Page 1 of 2

Aftur á sölu, BMW 540 400,000kr straðgreitt

PostPosted: Tue 14. Aug 2012 20:33
by upgrade
Til sölu BMW e34 540 í ágætis standi.

-Árgerð: 1993
-Litur: Vínrauður
-Vélarstærð: 4,0
-Sjálfskiptur
-Akstur: 259.xxx ef mig minnir rétt.

Bíllinn er með:
Topplúgu
Hita, rafmagn og minni í sætum (Tausæti)
Rafmagn í rúðum speglum og topplúgu.
Þræddur fyrir græjur.
Rosalega þéttur og góður bíll sem virkar vel.

En það þarf aðeins að sníta honum, lakkið þarf ást.
Hann var að fara í skoðun núna í mánuðinum og fékk endurskoðun útá spindilkúlu hægrameginn að framan og dempara hægrameginn að framan.
Bíllinn er einnig með ónýtt drif.



400.000kr er fast verð, og eins og ég skrifaði með feitletruðu hér að neðan þá skoða ég engin skipti!!!!

Skoða engin skipti.

Hafa samband við mig hér bara, á mail gsteinsson@gmail.com
Eða síma : 7763010.

Image

Image

Image
Stal þessari af fyrri eiganda.

Á ekki betri myndir í augnablikinu

Tek það fram að þessar felgur fara EKKI með bílnum.

Re: BMW E34 540

PostPosted: Tue 14. Aug 2012 21:52
by Jón Ragnar
Myndinar virka ekki

hostaðu þeim á www.imgur.com

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 12:57
by upgrade
Svona það sem ég fann í auglýsingu síðan 2009 frá Johnsson hér á kraftinum.


Ekinn 233.xxx km.
Sjálfskiptur
M60, 4.0L, V8, 286 hestöfl
Framleiddur 12 mai 1993
Fyrst skráður 21 mai 1993
Fyrst skáður á Íslandi 22 sept 1997

Helsti aukabúnaður:

- Tvívirk topplúga með auto stillingu
- Viðarklæðning af dýrustu gerð. (ekkert plast drasl)
- Loftkæling
- Rafmagnssæti með minni, rafmagn í hauspúðum líka!
- Mjóbaksstuðningur í bílstjórasæti
- Létt stýri
- Sætishitarar
- Hvít stefnuljós
- 17“ M-technic álfelgur (OEM) á 235-45/17" Pirelli dekkjum
- Rafmagn í rúðum og speglum
og ábyggilega eitthvað fleirra sem ég man ekki alveg í augnablikinu.

Ekkert hefur verið sparað í viðhald á bílnum síðustu ca 1-2 ár og hefur meðal annars verið skipt um:
- Rafgeymi
- Kerti
- Knastásskynjara
- Sveifarásskynjara
- Loftflæðiskynjara
- Báða súrefnisskynjara í pústi
- Bensíndælu
- Lausagangsskynjara
- Nýr Alternator
- Vatnsdæla
- Hvarfakútum var skipt út og túpur settar í staðinn, púst var yfirfarið og lagað í leiðinni.
- Sjálfskiptingin var tekin upp af Bifreiðastillingu í Kópavogi $$$$$
- Miðstöðvarmótstöðu


Það fylgja bílnum Þjónustubók og nótur fyrir rúma hálfa milljón, þar af 300þúsund í upptekninguna á skiptingunni.



Þessar nótur fylgja bílnum ekki lengur hinsvegar.

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 13:03
by agustingig
Image

Virkar ekki ennþá,, Er þetta brokatrot bíllinn?

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 15:01
by upgrade
Núh, þetta virkar hjá mér í öllum tölvu. Sama hvort ég sé innskráður eða ekki.

Ég uploada þeim þá uppá nýtt þegar ég er búinn að vinna í kvöld.


Brokatrot bíllinn?

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 15:46
by tolliii
Væntanlega sá bíll ef hann er vínrauður..

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 16:59
by Jón Ragnar
upgrade wrote:Núh, þetta virkar hjá mér í öllum tölvu. Sama hvort ég sé innskráður eða ekki.

Ég uploada þeim þá uppá nýtt þegar ég er búinn að vinna í kvöld.


Brokatrot bíllinn?



Getur ekki hotlinkað beint í mailboxið þitt :)

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 17:19
by odinn88
flottur bíll hjá þér gunnar gangi þér vel með söluna

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 15. Aug 2012 23:08
by upgrade
Takk fyrir það :D

Myndir komnar, vona að þær virki núna. Ég veit þær eru slæmar en þær segja samt meira en 1000 orð.

Re: BMW E34 540

PostPosted: Tue 21. Aug 2012 10:27
by upgrade
Setjum þennan upp

Re: BMW E34 540

PostPosted: Wed 22. Aug 2012 22:22
by upgrade
Kannski fínt að benda á að bíllinn er ekki á númerum og hann afhendist þannig

Re: BMW E34 540

PostPosted: Mon 27. Aug 2012 14:58
by upgrade
Gengur ekki að hafa bílinn á síðu 2

Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 12:03
by upgrade
upp með hann svo hann fari nú ekki á bls 2

Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 16:35
by Dannii
ég á miðjur í þessar felgur ef þig vantar ;)

Re: ♠♠♠ BMW E34 540 [Fer á 480,000kr framyfir helgi] ♠♠♠

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 09:48
by upgrade
Dannii wrote:ég á miðjur í þessar felgur ef þig vantar ;)


Ég á ekki þessar felgur, held að miðjurnar séu til í þær en takk samt