Page 1 of 2

E30 320 (fyrrum 316) í parta...

PostPosted: Sat 12. Mar 2005 17:44
by Chrome
Til sölu er brak af 320 fyrrum 316, beinskiptur 2,0L vél góð, skipting fín. Vélin ku vera ekin um 150.þús og innrétting ekkert spes. hægt er að nýta hurðir rúður skott og húdd. bíllin er með brotið drif og boddýið er að deyja úr krabba. eitthvað spoilera kitt er á bílnum en hann er fastur í bremsu vinstra megin að framan...
tilboð óskast
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc02540.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc02541.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc02542.jpg[/img]

PostPosted: Sat 12. Mar 2005 18:48
by Schnitzerinn
Ussususs, hættur við projectið ? Eða er hann bara ekki worth it ?

PostPosted: Sat 12. Mar 2005 19:03
by Chrome
Schnitzerinn wrote:Ussususs, hættur við projectið ? Eða er hann bara ekki worth it ?

Bróðir minn á þetta, og það er slatti nýtilegt í þessu en boddýið er að deyja af ryði...hann ætlar bara að fá sér eitthvað minna...:)

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 00:29
by Djofullinn
Bíddu er topplúga á honum??

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 01:38
by Chrome
já en lokið er frekar ryðgað

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 02:13
by srr
Uss, ég myndi gera allt fyrir svona svalt númer 8)

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 02:16
by srr
Og hvar er þetta ryð? Sést ekkert krabbamein á myndunum :wink:

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 12:36
by Djofullinn
srr wrote:Og hvar er þetta ryð? Sést ekkert krabbamein á myndunum :wink:

Já þetta virðist nú vera frekar lítði miðað við myndirnar

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 12:39
by oskard
ég man þegar var skipt um subframeið að aftan í þessum bíl útaf því
að það var ryðgað í sundur :lol:

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 13:55
by Chrome
mótorbitin er að hverfa og eitthvað meira þarna undir einnig eru bara bretti þarna að aftan að nafninu til :?

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 14:12
by srr
Synd að missa þá R55055 númerið....mér finnst það geðveikt svalt 8)

e30

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 14:12
by adler
nefndu verðið ég hef áhuga. hvar er bíllinn

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 21:44
by Farinn
Sá þennan bíl fyrr í vetur á JR bílasölunni var ekki sett á hann eitthvað um 120 þús kall þar?

Virtist vera góður í project þar en ryðið getur leynst undir öllu! :(

Kveðja

PostPosted: Sun 13. Mar 2005 21:45
by Chrome
Björgvin wrote:Sá þennan bíl fyrr í vetur á JR bílasölunni var ekki sett á hann eitthvað um 120 þús kall þar?

Virtist vera góður í project þar en ryðið getur leynst undir öllu! :(

Kveðja

Einmitt...helv. melurinn hefur sjálfsagt keyrt í drullusvað áður en hann lagði honum þar því ekki sást mikið við lauslega skoðun :evil:

Er gripurinn seldur ?

PostPosted: Thu 17. Mar 2005 12:33
by dundarinn
Er gripurinn seldur ef ekki bíð ég 30 kall ( Vona að ég sé ekki að móðga )