Page 1 of 1

BMW 520d 2002 - Mr.X - SELDUR!!

PostPosted: Thu 18. Mar 2010 20:38
by Schulii
Til sölu:

BMW 520d

Árgerð: 10/2002
Ekinn: 193.000km
Skipting: Beinskiptur
Fór í skoðun 25.3.10 og fékk 11 miða með einni athugasemd
Búnaður: Leður, 6 diska magasín, loftkæling, regnskynjari, Xenon, aðgerðastýri.

Kostir: Bíllinn er málaður að framan síðasta sumar. Þeas bretti, húdd, svunta og fremri farþegahurð. Nonni shadowline-aði hann líka fyrir mig síðasta sumar. Bíllinn fór í hendur Mr.X sem gjörbreytti honum. Að hans sögn fór hann í rúm 170 hestöfl en engar tölur fengust um tog-aukningu. Skipt var um spindla síðasta sumar og soggreinin hreinsuð. Nýr rafgeymir fór í hann um áramót. Bíllinn er á Kumho heilsársdekkjum sem voru keypt í október. Bíllinn fór í smurningu í dag (18.03.2010) og er fullkomin þjónustubók sem fylgir. Hann notar um 8 lítra af olíu á hundraði innanbæjar en tæpa 6 úti á vegum. Þetta er vægast sagt geggjaður kreppubíll sem er þægilegur og með skemmtilega vinnslu miðað við tveggja lítra díselvél og 1500kg bíl. Bíllinn fór í hjólastillingu í febrúar.

Gallar: Smitar smá olíu frá vél vegna ventlalokspakkningar. En þó ekki meira en það að það kom engin athugasemd vegna þess þegar bíllinn fór í skoðun síðasta fimmtudag . 2-3 takkar í miðstöðvarstjórnborðinu eru soldið lausir og detta stundum af. Sætishitari í bílstjórasæti er bilaður.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1

Verð: Áhvílandi er lán uppá 1.100.000kr. Afborganir eru rúmar 29.500kr.ca.
Verðið er yfirtaka og 250.000kr. í peningum.

Ég er til í lánaskipti líka á BMW eingöngu. Skoða allt þar en helst eitthvað virkilega skemmtilegt. Eins og 545i eða 530d eða eitthvað álíka.
Sími: 691-4147 eða EP

Kv, Skúli

Re: BMW 520d 2002 <<Mr.X Edition>>

PostPosted: Thu 18. Mar 2010 22:53
by Alpina
Mjög snyrtilegur bíll 8)

Re: BMW 520d 2002 <<Mr.X Edition>>

PostPosted: Thu 18. Mar 2010 23:05
by Schulii
Alpina wrote:Mjög snyrtilegur bíll 8)


Takk fyrir það. Auðvitað margt sem sér á tæplega átta ára gömlum bíl þegar nær kemur en ég held að hann standist alveg ágætlega samanburð við aðra með svipaðan aldur og fyrri störf.

Annars eru nú ágætis líkur á að hann sé seldur þó ekkert sé fast í hendi í þessum málum. En ákvað engu að síður að pósta honum hérna líka því það gæti einhver lumað á einhverju gómsætu í skiptum.

Er MJÖG MJÖG heitur fyrir ákveðnum bíl og vona að þetta gangi allt upp. Þá fær Mr.X eitt verkefni í viðbót í vor ;)

Re: BMW 520d 2002 <<Mr.X Edition>>

PostPosted: Fri 26. Mar 2010 14:10
by Josef90
Verða gallarnir lagaðir fyrir sölu eða ?

Re: BMW 520d 2002 <<Mr.X Edition>>

PostPosted: Fri 26. Mar 2010 19:45
by Schulii
í fyrsta lagi þá er ekkert víst að það verði neitt vandamál með demparana. Þetta gerðist einu sinni síðasta vetur að ég fann fyrir þessu í -12°C. Gúmmíkanturinn verður lagaður. Bíllinn á pantaðan tíma í Eðalbílum næsta þriðjudag til að laga magasínið. Að skipta um ventlalokspakkninguna verður ekki lagað fyrir sölu. Ég fór með bílinn í skoðun í gær og eina athugasemdin sem hann fékk var slit á framdekkjum. Það var ekki einu sinni sett útá olíusmit svo lítið er það. Og nei, ég ætla ekki að kaupa nýtt miðstöðvartakkaborð.

Bíllinn er semsagt kominn með [11] miða og þarf ekki að fara í skoðun fyrr en í síðasta lagi í nóvember 2011.

Þetta eru þægileg kaup, þægilegar afborganir og frábær bíll! Ég er búinn að fá tilboð uppá 100.000kr og yfirtöku en það er ekki í boði.

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - Lægra áhvílandi, lægri útborgun!

PostPosted: Thu 01. Apr 2010 10:05
by Schulii
Nýtt áhvílandi og lægri útborgun ;)

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - Lægra áhvílandi, lægri útborgun!

PostPosted: Tue 06. Apr 2010 00:44
by Schulii
ttt

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - Lægra áhvílandi, lægri útborgun!

PostPosted: Tue 06. Apr 2010 13:15
by íbbi_
ég var dáldið á þessum fyrir 2 árum ca, mjög smekklegur bíll

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - Lægra áhvílandi, lægri útborgun!

PostPosted: Tue 06. Apr 2010 13:26
by Grétar G.
Hvernig er það er ekki alltaf talað um túrbínu upptekt í 150-200k ?

Ef já þá er eitthvað búið að kíkja á það ef ekki hvað kostar það syrka ?

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - Lægra áhvílandi, lægri útborgun!

PostPosted: Tue 06. Apr 2010 13:47
by Orri Þorkell
ekki skemmir liturinn fyrir, með flottari litum sem hægt er að fá þá í og ansi hugguleg innrétting

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - SELDUR!!

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 12:43
by Schulii
SELDUR!!!

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - SELDUR!!

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 17:23
by Alpina
Og hvað í staðinn

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - SELDUR!!

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 17:24
by Haffi
ást og hamingja :!:

Re: BMW 520d 2002 - Mr.X - SELDUR!!

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 20:21
by Schulii
Alpina wrote:Og hvað í staðinn


Ekkert ennþá. Ég missti af Touring bílnum. Hann hefði definetily verið FIRST CHOICE. Sá bíll er geðveikur. Ég fór með svarta 545i til Eðalbíla, ákvað að salta hann aðeins eftir það. Þannig að ég er bara ennþá að leita.