bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu. SELDUR
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=51971
Page 1 of 1

Author:  Ibzen [ Mon 11. Jul 2011 23:15 ]
Post subject:  BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu. SELDUR

Bíllinn er seldur!

Þá er víst komið að því.
Búinn að eiga þennan bíl í tæp 7 ár og þarf núna að láta hann fara.

Bíllinn er keyrður 222.xxx km.
M50B20 mótor, 150 hestöfl.
Beinskiptur.
Ekki læstur.
Rafdrifin topplúga sem virkar.
Hann er með angel eyes að framan.
Koni dempara sett er undir bílnum og að framan er hann með coilovers og ég hækkaði hann að aftan með gormaklossum.
Mótorinn er mjög fínn og það virkar nánast allt í bílnum.
Þegar ég segi nánast að þá er ég að meina að það eru hlutir sem þarf að kíkja á.
T.d. fer rúðan bílstjóramegin skakkt upp í falsið þannig að ég tók hana úr sambandi.
Nokkuð er um riðbletti á boddýi og lakkið ekki það besta.
Ljósin að aftan eru líka orðinn slöpp eftir að hafa fyllst af vatni og síðan frosið í þeim.
Samlæsingar standa líka á sér og vill hann ekki læsa bílnum með lyklinum.
Það er tauáklæði í bílnum og er armpúði afturí. Bílstjórasætið er orðið nokkuð sjúskað, rifið og svampur eyddur.
Smá titringur kemur líka í stýrið þegar bremsað er en nokkuð nýlegt er þó í öllum bremsum að framan og aftan. Bæði diskar og klossar.
Bíllinn fór athugasemdalaust í gegnum skoðun núna í vetur og er síðasti stafurinn í númerinu 2.
Það var keyrt á mig á þessum bíl að framan fyrir um 5 árum og árið áður bakkaði ég á staur. Bæði tjón voru ágætlega löguð nema kannski það seinna. Mikið um ryðbletti á nýjustu boddýpörtunum á bílnum. Bíllinn er ekki skráður tjónabíll enda um minniháttar árekstra að ræða í bæði skipti.
Það gæti verið að ég sé að gleyma einhverju en ég hvet menn sem hafa áhuga að koma bara og skoða.
Er staddur í Hafnarfirði.

Bíllinn er á flottum 17" felgum með góðum og nýlegum Cooper Zeon 2X5 dekkjum.
245/40R17 að aftan og 225/45R17 að framan.
Einnig kemur með bílnum 16" bmw felgur með vetrardekkjum sem eiga alveg 1-2 vetur eftir.

Image
Image
Image

Verð 450.000 kr.
Það er ekkert áhvílandi á bílnum og hef ekki áhuga á skiptum nema þá kannski á móti subaru forester.
Hægt er að ná í mig í síma 847-0337 Ívar eða senda mér pm.

Author:  Ibzen [ Sat 16. Jul 2011 19:12 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

bömp

Author:  Ibzen [ Thu 28. Jul 2011 03:13 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

Bömp

Author:  Ibzen [ Thu 04. Aug 2011 22:48 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

bömp

Author:  Ibzen [ Fri 19. Aug 2011 00:20 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

bömp

Author:  Haffer [ Fri 19. Aug 2011 08:41 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

Get ekki sed myndirnar :argh:
getiru sent thær á don_haffes@hotmail.com

Author:  Ibzen [ Mon 29. Aug 2011 00:48 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

Lækkað verð:
400.000 kr.

Author:  Ibzen [ Thu 15. Sep 2011 14:04 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

Bömp:
Lækkað verð: 350.000 kr.

Author:  Ibzen [ Thu 22. Sep 2011 18:50 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu.

Bömp lækkað verð 320.000 kr.

Image

Author:  Ibzen [ Sun 25. Sep 2011 15:01 ]
Post subject:  Re: BMW E36 320 árgerð 1993 til sölu. Ný mynd og nýtt verð.

Nýtt verð:
299.000 kr

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/