Page 1 of 1

Stefnuljósarofi með BC takka

PostPosted: Wed 23. Apr 2003 15:43
by Bjarki
Þessi rofi er fyrir fimmur og sjöur E34 og E32 með loftpúða. Passar ekki fyrir bíla án loftpúða. Ef menn eru búnir að kaupa sér Boardcomputer aksturstölvu og setja hana í bílinn þá fá þeir upplýsingarnar úr henni inn á skjáinn í mælaborðinu með þessum takka og allt verður eins og bíllinn hafi komið orginal með tölvunni.
Ég á líka til venjulegan stefnuljósarofa og rúðuþurrkurofa með bilaðan sensitive wash takka, örugglega ekki margir sem þurfa svoleiðis takka!