bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 <SELDUR> https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=63933 |
Page 1 of 1 |
Author: | Schulii [ Thu 07. Nov 2013 14:19 ] |
Post subject: | BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 <SELDUR> |
TIL SÖLU: BMW 520i E28 Árgerð 1987 Ekinn 136.000 km. Sjálfskiptur Ég er að auglýsa þennan bíl fyrir vinkonu mína. Hún er sjálf búin að eiga hann síðan 2002 og afi hennar og amma í mjög langan tíma þar á undan. Hún er sennilega þriðji eigandi að bílnum. Eins og sést þá er hann ekinn aðeins 136.000 kílómetra. Hann er auðvitað 26 ára gamall og það sést vissulega. Ég gæti hinsvegar trúað því að þetta sé góður efniviður fyrir eitthvað project. Það fylgir smurbók frá upphafi. Það er eitthvað að bílnum sem gerir hann ill gangfærann. Það gæti verið að það vanti bara einfaldlega sjálfskiptivökva á hann. Ég skoðaði engin forðabúr eða neitt slíkt en það er ekkert mál að fá að líta á gripinn og skoða betur. Eigandinn vill einfaldlega losna við hann eins og hann er og fæst hann á 120.000kr. eins og hann er. Þið getið haft samband við mig með einkapósti eða hringt í síma 868-0027 sem er hjá eigandanum ef þið viljið fá tækifæri til að líta á bílinn. Myndir teknar 06.11.2013: http://www.flickr.com/photos/95576356@N07/ |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 07. Nov 2013 14:41 ] |
Post subject: | Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 |
Þetta lookar merkilega vel miðað við aldur ![]() |
Author: | rockstone [ Thu 07. Nov 2013 14:45 ] |
Post subject: | Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 |
Jón Ragnar wrote: Þetta lookar merkilega vel miðað við aldur ![]() held hann verði ekki lengi að seljast þessi ![]() |
Author: | srr [ Thu 07. Nov 2013 16:34 ] |
Post subject: | Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 |
Ég verð nú að gagnrýna söluna á þessum bíl aðeins. Það er búið að bjóða eigandanum 120.000 kr. í pening strax, en þá er svarað: "Það eru svo margir búnir að hringja að ég ætla hringja í þá aftur og bjóða þeim að bjóða meira" ![]() |
Author: | Schulii [ Thu 07. Nov 2013 16:42 ] |
Post subject: | Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 |
srr wrote: Ég verð nú að gagnrýna söluna á þessum bíl aðeins. Það er búið að bjóða eigandanum 120.000 kr. í pening strax, en þá er svarað: "Það eru svo margir búnir að hringja að ég ætla hringja í þá aftur og bjóða þeim að bjóða meira" ![]() Ég er ekki viss um að þetta hafi verið orðrétt svona en hinsvegar er þetta réttmæt gagnrýni. Ég ætla að heyra í henni og tala við hana um þetta. Hún getur auðvitað hætt við söluna en ég ætla að benda henni á hvernig málum hefur verið háttað á þessari síðu og að menn geti reiknað með að bjóði þeir uppsett verð ætti salan að ganga í gegn. Kem með update á stöðu mála mjög fljótlega. |
Author: | Schulii [ Thu 07. Nov 2013 17:40 ] |
Post subject: | Re: BMW 520i E28 - Ekinn 136.000 |
Málið leyst og bíllinn líklega seldur ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |