Page 1 of 2

Til sölu mjög góður E-34, 520 árg. ´91 - SELDUR

PostPosted: Tue 09. Nov 2004 17:57
by THE E
Er með mjög góðan BMW 520iA til sölu.

Litur: Vínrauður
Gírar: Sjálfskiptur
Innrétting: Leður, allt í leðri, m.a. sæti og stýri.
Tjónaferill: Ótjónaður
Ekinn: 167.000 km.
Endurnýjað: Bíllinn er mjög mikið endurnýjaður. Nýjir demparar að aftan, nýjar bremsur allan hringin, efri hluti vélar nýtekinn í gegn (hedd, tímareim, vatnslás, vatnsdæla), nýjar hjólalegur að aftan. Nótur til fyrir öllu. Viðgerður fyrir 400.000.
Skoðun: Bíllinn á næst að fara í skoðun í febrúar 2005.
Dekk: Bíllinn er á nýlegum 15" nagladekkjum, sem eru á orginal BMW felgum og honum fylgja Pirelli sumardekk á 16" felgum, ættu að duga eitt sumar í viðbót.
Viðhald: Hef átt bílinn frá því í apríl 2003 og í minni tíð hafa olíuskipti og annað viðhald alltaf farið fram á réttum tíma.
Eigandaferill: Nokkrir eigendur eru að bílnum, en líklega ekki nema 3 notendur. Sami eigandi frá því hann kemur á götuna og þar til 1996.
Lakk: Eing og áður sagði er lakkið vinrautt. Nokkuð góður glans er í því ennþá og lítið ryð. Minnir að það séu tvær litlar bólur á honum.
Verð: Er ekki klassískt að segja bara tilboð. Bara að komast að sanngjörnu samkomulagi.
Myndir: Get sent myndir á e-mail.
Frekari uppl; sími 659-7878 eða eiivalberg@torg.is

PostPosted: Fri 19. Nov 2004 03:27
by Chrome
hmm...ég væri til í myndir :) chrome@simnet.is

PostPosted: Fri 19. Nov 2004 12:13
by Bimmarinn
Svo að ég spyrji eins og asni, en er ekki tímeKEÐJA í þessum bílum? :oops:

PostPosted: Fri 19. Nov 2004 13:44
by saemi
Ekki ef þetta er M20 vél. Það er keðja í M50. Ef ég man rétt þá skipti það akkurrat á árinu 1991.

PostPosted: Fri 19. Nov 2004 13:57
by Bimmarinn
OK, bara fáviska í mér :oops:

PostPosted: Sat 20. Nov 2004 01:39
by Chrome
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01103.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01107.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01108.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01116.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01118.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01119.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01120.jpg[/img]
[img]http://www.saman.is/stefan/Bílar/Myndir_stórar/Dsc01110.jpg[/img]

...býsna nettur :) hvað segirðu geturðu gefið svona sirka hvað þú vilt fá fyrir hann? :D

PostPosted: Sat 20. Nov 2004 02:36
by Bimmarinn
Hvað vilja bændur fá??

PostPosted: Sat 20. Nov 2004 07:11
by THE E
Ég verð nú að játa það að ég er ekki alveg með það á hreinu hvers virði þess bíll er. Svona miðað við það sem ég keypti hann á fyrir einu og hálfu ári og hvað ég er búinn að gera mikið fyrir hann myndi ég halda svona einhversstaðar nálægt 500 kallinum.

PostPosted: Thu 25. Nov 2004 20:44
by Jónas
Nenniru ekki að fresta sölunni um svona... 10 mánuði :wink: :roll:

Gullfallegur bíll, mig laaaangar í! :)

PostPosted: Thu 25. Nov 2004 21:20
by Kristjan
Verulega góður

PostPosted: Thu 25. Nov 2004 22:36
by Jónas
Hvað er þessi fleki að nota mikid af bensíni í venjulegum bæjarakstri?

PostPosted: Fri 26. Nov 2004 13:34
by THE E
Kannski svona 10 á langkeyrslu, 12-14 í hreinum innanbæjar

PostPosted: Wed 15. Dec 2004 19:30
by THE E
Jæja, þessi hreint fíni kaggi er ennþá til sölu, verðmiðinn er 490.000.

PostPosted: Wed 15. Dec 2004 20:41
by Almar
einhver skipti ?

PostPosted: Wed 15. Dec 2004 22:41
by THE E
Er til í að skoða skipti. Hvað ertu með?