bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Ætlaði að minna á 528i bimmann minn
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=638
Page 1 of 2

Author:  Just [ Fri 24. Jan 2003 14:11 ]
Post subject:  Ætlaði að minna á 528i bimmann minn

Ég verð víst að selja Bimmann minn vegna peningaskorts. Þetta er frv. forstjórabíll með öllu og það hefur verið hugsað um hann eins vel og hægt er frá upphafi.

Bimminn er 184 hp með 2800cc vél. Keyrður 187.000.

- sjálfskiptur
- Ljósbrún leðursæti sem sést varla á.
- rafdrifinn topplúga, rafdrifnar rúður og speglar.
- Glænýr Pioneer Mosfet geislaspilari með fínu hljóðkerfi.
- Nýlegar BMW álfelgur.
- Aksturstölva.
- Tímastillt Bensínmiðstöð.
- Sumar- og vetrardekk.
- Lakkið eins og nýtt, nýryðvarinn (allur)
o.fl.

- Fyrrum eigandi hefur látið yfir 400 þús.kr. í bílinn, til að halda honum við og láta hann virka eins og nýr BMW. T.d. ný sjálfskipting fyrir 200 þús. Er með nótur fyrir öllu.

- Litur er Metallic Brown
- Nánast ekkert ryð er á bílnum.

Ef áhugi er fyrir hendi sendið mér þá skilaboð hér eða á gunnii69@hotmail.com

http://www.live2cruize.com/Members/Sidur/Gunnar_Ingi_BMW.htm

S: 6944113

Fer fyrir sanngjarnt verð

Author:  bebecar [ Fri 24. Jan 2003 14:31 ]
Post subject: 

Ég mæli með bílnum.... þetta er fallegasti E28 bíll sem til er á landinu fullyrði ég!

Author:  saemi [ Fri 24. Jan 2003 15:53 ]
Post subject: 

Já en .....

Image


:wink: Nei nei.. bara svona smá að minna á að það er til einn M5 sem er nokkuð fallegur líka ...

Sæmi

Author:  Svezel [ Fri 24. Jan 2003 19:43 ]
Post subject: 

Sæmi:

Er dýrið komið á götuna?

Author:  saemi [ Fri 24. Jan 2003 20:23 ]
Post subject: 

Hann stendur fyrir utan hjá mér á götunni, en hann er ekki kominn á númer :!:

Sæmi

Author:  Svezel [ Fri 24. Jan 2003 20:35 ]
Post subject: 

Það verður gaman að sjá hann einhverntímann á samkomu. Hvenær á að skrá hann?

Author:  saemi [ Fri 24. Jan 2003 21:03 ]
Post subject: 

Það er nú það ! vantar alltaf tíma.. og er svo latur líka :roll:

Author:  Gunni [ Sat 25. Jan 2003 03:04 ]
Post subject: 

das m fumfer :)

Author:  bebecar [ Mon 27. Jan 2003 09:14 ]
Post subject: 

Já en Sæmi.... ég hef ekki séð þinn ennþá :wink:

Author:  saemi [ Mon 27. Jan 2003 10:54 ]
Post subject: 

Ég veit... en þó maður hafi ekki séð hann getur hann samt verið til :wink:

Sæmi 8)

Author:  bebecar [ Mon 27. Jan 2003 12:43 ]
Post subject: 

Langar þig ekkert að hafa hann bara með M5 vélinni?

Author:  saemi [ Mon 27. Jan 2003 13:09 ]
Post subject: 

..jú og nei. Ef þetta væri original bíll, þá væri það ekki spurning. En þar sem þetta er nú þegar ekki original, þá hef ég ekki rosalegt samviskubit. Þetta eru fínir bílar, en 6-an er bara svo miklu meiri lúkker, að ég veit að ég myndi keyra hann miklu meira! Svo þá væri nú skemmtilegra að hafa vélina í honum.....

En .. jú þetta er alltaf spurning sko

Sæmi

Author:  arnib [ Mon 27. Jan 2003 13:24 ]
Post subject: 

Er M5-inn þinn ekki orginal M5 ?

Ertu að spá í að setja M5 vélina í sexuna?

(leyfa okkur að vera með hérna!) :-)

Author:  saemi [ Mon 27. Jan 2003 13:34 ]
Post subject: 

http://www.bmwkraftur.com/spjall/viewtopic.php?t=147

Það er sjálfsagt að leyfa ykkur að vera með, ég held bara að þú hafir ekki verið innskráður þegar við vorum að spjalla saman um þetta!

Ef þetta svara ekki öllu, þá bara fire away og ég skrifa :)

sæmi

Author:  arnib [ Mon 27. Jan 2003 13:49 ]
Post subject: 

fine!
Ég tek þetta á mig.

Það er bara of langt síðan ég las upprunalega póstinn um M5-inn :)

Og 300 þúsund kall fyrir M535 er GJAFAVERÐ.
Mig langar! :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/