Page 1 of 2
Til sölu 540i árg ´96 - nýskoðaður - SELDUR -

Posted:
Fri 12. Aug 2011 22:39
by Þórður Helgason
Vegna breytinga á vinnu konunnar (mikill vinnutengdur innanbæjarakstur á eigin bíl) kemur til greina að skipta Bimmanum út, yfir í einhvern dísilfák (ekki jeppa) og borga t.d. 800 þús á milli.
Semsagt er 540i árg 1996 falur, ekinn liðlega 200 þús km. Þjónustubók frá upphafi, fyrstu árin í þýskalandi. Grár, í góðu standi. Ssk, rafmagn í sætum, hiti og minni, innb. sími, angel eyes frá TB (Hella), innrétting blá, leður í öllu. 6 diska cd. 16 og 17" felgur, sjá myndir.
(edit 2013) Nýsprautaður framendi vegna smáákeyrslu á bílastæði um daginn. framendi, bæði bretti og húddið nýsprautuð Verð ca 1200 þús. Bein sala kemur vissulega til greina líka.
Lægra verð við staðgreiðslu.
Er á Akureyri
Þórður H.
Á ættaróðalinu:

Í sumarbústaðnum:







Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Wed 17. Aug 2011 23:50
by Þórður Helgason
Hér voru fínar upplýsingar, sem ég tók út að beiðni persónuverndar...
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Sun 09. Oct 2011 10:06
by Þórður Helgason
Þetta er enn til skoðunar, en auðvitað er maður ekki spenntur að láta svona bíla frá sér.
Nýskoðaður með tveimur ábendingu, handbremsa hefur aldrei verið neitt spes og svo var pakkning á forabúri stýris ekki í sínu sæti, svo sullaðist olía af og varð pínu subbulegt.
Annars einn af þeim bestu 540 af þessum aldri tel ég.
Svo koma stgr. tilboð líka til greina.
ÞH
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Thu 22. Mar 2012 12:07
by Þórður Helgason
Ennþá er hægt að skoða skipti á dísilbíl, t.d BMW dísilfimmu. Var að bæta inn myndum í upphafsinnleggið.
Þórður
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Sat 24. Mar 2012 08:43
by Þórður Helgason
Bíllinn verður í Keflavík og Sandgerði um helgina, seinnipart laugardags og fyrrihluta sunnudags, þarf að skreppa í fermingu. Forma það ekki að fara á jeppanum, það er jú hitabylgja.
Vilji einhver berjann augum, er innbyggði síminn milli framsætanna 8485717
Þórður
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Tue 27. Mar 2012 23:09
by Þórður Helgason
Helgartúrinn gekk vissulega vel, og þegar ég var kominn í Skagafjörð á norðurleið, varð mér hugsað til þess að ég hefði átt að fara hina leiðina norður, það var svo gaman að aka þessum aftur. (númerin lágu inni í vetur, ég tók þau út á föstudaginn).
Þórður
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Wed 19. Jun 2013 22:01
by Þórður Helgason
Annað slagið ber skynsemi á góma á heimilinu.
Nú er þessi falur sem stendur, með nýsprautuðum framenda.
Fæst trúlega á milljón, nýskoðaður.
Örugglegga einn af fáum sem er ekki búið að fikta í, bara búið að uppdeita framljósin.
Enn stendur möguleikinn að skipta á dísilbíl...
Myndirnar í þræðinum eru misgamlar, ég hef átt bílinn síðan 2006, og gengið frábærlega með hann.
Þórður Helgason Akureyri
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Thu 20. Jun 2013 18:27
by antonkr
þessi er svalur! slamma'nn í drasl, líma tribal límmiða á hann, setja á einhverjar badass felgur og léleg dekk, setja skott lip og M stýri og finna tómt bílaplan! neei grín, þessi er flóttur

vonandi selst hann á þessu ári

Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Thu 20. Jun 2013 18:41
by Þórður Helgason
antonkr wrote:þessi er svalur! slamma'nn í drasl, líma tribal límmiða á hann, setja á einhverjar badass felgur og léleg dekk, setja skott lip og M stýri og finna tómt bílaplan! neei grín, þessi er flóttur

vonandi selst hann á þessu ári

Hey, bíladagarnir eru búnir.
Og gengu frábærlega.
Tók mynd af framendanum.

Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Tue 02. Jul 2013 17:49
by Þórður Helgason
Falur fyrir rétt verð.
Dónlegum spurningum svarað eftir geðþótta.
ÞH
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Sun 14. Jul 2013 13:27
by Þórður Helgason
Skaust í Ásbyrgi, þetta var eyðslan á normal akstri, stöku sprettur.
http://imageshack.com/scaled/large/542/982n.jpg
Re: Skipti á 540i árg ´96 og einhverjum dísilbíl yngri en ´0

Posted:
Sat 27. Jul 2013 14:40
by Þórður Helgason
Bíllinn verður í Rvík og nágrenni mánudag til miðvikudagskvölds.
Þeir sem hafa áhuga á óskemmdum og alveg original 540, (fyrir utan framljósin) ættu að hringja í
síma 8448436 og kanna málið.
Þórður H.
Re: Til sölu 540i árg ´96 - hausttilboð kr. 900 þús stgr.

Posted:
Wed 21. Aug 2013 18:04
by Þórður Helgason
Kr 900 þús stgr.
ÞH
Re: Til sölu 540i árg ´96 - hausttilboð kr. 900 þús stgr.

Posted:
Sun 10. Nov 2013 11:18
by Þórður Helgason
Hin dekkin og felgurnar, annað framdekkið er skemmt.
http://imageshack.us/a/img198/5229/gx97.jpghttp://img844.imageshack.us/img844/4227/wz9h.jpgFer að henda númerunum inn vegna snjóa, nóg af öðrum ökutækjum á heimilinu.´
Á góðum dekkum er þetta frábær vetrarbíll.
Re: Til sölu 540i árg ´96 - hausttilboð kr. 900 þús stgr.

Posted:
Sat 26. Apr 2014 11:36
by Þórður Helgason
Kominn á númerin, sumarið framundan.
Gömlu símanúmerin eru ónýt, nýtt númer er 8448436
og svo PM auðvitað.
Ég er að byrja að fækka ökutækjum á númerum á heimilinu, kominn niður í 7....
Þórður