.

PostPosted: Fri 11. Apr 2003 18:44
by ofmo
reyndar er rifist um hvort þeir hafi verið framleiddir 252, 253 eða 254...

En ég kem mér beint að efninu...

Ætli það sé til replica af 507?
Hvað ætli það kosti ef það er til einhversstaðar...

Það væri gaman að púsla saman svona replica og planta í einni V8 M5 vél quad turbo eða svo, það kemst allt saman auðveldlega ofan í vélarsalinn (veit ég af reynslu) 8)

PostPosted: Fri 11. Apr 2003 19:15
by morgvin
jú ætli það séu ekki til replicur. þó svo original er alltaf original.

PostPosted: Fri 11. Apr 2003 20:22
by hlynurst
ofmo: Þetta væri rosaleg kerra! Áttu pening? Væri vissulega gaman að sjá þetta.

PostPosted: Fri 11. Apr 2003 21:41
by ofmo
hlynurst wrote:ofmo: Þetta væri rosaleg kerra! Áttu pening? Væri vissulega gaman að sjá þetta.


hmm, peningur... það er ódýrara að gera upp/smíða bíl en þú heldur... Ef maður fengi replica-kit á góðu verði þá er restin barnaleikur; maður þarf bara að gefa sér svolítinn tíma...

með M5 vél þá dugar manni að finna M5 vél úr tjónabíl þar sem maður þarf hvort sem er að skipta um næstum allt í henni; setja herta stimpla, titanium ventla, tvöfalda gorma, nýjan sveifarás og margt, margt fleira....

PostPosted: Sat 12. Apr 2003 00:10
by oskard
Vá ég held að þú hafir verið rétt í þessu að láta út úr þér
mestu heimsku sem nokkur maður hefur skrifað á bmwkraft.

1. BMW M5 v8 vél... ekki ódýrt.
2. Quad turbo... hahahhahaha
3. Að preppa vélina fyrir turbo kostar ekki lítið.
4. Að gera upp bíl getur kostað slatta. Fer að sjálfsögðu eftir
því hvað þú getur gert mikið sjálfur. Þeas. rétta það sem þarf
að rétta, sjóða það sem þarf að sjóða, skera úr rið og sjóða
fyrir gatið, spasla, grunna og gera tilbúinn fyrir sprautun, sprauta
bílinn... vá ég ætla að hætta að rífa mig áður en ég missi mig algjörlega.

PostPosted: Sat 12. Apr 2003 01:02
by arnib
ofmo wrote: ... það er ódýrara að gera upp/smíða bíl en þú heldur...


ofmo wrote: ... þarf hvort sem er að skipta um næstum allt í henni ; setja herta stimpla, titanium ventla, tvöfalda gorma, nýjan sveifarás og margt, margt fleira....


Mér finnst þessi tvö quote eiginlega stangast á við hvort annað ?

Þú segir að það kosti lítið að gera upp bíl,
en síðan segiru að ekki bara þurfi að kaupa M5 vél, heldur þurfi að skipta um "nánast allt" í henni ?

Það er alltaf gaman að láta sig dreyma, en maður að passa að lenda ekki í ruglinu haldandi að M5 vélar og þrykktir stimplar séu gefins með gúrkum í hagkaup!

PostPosted: Sat 12. Apr 2003 14:42
by morgvin
Þetta er ekki eins ódýrt og maður vonast til.

PostPosted: Sat 12. Apr 2003 16:03
by Haffi
Árni tjékkaðu samt í Bónus :lol:

PostPosted: Sun 13. Apr 2003 00:51
by ofmo
ég held að ég viti hvað ég er að tala um þegar ég tala um að gera upp bíla... núna það nýjasta hjá mér er bmw 2002turbo '74 módel, hann lítur þokkalega út miðað við að það fóru um 20.000 krónur í að gera hann upp... ég er í góðum félagsskap bifvélavirkja, varahlutabirgja, bílamálara og bílasmiða...

Þessi bíll var í hönki þegar við félagarnir byrjuðum á honum, það var ryð í gegn á stöðum sem þið gætuð ekki ímyndað ykkur, það var soðið í þetta allt saman, allur bíllinn heitzinkaður og sprautaður alpinehvítur ('74 litur), reyndar er sprautuvinnan ekkert til að hrópa húrra fyrir(hafði ekki sprautuklefa). reyndar er verið að vinna í vélinni eins og er svo að í bílnum er 1602 vél.

Þess má geta að þrykktu stimplarnir sem fara í turbovélina kostuðu ekki nema 12.000, öll fjögur stykkin.

jæja, nenni ekki að þurfa að svara fyrir mig lengur... en ég held að það séu bara komin nógu mörg comment á þennan þráð... :mrgreen: