Page 1 of 2
Ódýr klassík 633csi

Posted:
Wed 09. Jun 2004 23:55
by Stebbtronic
633csi "1977" til sölu, Bíllinn er búinn að standa í nokkurn tíma vegna biðar á varahlut sem er nú kominn. Vél og skipting í fínu lagi, Er óskoðaður samt. Vél m30 3,2L 219hö (malar eins og kettlingur) öll ljós á bílnum eru í lagi og nýjir klossar að aftan, Fjöðrun mjög góð, örlítill leki frá drifi, svart leður á sætum, rafdrifnar afturrúður. Þetta er fornbíll sem þýðir engin bifreiðagj og tryggingar 17500 á ári. Þessi bíll þarf að lenda hjá einhverjum sem er góður við hann. Verð ca150þús skoða öll tilboð og skipti. Áhugasamir hringi í S:8699115 Stefán.
Myndir þetta er efsti bíllinn.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... highlight=[/img]

Posted:
Thu 10. Jun 2004 00:25
by Geir-H
ÚÚÚ Bara verið að nota myndirnar mínar. Hehe. Langar svoldð í hann, er hann í keyrsluhæfu standi?

Posted:
Thu 10. Jun 2004 02:48
by jens
Sá hann þegar ég var að skoða E21 bílinn sem þú bentir mér á. Bara nokkuð fínn bíll hjá þér.

Posted:
Thu 10. Jun 2004 12:56
by Deviant TSi
Hvað þarf til til að koma honum í gegnum skoðun? Og hvað er hann keyrður?

Posted:
Thu 10. Jun 2004 15:42
by Stebbtronic
Það var skipt um mælaborð í honum gamla borðið sýnir 85000km svo hefur verið keypt notað og sett í það sýnir nú 65000km svo hann er örugglega á milli 100,000 og 120,000km. Ég var með hann á smurstöð áðan að láta skipta um olíu á vél og drifi. Hann er svolítið lúinn eftir að hafa staðið í meira en ár. En samt betri en ég bjóst við.

Posted:
Fri 11. Jun 2004 00:13
by Freyr
Hvort er þessi bíll bsk eða ssk?

Posted:
Fri 11. Jun 2004 01:06
by Einsii
Freyr wrote:Hvort er þessi bíll bsk eða ssk?
hann talar um að vél og SKIPTING sé í góðu... þannig að trúlega er hann sjálfsk.

Posted:
Fri 11. Jun 2004 17:40
by Freyr
Einsii wrote:Freyr wrote:Hvort er þessi bíll bsk eða ssk?
hann talar um að vél og SKIPTING sé í góðu... þannig að trúlega er hann sjálfsk.
Aha, hvað veit ég, bílar eru til með sjálfSKIPTINGU og beinSKIPTINGU svo að þetta gæti verið annað hvort!

Posted:
Fri 11. Jun 2004 18:10
by Friðrik
bíllinn er ssk

Posted:
Fri 11. Jun 2004 19:25
by íbbi_
biðst afsökunar a að vera trufla söluþraðinn þinn, en þegar það er talað um "akiptingu" er nanast alltaf verið að tala um sjalfskiptingu, og "kassa" þegar um beinskiptan kassa

Posted:
Fri 11. Jun 2004 19:39
by Geir-H
íbbi_ wrote:biðst afsökunar a að vera trufla söluþraðinn þinn, en þegar það er talað um "akiptingu" er nanast alltaf verið að tala um sjalfskiptingu, og "kassa" þegar um beinskiptan kassa
Ég hefði haldið það, en það er pedali fyrir kúplingu í honum var það ekki þessi bíll??

Posted:
Fri 11. Jun 2004 23:06
by Stebbtronic
Rétt. Hann er ennþá með kúplingu. Gamli 4gíra kassinn fylgir hann var farinn að skrolla í öðrum svo að ég setti skiptingu í til að eyðileggja hann ekki meira.

Posted:
Fri 25. Jun 2004 15:55
by Stebbtronic
Bara að minna á mig, Bíllinn er ennþá til sölu. Ég er til í að skipta á sléttu á góðri ferðatölvu eða jafnvel go-kart ef einhver á svoleiðis


Posted:
Sat 26. Jun 2004 18:58
by gstuning
Stebbtronic wrote:Bara að minna á mig, Bíllinn er ennþá til sölu. Ég er til í að skipta á sléttu á góðri ferðatölvu eða jafnvel go-kart ef einhver á svoleiðis

Og er jafn mikið mál að ná í þig eins og þegar ég reyndi að kaupa þennan bíl síðast, meira að segja þegar við vorum búnir að ákveða að hittast og svo beið ég og beið eftir að ná í þig, og hringdi og hringdi
Versti seljandi sem ég hef nokkurn tímann lent í!!

Posted:
Mon 28. Jun 2004 11:51
by Stebbtronic
Hlýtur að hafa verið kelling uppí hjá mér...........
