Page 1 of 2

SELDUR BMW 535i '90 e34 BEINSKIPTUR - Eine Rakete!

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 16:45
by Bjarki
SELDUR!

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 17:24
by Twincam
djöfull er hann fallegur þessi... kitlar mínar Benz-taugar að kaupa þetta! :oops:

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 18:07
by Jón Ragnar
Bwahhh!!! Hættið að freysta mín!!!!!


Langar OF mikið í 535 aftur :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry: :cry:

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 18:15
by Tommi Camaro
fallegur bíll , en felgunar gelta á man not a bad or a good thing

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 19:50
by srr
Rólegur á að vera fljótur að selja :wink:

20.09.2004 Nýskráð - Almenn
17.09.2004 Tollafgreitt - Almenn
16.09.2004 Forskráð - Almenn

Samt lookar GEÐVEIKT VEL ÚT MAR :shock:

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 20:12
by Bjarki
Tommi Camaro wrote:fallegur bíll , en felgunar gelta á man not a bad or a good thing

Skiptar skoðanir á þessum felgum en þetta er samt alvöru dót. Náttúrlega lítið mál að skipta um felgur en alltaf erfiðara að skipta um vél.

srr wrote:Rólegur á að vera fljótur að selja :?

20.09.2004 Nýskráð - Almenn
17.09.2004 Tollafgreitt - Almenn
16.09.2004 Forskráð - Almenn

Samt lookar GEÐVEIKT VEL ÚT MAR :shock:


Undirstrikar bara hversu góður bíll þetta er, ekkert sem þarf að laga eða bæta. Ég kom með annan bíl fyrir mig sem ég ætla að eiga kem með smá info bráðlega. 8)

?

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 21:41
by humn
er hann samt ekki dáltið mikið ekin? hvað getur hann nað að vera ekinn eftir þetta?

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 21:45
by íbbi_
kílómetradýrkun íslendinga er bara ótrúleg fólk lætur eins og það sé númer 1 2 og 3 hvað kílómetramælirinn sýnir, það er bara alls ekki málið, það skiptir máli er hvernig bílnum hef verið keyrt þessa kílómetra hvernig honum hefur verið haldið við af hverjum og með hvaða varahlutum,

Re: ?

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 21:52
by Bjarki
humn wrote:er hann samt ekki dáltið mikið ekin? hvað getur hann nað að vera ekinn eftir þetta?


Það er náttúrlega bara spurning hvað mönnum finnst vera of mikill akstur! Þessi bíll er ekki skrúfaður niður það fylgja honum mikið af pappírum og það er hægt að rekja sig áfram eftir þeim, upprunalega þjónustubókin er í bílnum. Bíllinn var mikið notaður í langkeyrslu af seinasta eiganda sem átti hann í 5 ár. Þessi bíll er kannski eins og margir innfluttir notaðir bílar hér á landi nema bara ekki skrúfaður niður :shock:
Þessi bíll kom mér mjög á óvart og ég hvet menn til að koma og prófa, þessi bíll er þéttur!
Það er hægt að keyra M30 vélar lengi lengi ef þær fá rétt viðhald. Ástæðan fyrir því að ég tek það fram að olíuljósið hverfi eftir um 1sek við kalt start er sú að það er vandamál í M30 vélunum hversu lengi þær eru að ná upp þrýstingi. Ástæðan eru bakflæðisventlar á olíuna sem gefa sig. Í þessum bíl hefur sennilega bara verið gert við þetta, sem er gott.

Re: ?

PostPosted: Mon 20. Sep 2004 22:39
by Jón Ragnar
humn wrote:er hann samt ekki dáltið mikið ekin? hvað getur hann nað að vera ekinn eftir þetta?


Hef keyrt bmw með 2.8l Mótor

M30B28 ... þessi er M30B35

Sá bíll var ekinn 380.000km þegar ég testaði hann, og hann var býsna soldid...

Kmtala er aukaatriði í svona bíl!

Skuggalega skemmtilegir bílar, kraftmiklir, þæginlegir og það er dolldið gaman að sjá andlitið á V8 pappakössum þegar maður tekur þá "gömlum" bmw


Mæli eindregið með svona bíl :D

PostPosted: Tue 21. Sep 2004 23:31
by Svezel
Veistu hvort það er læst drif í honum?

Geturðu hugsað þér að selja bílinn án 16" felgnanna og ef svo er hvaða verð ertu með í huga án þeirra?

Félagi minn er að leita sér að bíl og ég er að reyna pumpa inn á hann BMW.

PostPosted: Wed 22. Sep 2004 08:08
by Bjarki
Svezel wrote:Veistu hvort það er læst drif í honum?


Ekki læst drif.

PostPosted: Wed 29. Sep 2004 20:10
by Bjarki
Sumum finnast felgurnar sem eru undir honum ekki þær fallegustu. Mér finnst þær allt í lagi en myndi þó ekki versla þær undir bíl. Spurning hvað nýjar miðjur myndu gera.
Það er ekkert mál að fá bílinn á 15" BMW álfelgum og heilsársdekkjum.
Image
Alveg eins og þessar í fullkomnu ástandi, mynstrið á dekkjunum er líka mjög gott.
Verðið er þá 490þús
Fyrir 40þús í viðbót er svo hægt að fá 16" felgurnar.
Fyrir 7þús er enn hægt að fá spilara í bílinn.

Bíllinn er í mjög góðu standi og það er ekkert sem bendir til þess að vélin sé að fara að deyja eins og sumir halda. Bíllinn er ótrúlega þéttur og skemmtilegur í akstri. 7,7sek 0-100 skv. Owners Manual. Þarna eru því á ferðinni ódýr hesthöfl sem ekki er erfitt að reka því m30 vélarnar eru þekktar fyrir einfaldleika, rekstraröryggi og góða endingu. Bíllinn er hins vegar ekki skrúfaður niður eins og sumir bílar!

PostPosted: Tue 05. Oct 2004 18:26
by Chrome
úff...þessi kitlar mann...er hann seldur?

PostPosted: Tue 05. Oct 2004 19:16
by Bjarki
Hann er ekki seldur ennþá, einhverjar pælingar í gangi en ekkert niðurneglt.