Page 1 of 1

Sá flottasti, BMW 525ia árgerð 1993

PostPosted: Sun 18. Jan 2004 17:26
by Auðunn
Jæja, þá kem ég með nákvæma lýsingu á bílnum.

Stórglæsilegur grár BMW 525ia árgerð 1993. 210hö. (Nýr tölvukubbur)

Innfluttur frá Þýskalandi og kom fyrst á götuna 25.03.93 þar í landi. Bíllinn kemur svo á götuna á Íslandi 04.09.97 (keyrður 150.000 km) og er nú keyrður 227 þúsund.

Í bílnum má m.a. finna:
Svart leður, topplúga, ABS hemlavörn, fjarstýrð samlæsing, hiti í sætum, hraðastillir, hiti í sætum, líknarbelgir, loftkæling, rafdrifnar rúður, rafdrifnir speglar, útvarp, geislaspilari, bassabox 700W, 600W Magnari, veltistýri, vökvastýri, 4 vetradekk á 15” Bmw álfelgum, 4 sumardekk low profile á 17” Momo álfelgum 235/45, viðarinnrétting, þjónustubók, aksturstölva.

Nýjar bremsur og bremsudiskar (des 2003)

Þessi bíll er einstaklega vel með farinn og má þá helst nefna að lakkið er eins og nýtt og undir vélarhlífinni má sjá að allt er tandurhreint og vel með farið. Reyklaus. Sjón er sögu ríkari. TILBOÐ, öll skipti koma til greina.

Áhugasamir hafi samband í síma 6901552, eða ausi20@hotmail.com

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Sun 18. Jan 2004 23:59
by Benzer
Flottur bíll...

En hvað er á sjá afturljósið bílstjórameiginn hvað er þetta appelsínu gula fyrir neðan stefniljósið :?: Er bara öðru meiginn

PostPosted: Mon 19. Jan 2004 00:41
by Djofullinn
Glampar í glitaugað ;)

PostPosted: Mon 19. Jan 2004 12:26
by Benzer
Djofullinn wrote:Glampar í glitaugað ;)


Jájá ok :) Soldið skrítið samt að sjá þetta :wink:

PostPosted: Mon 19. Jan 2004 13:51
by Tóda
Virkilega flottur :oops:

hann er aldreilis sætur !

PostPosted: Mon 19. Jan 2004 15:00
by nod
já hann lýtur ágætlega út :D en var ekki svona bíll á sölu hérna fyrir stuttu eða var það 535 ?