BMW 525iA E34 1991 Seldur

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby maxel » Tue 13. Oct 2009 02:57

BMW 525iA E34

Ætla prófa að setja fákann á sölu svo maður geti rótað í S13.
Bíllinn er SSK og ekinn í kringum 285.000km og á nóg eftir.
Byrjum bara á fæðingarvottorðinu:

    Engine M50
    Cubical capacity 2.50
    Colour GRANITSILBER METALLIC (237)
    Upholstery ANTHRAZIT STOFF (0411) - Í bílnum er núna MINT comfort leður með hita í bossanum og armrest, einnig er armrest með hólfi afturí og hauspúðar, því miður eru enþá tauhurðarspjöld. Svo eru velour mottur allann hringinn.
    Prod. date 1991-11-04

    Order options
    No. Description
    288 LT/ALY WHEELS - Bíllinn er á 15" Basketweaves, allar miðjur og varadekkið er eins, ágætis dekk á þeim líka
    320 MODEL DESIGNATION, DELETION
    401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC - Virkar eins og í sögu
    410 WINDOW LIFTS, ELECTRIC AT FRONT - Vantar nýjan sleða vinstra megin, hann er boltaður í ekki hnoðaður eins og á sumum (sem er plús), það eru E34 í vöku og nokkrir að rífa svona bíla þannig að það er ekki vandamál.
    428 WARNING TRIANGLE
    472 CENTER ARMREST FRT DRIVER/PASS
    498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE
    510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM - Fyrsti E34 sem ég hef séð þetta virka í
    520 FOGLIGHTS - Annar kastarinn er með brot eftir grjót
    652 BMW BAVARIA C II - Ágætis Pioneer spilari í honum, ágætis hátalarar líka, veit ekki hvort það sé stock eða ekki
    708 M-SPORT LEATHER STEERING WHEEL II - Ágætis standi, ekkert rifið
    801 GERMANY VERSION

Aðrir hlutir varðandi bílinn.
Plúsar:
    Bíllinn er með 10 skoðun.
    Í bílnum er glæný stýristöng (fylgir nóta).
    Bíllinn er nýkominn úr pústi (fylgir nóta).
    Bíllinn er solid í akstri.
    Vélarsalurinn í þessum bíl er súperclean.
    Bíllinn vinnur vel og keyrir vel.
    Ég setti leðurhandfang á handbremsuna.
    Ég er búin að setja lesljós í allan bílinn.
    Ég skipti um ónýtar perur í mælaborðinu.
    Ég lagaði laust hanskahólf.
    Ég lagaði brotna handfangið á hanskahólfinu (original lásinn er á því).
    Ég setti einn öskubakka í, fann ekki einn í viðbót sem vantar öðrumegin.
    Ný löm í benslok (fylgir nóta)
Mínusar:
    Það var skipt um skiptinguna, eftir það er komið hundleiðinlegt "tikk" undan bílnum, ekki fundið neina galla í akstri útaf þessu en þetta heyrist þegar þú stendur fyrir utan bílinn.
    Bíllinn er ekki alveg súpersmooth í hægagangi, snúningsmælirinn tekur ekki neitt massíft drop heldur purrar hann bara pínu, varla vert að nefna.
    Lakkið á bílnum er ekki beint lélegt en hann er dálítið grjótbarinn að framan og svona litlar doppur hér og þar, verst af öllu er ryðskemmdinn í hægri sílsinum og undir hægri hurðunum, undir hurðunum er ryð sem er ljótt en ég held að það sé ekki alvarlegt. Einnig er hægri hjólboginn nuddaður (aðeins hjólboginn) og hefur litli listinn fokið af í leiðinni og yfirborðsryð myndast, ég á listann.
    Ég var búin að nefna að vinstri rúðuupphalarinn spýtir af sér rúðunni, þarf nýjann.
    Brot í vinstri kastara og vantar grill í stuðara.
    Samlæsingar eru leiðinlegar, skynjarinn í bílstjórahurðinni er sökudólgurinn en það virðist sem vinstri aftur hurðinn sé ótengd. Ef ég ýti skynjaranum nógu langt niður á bílstjórahurðinni læsist allt (hægri hurðir, bensínlok og skott) nema vinstri afturhurð.
    Klæðninginn í toppnum lafir aðeins að aftan
    Vantar límmiðana í miðjurnar í felgunum

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Þessi bíll er frábær í akstri og alltof kósí með þetta leður og SSK, þegar snjórinn kom var fáranlega gott að keyra hann og hita á sér bossann með hitanum í sætum. Varðandi kastara, grill í stuðara, rúðuupphalara og hurðarskynjara... þá getur vel verið að ég komi þessu í lag fyrir sölu.
Gæti verið að ég sé að gleyma einhverju en ég hendi því inn um leið og ég man það.
Ég ætla að setja á bílinn 250.000kr þar sem hann er ágætlega vel búinn og farinn og með glaðvakandi M50B25.
Þeir sem hafa áhuga sendið einkapóst.
kv Axel
Last edited by maxel on Fri 16. Oct 2009 23:59, edited 1 time in total.
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Re: BMW 525iA E34 1991

Postby garnett91 » Tue 13. Oct 2009 04:41

þessi er kosý og þéttur :)
Jeep XJ 35" 1991 (MY093) leiktæki/daily
BMW e34 540IA 1994 (TO228) seldur :(
BMW e36 323I 1996 (NF832) seldur
Toyota Corolla 1995 XLI seldur
Subaru 1800 station 1991 seldur
BMW e36 316 M-tech 1998 seldur
Honda civic 1400cc 1998 seldur
User avatar
garnett91
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sun 14. Sep 2008 02:21

Re: BMW 525iA E34 1991

Postby sosupabbi » Tue 13. Oct 2009 15:12

Flottur bíll hjá þér axel, 250þús er gjöf en ekki gjald.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: BMW 525iA E34 1991

Postby ValliB » Tue 13. Oct 2009 15:15

djöfull væri fínt að hafa þennan sem beater, kakóhitararnir myndu gera gott mót
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby maxel » Fri 16. Oct 2009 23:59

Seldur :) , óska nýja eigandanum til hamingju
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby Alpina » Sat 17. Oct 2009 00:13

maxel wrote:Seldur :) , óska nýja eigandanum til hamingju


Angelico :shock:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby maxel » Sat 17. Oct 2009 00:17

Alpina wrote:
maxel wrote:Seldur :) , óska nýja eigandanum til hamingju


Angelico :shock:

Nibb en frá svipuðum slóðum
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby lacoste » Sat 17. Oct 2009 14:00

Ég nældi mér í þennan beater. :santa:
ovlov
BMW e39 523i (Seldur)
Audi S4 Turbo (Seldur)
BMW e34 525ia (Seldur)
e46 318 ci (Seldur)
e36 320 coupe (Seldur)
User avatar
lacoste
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 390
Joined: Fri 26. Sep 2008 17:42

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby Alpina » Sat 17. Oct 2009 14:45

lacoste wrote:Ég nældi mér í þennan beater. :santa:


:thup:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: BMW 525iA E34 1991 Seldur

Postby orezzero » Wed 28. Oct 2009 01:34

Til hamingju með gripinn
VW Golf MK2 (16v í smíðum)
VW Touran 04'

Einar Borg
S: 823-3738
User avatar
orezzero
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 279
Joined: Mon 07. Apr 2003 20:47
Location: Hafnarfjörður


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests