bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

[b]M5 til sölu - seinni hluti! [/b]
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=403
Page 1 of 2

Author:  bebecar [ Thu 05. Dec 2002 10:28 ]
Post subject:  [b]M5 til sölu - seinni hluti! [/b]

Svona fer þegar maður treystir mönnum! Sá sem átti að taka bílinn af mér um mánaðarmótin (og var búin að borga inná) getur ekki borgað þannig að ég hef ekki kost á öðru en að leita að öðrum kaupanda. (og missi þannig líka af bílnum sem ég vildi fá uppí sem var fullkominn fyrir mig :cry: )

Ég auglýsti á miðvikudaginn í mogganum og minni því á mig eina ferðina enn! :(

Þetta hefur alltaf strandað á því að ekki er hægt að fá bílalán og ég hef ekki viljað Camaro uppí (enda að leita að praktískum ódýrum bíl sem stendur - hef ekkert á móti Camaro). Ég fékk þrjár fyrirspurning á miðvikudaginn og ég mun selja bílinn þeim fyrsta sem er klár með pening.

Þannig að ef einhver er að pæla - HRINGIÐ þá í mig :!:

Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta BMW M5 E34 árgerð 1990 og ekinn 142 þús. Ekki tjónabíll og með súper eigendasögu (fluttur inn af syni hans Guðmundar í B&L) og góðu þjónustusögu þrátt fyrir að bókin fyrir bílinn sé ekki til lengur.

Hann fer á MJÖG góðu staðgreiðsluverði (ca. 1200 þús) - og ég skoða líka flest öll skipti á bílum með einhverri þokkalegri milligjöf en þá á eitthvað hærra verði.

Fram að þessu hef ég verið stífari á verðinu þar sem ég var ekki búin að finna íbúð - en nú er ég að flytja þannig að svigrúmið fyrir ykkur væntanlegir kaupendur er meira áður.

Það skiptir mig máli að bíllinn fari á góðan stað - það er smávægilegt viðhald á döfinni á næstunni (Bremsuklossar að framan (búin að skipta um þá reyndar núna), ein hosa og pakkning í púst).

Ég mun taka ákvörðun í byrjun næstu viku. Sendið mér skilaboð ef þið viljið spyrja.

Ódýrir bíla koma sterklega til greina í uppítöku, þá sérstaklega þokkalega sparneytnir BMW og Benz og ég er ekki hræddur við háar kílómetratölur ef bíllinn er í lagi!

Bestu kveðjur,
Ingvar
S: 8647925[/b]

Author:  íbbi [ Fri 06. Dec 2002 18:25 ]
Post subject: 

þú veist að ég myndi kaupa hann :?

Author:  íbbi [ Fri 06. Dec 2002 18:28 ]
Post subject: 

er bara svo blankur eftir uppgerðini á mmc vélini það var um 300þúsund þannig að það frestaði bimma kaupunum hversu mikið sem mér gremst það..


síðan er ég með jú 4runnerinn líka.. sá bíll er til sölu og fæst á góðu verði

annars ef manni gengur vel í vetur verður maður á 12cyl í sumar með ///M merkinu í húddinu 8)

Author:  bebecar [ Fri 06. Dec 2002 22:15 ]
Post subject:  Ég veit Ívar....

Annars er hann seldur núna, ég fékk innborgun á hann fyrir klukkutíma síðan.

Ívar... ef þig vantar aðstoð við leit að rétta bílnum þá er ég boðinn og búin að hjálpa þér.

Ég get reynsluekið bílum hérna í bænum fyrir þig t.d.

Author:  Gunni [ Sat 07. Dec 2002 00:34 ]
Post subject:  Re: Ég veit Ívar....

bebecar wrote:
Annars er hann seldur núna....


hvernig líður þér nú yfir þessu Ingvar ?? fékkstu ásættanlegt verð fyrir gripinn ??

Author:  íbbi [ Sat 07. Dec 2002 04:11 ]
Post subject: 

úff maður trúir þessu varla.. :?

Author:  Guest [ Sun 08. Dec 2002 16:20 ]
Post subject: 

Það hlaut eitthvað að vera.
Neglurnar mínar stækkuðu ekkert allan föstudaginn! :)

Author:  íbbi [ Sun 08. Dec 2002 17:54 ]
Post subject: 

ég þakka ingvar 8) annars reikna ég nú með að nota coltinn aðeins þar sem það er nú búið að taka allan mótorinn upp.. er reyndar búinn að finna bimman sko.. en ég reikna með að fara ekki í bimma alveg strax.. síðan er ég jú með jeppan líka.. er að fara aðeins í gegnum hann þessa dagana.. hann er til sölu btw á góðu verði..

Author:  Kull [ Sun 08. Dec 2002 21:15 ]
Post subject: 

Ég samhryggist Ingvar minn, fékkstu eitthvað uppí eða bara cash?

Author:  bebecar [ Mon 09. Dec 2002 09:27 ]
Post subject: 

Þetta verður allt í fína..... og ég fæ smá skilnaðarfrest :lol: Og vonandi að hitta hann annað slagið.

Hann fer á mjög góðan stað og ég fæ smá "það sem sanngjarnt er, segi ykkur betur frá því síðar".

Þetta verður örugglega erfitt, en ég er búin að kaupa PS2 til að leiða hugann frá honum - eða reyna allavega.

Og ég er nú þegar byrjaður að kanna hvað ég kaupi næst þegar ég á pening...

Stefnan er að byrja ódýrt.... helst á M535i eða einhverju í þeim dúr og eiga þá tvo bíla.

Author:  iar [ Mon 09. Dec 2002 18:35 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Þetta verður örugglega erfitt, en ég er búin að kaupa PS2 til að leiða hugann frá honum - eða reyna allavega.


Getur þá drepið tímann í Gran Tourismo ... betra en ekkert! :-)

Author:  Svezel [ Mon 09. Dec 2002 19:04 ]
Post subject: 

Þú færð þér bara fjarstýrðan M5 svona rétt til að minnka söknuðinn 8)

Author:  iar [ Mon 09. Dec 2002 19:07 ]
Post subject: 

svezel wrote:
Þú færð þér bara fjarstýrðan M5 svona rétt til að minnka söknuðinn 8)


Góður punktur! Skella sér á einn BitChar klón og breyta í M5. :-)

Author:  bebecar [ Tue 10. Dec 2002 14:03 ]
Post subject: 

Ég er með einn fjarstýrðan 911 Turbo frá Bílabúð Benna og er að fara kaupa svona vasabíl á eftir - svo er ég með Gran Turismo líka - þannig að það er af nógu að taka. Ég er líka að stúdera næstu möguleika í bílamálum.

Author:  gstuning [ Tue 10. Dec 2002 15:19 ]
Post subject: 

Þar sem að það er víst að þú kaupir næst BMW :)

Þá er helst að skoða

Hvaða eiginleika þú vilt,
hvernig bíl þú þarft,
Hvað ætlarru að eyða

:)

Ég held að M5 Touring sé besti fjölskylubíllinn :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/