Til sölu er bíllinn hans afa heitins, sem hann átti að ég held frá 1997.
Þegar hann kaupir bílinn var búið að skipta um vél í honum því hin fór vegna klúðurs við smurþjónustu.
Akstur er óviss, en líklega á þriðja hundrað þúsund á boddí og eitthvað minna á vél.
2009 setti ég í bílinn leðurinnréttingu.
Hann hefur í gegnum tíðina fengið prýðilegt viðhald en er farinn að láta á sjá boddílega. Eins er eitthvað ólag á stýrismaskínunni og selst bíllinn þannig.
Búnaður sem ég veit af í honum er:
Hiti í sætum
Topplúga
Auk þess fylgir honum aukasett af felgum sem á eru vel nothæf dekk. (Held vetrardekk)
Óskað er eftir tilboðum í bílinn og sé frekari upplýsinga óskað er hægt að senda mér PM.



