Page 1 of 1

1990, sjálfskiptur 730

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 11:46
by bjajon
Gamli bíllinn hans Bjarka(fyrir þá sem vita hvað ég er að tala um) er til sölu, og fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um þá er þetta 90 árgerðin af svörtum 730, í dag er hann keyrður 190 þús km. Hann er í ágaetisástandi fyrir utan fáar athugasemdir sem ég fékk þegar ég fór með bílinn í skoðun í síðustu viku, en þaer voru eftirfarandi: demparar framan, einhver lega að aftan(man ekki alveg hvað heitir, get athugað það fyrir áhugasama) og ryðgaðir bremsuklossar að aftan. Ég get selt bílinn eins og hann er í dag ef þið viljið dunda ykkur aðeins í honum og kannski sparað smá pening í leiðinni og ég get einnig gert við hann og selt síðan... En hann lítur mjög vel út að utan en það er aðeins farið að sjá á bílstjórasaetinu eins og gengur og gerist annað í lagi....

Þið vitið alveg hvernig þessir bílar líta út og já þessi er með topplúgu og leðri, já og síðast en ekki síst þá lét ég gera ýmislegt við vélina þegar ég keypti bílinn og það er meðal annars ný heddpakkning, tímakeðja og knastás í bílnum.... (ég er búinn að keyra bílinn rúma 8þús km síðan það var skipt um þetta)

ég vill helst ekki skipta á neinu nema það verði freistað mín með einhverju sniðugu en þá aðeins ódýrari bíl...

verð 600þús já sími 6621935

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 13:05
by bebecar
Er þetta ekki 5 gíra sjöan svartur með Shadowline?

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 13:16
by arnib
1990, sjálfskiptur 730

bebecar wrote:Er þetta ekki 5 gíra sjöan svartur með Shadowline?


Varla :)

Bíllinn sem þú ert að tala um er í eigu Schulii hér á spjallinu, (og áður í eigu Dinan)

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 13:20
by bebecar
Ahhhh - einmitt... ég hélt það, hann hefði einmitt verið verulega fínn fyrir 600 þús :wink:

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 21:04
by Schulii
lol.. já, ég myndi kaupann af sjálfum mér á 600 þúsund :lol:

hann er reyndar 12/93

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 21:41
by bebecar
Já, og "aðeins" dýrari.... Maður þorir nú ekki annað en að spyrja. Stundum þurfa menn pening STRAX :wink:

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 21:57
by Schulii
skil þig.. en það er aldrei að vita nema hann verði til sölu fljótlega..

ef skólinn fer að banka eitthvað fastar uppá!

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 17:11
by Guest
áttu myndir?

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 18:24
by moog
Fylgja 17" BBS felgurnar sem Bjarki seldi þér með bílnum???

PostPosted: Sat 31. Jan 2004 21:49
by bjajon
já að sjálfsögðu fylgja felgurnar með en nei ég á því miður ekki myndir í augnablikinu en endilega hringja bara og kíkja á bílinn....