svona áður en það fara einhverja bullsögur af stað.
þá er þessi líklega ónýtur. Hann rann útaf og endaði á stein á þriðjudagskvöld. Það kom "næturfrost" og var skyndilega bara flughált á veginum.
Kærastan mín var að keyra. Þannig það var enginn glæfraakstur eða álíka í gangi. bíllinn fær höggið neðarlega þar sem bíllinn er veikastur. og tjónaðist slatta.
Það var mjög sárt að sjá bílinn sinn ónýtann ofan á stein. En skítt með bílinn. Svo lengi sem kærastan og litli bróðir eru ekki alvarlega slösuð.
Re: BMW E39 M5 2002 sá allra flottasti
Posted: Thu 10. Oct 2013 14:25
by srr
Skiptir öllu að ökumaður og farþegar séu í lagi
Alltaf hægt að fá sér annan bíl.
Re: BMW E39 M5 2002 sá allra flottasti
Posted: Thu 10. Oct 2013 15:11
by Hreiðar
Nákvæmlega það sem allir eiga að hugsa! Bíll er bara bíll og allt getur gerst. Gott að allir sluppu heilir.
Re: BMW E39 M5 2002 sá allra flottasti
Posted: Thu 10. Oct 2013 17:54
by bjarkibje
úff ekki gott gottt samt að þau eru í góðu lagi
þú finnur þér annan bíl og gerir hann geggjaðan eins og þú ert vanur að gera