HK RACING wrote:
Halli Smil3y wrote:
HK RACING wrote:
98.OKT wrote:
HK RACING wrote:
Halli Smil3y wrote:
my baby

Spurning að fara betur með hann?
HK RACING
Shit happens, maður getur nú lent í tjóni án þess að fara illa með bíla

(ekki það að ég viti meðferðina á þessum bíl þegar þetta gerðist)
Bíllinn var nú á verkstæði mánuði áður en þetta gerist að fá nýjan framstuðara og annað,en ekkert diss á fyrri eiganda,það er satt slysin gerast!
HK RACING
Áhugarvert að þú getur logið svona opið... kannski að þú sért að rugla fyrrverandi bílnum mínum(UF-698) við einhvern annan, en meðan hann var í eigu minni fór hann aðeins á verkstæði til að láta skipta um
dempara að framan og það var
2005. ALDREI út af tjóni af neinni tegund. Þetta var fyrsta og eina bílslys sem ég hef lent í undir stýri. Bíllinn var í töluvert betra standi eftir nokkra mánuði í minni vörslu heldur en áður ég keypti hann. Ég hefði ekkert á móti afsökunarbeiðni á því að þú sért að ljúga svona beint upp á mig.
Var ekki settur á hann nýr framstuðari og nýjir sílsar fyrir mánuði síðan,gat ekki betur séð en það hafi verið nýmálað á honum,og er ég nokkuð viss um að ég hafi aðstoðað við að setja það á!Var ekkert að dissa þig beint eða að reyna að ljúga uppá þig,þetta er bara eitthvað sem ég held,við þurfum ekkert að fara að missa okkur yfir einhverjum smáatriðum,flott hjá þér að gera bílinn betri,en þú keyrðir hann samt á staur og það kalla ég nú ekki að gera hann betriþó óhapp hafi verið!Nenni ekki einhverju þrasi hérna,ef þú hefur eitthvað meira að segja sendu mér það bara í PM!
HK RACING
Það væri ekkert mál að tala um þetta í pm, en ekki fyrir en eftir að þú biðst afsökunar á að ljúga því að ég sé að skemma bílinn hægri vinstri. Ég skal bara endurtaka það sem ég sagði fyrr í kvöld.
Bíllinn hefur ekki komið á verkstæði síðan í fyrra vegna dempara skiptinga að framan og ég held að ég hefði nú fundið fyrir tómri buddu ef það hefði verið að gera þessar viðgerðir sem þú ert að tala um, því það kostar ekki lítið að sprauta bílinn í þessum lit. Það var aðalástæðan fyrir því að tryggingarnar vildu alls ekki gera við hann var út af rándýrum sprautunarkostnaði með viðgerðarkostnaði. Ég sé nógu helvíti mikið eftir þessum bíl nú þegar og ég verð að kyngja því að hann sé farinn en ég læt ekki ljúga því upp á mig að ég sé að klessa bílana mína nokkrum sinnum á ári. Nema þú getir sagt hvar þetta var gert og hvenar eða hvort þetta hafi nú örugglega verið sama bifreiðin, jafnvel nákvæmari upplýsingar. Þá máttu fara að biðjast afsökunar.
Því þetta er að verða frekar mikið
