Page 1 of 2

BMW e36 323i '97 - seldur

PostPosted: Wed 12. Oct 2011 21:28
by HaffiG
BMW e36 323i
M52B25 vanos
170 hestöfl skv bókinni en 180 með réttu (+13 hö með M50 manifoldinu)
Árgerð 1997
Ekinn 220þús
Litur: Dunkelblau

Búnaður:
- Rafdrifnar rúður að framan
- Rafdrifnir speglar
- M50 manifold sem gefur honum nokkur auka hestöfl
- Svart leður, lýtur vel út!
- Filmaður afturí
- Tvískipt digital miðstöð
- Gírhnúður með ljósi

Það sem fyrri eigandi gerði fyrir bílinn:
- Demparar að framan, nýir Bilstein B4 demparar.
- Nýjar control arm fóðringar að framan
- Balancestangar endar að framan endurnýjaðir
- Húddpumpur að framan
- Rúðuupphalara að aftan

Það sem ég er búinn að gera:
- M50 manifold
- Ný heddpakkning
- Nýr sleði og strekkjari fyrir tímakeðju
- Nýr stýrisendi
- Ný viftureim
- Ný vatnsdæla
- Nýr vacuum dós/pungur
- Smókuð stefnuljós að framan
- Ný öndunarmembra

Fæðingarvottorðið:
Image

Stel einni mynd frá gunnari af innréttingunni. Lýtur MJÖG vel út að innan.
Image

Myndir síðan í sumar. Ath að hliðarlistarnir eru ekki lengur samlitaðir!
Image
Image
Image

Bíllinn brennir olíu, lýsir sér þannig að þegar maður startar kemur smá púst út, svo er hann solid eftir það þegar hann er farinn að hitna. Líklega ventlafóðringar. Hann skilar fullkominni þjöppu.

Demparagúmmí léleg, skröltir í ójöfnum.

Fæst á 580 þús stg "as it is" og það er FAST
Skoða skipti á BMW og volvo


Tilboð: 500þús stgr

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 21:06
by HaffiG
Skoða skipti á öllu mögulegu. Síst þó Toyotu..

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 21:54
by Tommi Camaro
hvað erum við að tala um mikla olíu brennslu

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Thu 13. Oct 2011 22:16
by HaffiG
Hef ekki mælt það nákvæmlega, enda til þess að gera nýbyrjaður á þessu. Kannski ca 1L/1000km ?

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Fri 14. Oct 2011 08:05
by Axel Jóhann
Það er bara m5 brennsla sem er BARA Í LAGI!!!

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Fri 14. Oct 2011 10:38
by HaffiG
Axel Jóhann wrote:Það er bara m5 brennsla sem er BARA Í LAGI!!!

Endemis drasl eru þessar vélar þá, haha!

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Fri 14. Oct 2011 12:59
by Tommi Camaro
HaffiG wrote:Hef ekki mælt það nákvæmlega, enda til þess að gera nýbyrjaður á þessu. Kannski ca 1L/1000km ?

þessi bíll þarf sem sagt nýjan kjallara/ mótor. og m5 eyðir svo mikil olíu þegar allt er í standi

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Tue 18. Oct 2011 18:26
by Misdo
Var þetta semsagt ekki membran ?
þá er þetta mjög líklega ventlafóðringar sem valda þessari brennslu
hélt samt að þú hafir verið búinn að selja þennan

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Tue 18. Oct 2011 23:51
by HaffiG
Misdo wrote:Var þetta semsagt ekki membran ?
þá er þetta mjög líklega ventlafóðringar sem valda þessari brennslu
hélt samt að þú hafir verið búinn að selja þennan

Jújú, membran var case-ið í sumar, enda þá mökkreykti hann alveg svakalega ljósum reyk. Þetta er pural BMW veiki, þ.e. ventlafóðringar, stimpilhringir, blokk etc..
Reykir mest í starti og þegar hann er kaldur, svo lítið sem ekkert eftir það. Vel keyrsluhæfur en borgar sig ekki að ræsa hann nema í vel loftræstu rými :)

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Wed 19. Oct 2011 16:11
by Axel Jóhann
Þjappan á bílnum er samt alveg eins og hún á að vera þannig að þetta eru líklegast ventlafóðringarnar.

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Tue 25. Oct 2011 00:07
by HaffiG
jæja, ég skoða skipti á öllu mögulegu og ómögulegu. Helst þó BMW að sjálfsögðu.

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Sun 30. Oct 2011 17:16
by HaffiG
upp með þetta!

Re: BMW e36 323i '97

PostPosted: Sun 30. Oct 2011 21:44
by HaffiG
Læt hann á 500þ ef hann fer fljótt..

Re: BMW e36 323i '97 - tilboð: 500þ stgr

PostPosted: Wed 02. Nov 2011 23:27
by HaffiG
Búinn að finna annan bíl sem ég hef augastað á, svo ég er ekki spenntur fyrir skiptum..

Re: BMW e36 323i '97 - tilboð: 500þ stgr

PostPosted: Thu 03. Nov 2011 20:59
by HaffiG
Hvar er allt team be liðið núna?

Ef menn eru smeikir við olíubrennsluna, þá skal það tekið fram að ég keyri bílinn slatta á hverjum degi án vandræða, og bíllinn skilar fullu afli, þannig að smá reykur við start er ekkert til að hafa áhyggjur af. :thup:

Þess má geta að TB segja að það kosti um 50þ að skipta um ventlafóðringar, svo ef það er case-ið, þá ertu kominn með ryðlaust toppeintak af 323i á 550 þús. Ef hann myndi ekki reykja myndi ég hækka verðið aftur upp í 700 þús. Það er nú ekki langt síðan menn börðust um þessa bíla.

Ekki allir 193hp 6cyl bílar sem eyða innan við 11 innanbæjar :o