Page 1 of 5

BMW E30 325i *seldur*

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 21:15
by Daníel
BMW E30 325i
1989
Delphin Metallic
Aflgjafi: Bensín
2500cc - 170 hestöfl
Skipting: Beinskipting
Ekinn um 167000 km.

Búnaður:

Topplúga
Sportstólar tau
ABS
Check tölva
Augabrúnir
Kastarar (óbrotnir)
Vökvastýri
Mtech1 3 arma stýri
Svört nýru
Shadowline
"ZHP" gírhnúður
Alcantara gírstangar og handbremsupoki
Nýjar taumottur
15" felgur á sumardekkjum
IS lip (ekki komið á hann)

Myndir frá því ég fékk hann:
Image
Image
Image

Smá skot af innréttingunni og gírhnúðnum
Image
Image



Ástand:

er búinn að taka allt í gegn í bremsum og skipta um plöturnar aftan við diskana að aftan. Vírofnar bremsuslöngur framan og ytri að aftan, á eftir að setja þær innri í, en þær fylgja. Nýr rafgeymir, nýr þéttikantur í skotti og á topplúgu. Svuntan máluð. Ýmislegt fleira pillerí.

Hurðirnar eru frekar blettóttar af ryði og eitthvað mislitar miðað við restina af bílnum. Það eru komnir smá ryðblettir á toppinn einnig. Bílstjórasætið er rifið, en þó eru sætin annars heil og óbrotin. Ég er ekki búinn að finna nákvæmlega hvað er að angra miðstöðina. Þó er kominn annar mótor, ný mótstaða og rofi. Hann gengur hægaganginn svolítið leiðinlega þegar hann er orðinn heitur.

Frekari upplýsingar:

Þessi bíll var upphaflega 316i en Bjarki Hallsson breytir honum í 325i.

Skoða skipti á ódýrari.

Verð: 300.000 kr. eða gerið mér tilboð, í versta falli segi ég nei.

Hafið samband í síma 8244886 eða gegnum PM.

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 21:22
by maxel
Do want

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 21:27
by Daníel
Þessi er frátekinn þar til á morgun.

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 21:28
by Einarsss
vó .. það er aldeilis hraði í sölunni :shock:

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 22:17
by birkire
einarsss wrote:vó .. það er aldeilis hraði í sölunni :shock:


það langar líka öllum og ömmum þeirra í e30 núna

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 22:19
by Einarsss
E30 eru heitir bílar .. og hafa verið það samfellt frá 2003-2004 :)

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 22:27
by EggertD
vááá langarí :argh:

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 22:45
by arnibjorn
Hefði ég ekki verið búinn að kaupa compact þá hefði ég keypt þennan einn tveir og bingó.

Ég spóla bara á compact í staðinn :mrgreen:

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 14:24
by Alpina
Deeemmmm

þetta var virkilega fínn bíll þegar Bjarki græjaði og gerði á sínum tíma,,

sakna sárt þeirra frábæru aðstöðu sem við höfðum í den

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 14:36
by Daníel
Jæja, þessi er seldur. Óska nýjum eiganda til hamingju með bílinn.

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 14:41
by andrivalgeirs
Daníel wrote:Jæja, þessi er seldur. Óska nýjum eiganda til hamingju með bílinn.



Hver keypti?

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 14:42
by Alpina
Daníel wrote:Jæja, þessi er seldur. Óska nýjum eiganda til hamingju með bílinn.


Váá,, þetta var ekki lengi að gerast ((( enda E30 mega cult))

er alveg viss að nonnivett eða Tommi runo hafi loks játað kynhneigð sína :lol: :lol: og keypt bílin

Re: BMW E30 325i

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 15:01
by andrivalgeirs
Daníel wrote:Jæja, þessi er seldur. Óska nýjum eiganda til hamingju með bílinn.


Ég er mjög heitur fyrir þessum, fallegasti E30 liturinn finnst mér :thup:

Re: BMW E30 325i *seldur*

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 15:41
by oddur11
hver keypti?? :shock:

Re: BMW E30 325i *seldur*

PostPosted: Sat 27. Feb 2010 16:29
by burger
ANDSKOTINN !

langaði svo í hann skoðaði kraftinn ekkert í gær :argh:

jæja óska nýja eigandanum til hamingju með þennan baaaaara gott eintak :thup: skoðaði hann einu sinni