Page 1 of 2

(SELDUR) 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 21:47
by gardara
Um er að ræða E36 320iA umboðsbíl sem hefur fengið afar góða meðferð í gegnum árin, glettilega heill miðað við aldur og að hafa verið á íslandi alla tíð. Skilst að upprunalegur eigandi hafi átt bílinn í 10 ár og alltaf geymt hann í skúr.

Bíllinn er einstakur að því leitinu til að hann er með ULTRAMARIN leðurinnréttingu, sem er virkilega sjaldgæf. Einnig er hann nokkuð vel búinn af umboðsbíl að vera.

Má þar helst nefna:

  • Leðurinnrétting
  • Armpúði
  • Hiti í sætum
  • Tvívirk rafmagns topplúga
  • Rafmagn í rúðum
  • Gardína 8)
  • Rúðupiss á aðalljósum
  • Dagljósabúnaður
  • Sportstýri
  • Útihitamælir

Bíllinn er í dag ekinn 191þús km sem gerir ekki nema 8þ km keyrslu á ári.

Ástand:
Bíllinn er mjög heill og flaug athugasemdalaust í gegnum skoðun fyrir um mánuði síðan. Eina sem er í raun hægt að setja út á bílinn er að lakkið er ekki fullkomið en það er náttúrulega komið til ára sinna og það hefur verið aðeins blettað í bílinn sem mætti gera betur.

Þetta er flottur bíll til að krúsa um á en þessi bíll væri alveg eðal efniviður fyrir einhvern flottan mótor, heillegum E36 coupe fer hratt fækkandi.


Fæðingarvottorð wrote:Vehicle information

Type 320I (EUR)
Dev. series E36 (2)
Line 3
Body type COUPE
Steering LL
Door count 2
Engine M50
Cubical capacity 2.00
Power 110
Transmision HECK
Gearbox AUT
Colour GLETSCHERBLAU METALLIC (280)
Upholstery URLTRAMAIN LEDER (0395)
Prod. date 1992-05-08


Order options
No. Description
199 EQUIPMENT FOR LEADED FUEL
210 ANTI-BLOCKIER-SYSTEM ( ABS )
301 DIEBSTAHLWARNANLAGE MIT ZV
314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
354 GREEN STRIPE WINDSCREEN
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW
423 FLOOR MATS, VELOUR
428 WARNING TRIANGLE
473 ARMREST, FRONT
494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER
498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE
500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
520 FOGLIGHTS
529 MICRO FILTER
556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY
687 RADIO PREPARATION
827 SCANDINAVIA VERSION
848 ENLARGED WIRING HARNESS
860 LTRL TURN SIGNAL LIGHT FRT
899 EXPORT-FAHRZEUG
925 SHIPPING PROTECTION PACKAGE



Image
Image
Image


Ég er ekki með neitt fast verð á bílnum en er opinn fyrir alls kyns tilboðum og skiptum, þótt peningur heilli alltaf mest.

Fyrir rétt verð fæst bíllinn á 17" BBS RC felgunum sem hann er á, á myndunum.
Fyrir rétt verð er líka hægt að fá 321 hestafla M3 kram með bílnum (S50B32 + 6 gíra kassi)
Fyrir rétt verð er einnig hægt að fá bílinn með Bilstein PSS9 coilovers

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 22:08
by auðun
Þessi bill er sjúkur. En er til mynd af þessari innrettingu

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 22:14
by gardara
Hef því miður ekki tekið neina mynd af henni, en fæ að stela einni af honum Emil

Image

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 22:28
by Alpina
Hét fyrsti eigandi Guðjón ??

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 22:28
by manni25
Verð ?

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 03. Jun 2014 22:31
by gardara
Alpina wrote:Hét fyrsti eigandi Guðjón ??


Guðjón Böðvarsson sf er skráður fyrsti eigandi 10.06.1992 til 31.12.2002

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Wed 04. Jun 2014 07:41
by Alpina
1. eigandi var/er heildsali ef mig minnir rétt,, og þessi bíll var alveg fáránlega clean og smekklegur þegar hann var nýr,, man eftir þessum bíl í Bílaumboðinu

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Wed 04. Jun 2014 13:21
by Kristjan
Eru einhverjar verðhugmyndir sem þú ert tilbúinn að opinbera?

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Wed 04. Jun 2014 18:35
by Emil Örn
Get vottað það að innréttingin er enn flottari í alvörunni en á myndum.

Var flott eintak þegar ég átti hann og lítur enn betur út núna. Vonandi ratar hann í góðar hendur.

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Wed 04. Jun 2014 21:10
by íbbi_
rétt eftir áramót 2003 þegar ég var í bænum að kaupa mér bíl þá rufaði ég þennan á bílasölu eftir að hafa rekist á hann eftir að ég hafði verið búinn að staðfesta kaup á öðrum, og sá eftir honum lengi

og væri satt að segja alveg til í hann enn

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Fri 06. Jun 2014 12:04
by gardara
íbbi_ wrote:rétt eftir áramót 2003 þegar ég var í bænum að kaupa mér bíl þá rufaði ég þennan á bílasölu eftir að hafa rekist á hann eftir að ég hafði verið búinn að staðfesta kaup á öðrum, og sá eftir honum lengi

og væri satt að segja alveg til í hann enn


Já hvernig væri það, þú værir flottur á þessum :)

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Mon 16. Jun 2014 02:07
by geirigull

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Mon 16. Jun 2014 08:59
by olinn
Orðinn mjög flottur þessi! Er að fíla þessa innréttingu!

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Tue 17. Jun 2014 20:58
by kristo
Hver er verðmiðinn a þessum bara bilnum an auka dóts pg svo með coilover ?

Re: 1992 E36 320iA coupe til sölu

PostPosted: Sun 06. Jul 2014 18:23
by gardara
Thessi sparibaukur rúlladi á bíladaga og til baka á einum tanki
Image
Image