Page 1 of 1

BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Wed 02. Sep 2009 18:36
by Wolf
BMW 520i E60 12/2004
-Ekinn 96 þús.km

-Vél: 6 strokka lína, 2.2L 170Hö

-Sjálfskiptur

Bíllinn er vel búinn en ég er þó ekki með fæðingarvottorðið, en til að nefna eitthvað...

- I drive

-Leðursæti (rafmagn framí)

-Loftkæling

-Tölvustýrð miðstöð

-Nálægðar skynjarar, framan-aftan

-"Cruize control" eða hvernig þetta er skrifað..

-Glertopplúga

- Xenon aðalljós

Að sjálfsögðu eru þessir bílar líka þokkalega búnir staðalbúnaði eins og skrið og spólvörn, ISOFIX og margt fleira....


-Dekk: Bíllinn er á 17" BMW álfelgum, vafin mjög góðum TOYO dekkjum.
Að auki fylgja 16" BMW álfelgur einnig vafin mjög góðum TOYO vetrar dekkjum (ónelgd)


-Eigendur: Ágúst Magnússon flutti bílinn inn notaðan fyrir mann sem selur svo systur sinni bílnn
(kona á miðjum aldri) Hún á bílinn lengst af, og hugsaði mjög vel um viðhald á honum.
Ég kaupi síðan bílinn af henni.

-Ástand: Ástand á bílnumm er mjög gott, mjög þéttur og fínn í akstri og, enda hefur verið hugsað mjög vel um hann.
Að innan er hann MJÖG snyrtilegur.
Nýlega smurður með Mobil 1
Fyrir þá sem eru að spá í það, þá er mjög hófsöm bensín notkun á svona bíl, eða um 10l/100km í blönduðum akstri.


-Gallar: Stopp rofi fyrir rúðuþurkur er e-h leiðnlegur (þurkurnar stoppa stundum ekki á réttum stað) Það er móða í öðru þokuljósinu, og móða í öðru stefnuljósinu (sambyggt aðalsjósi)
Nudd á horni afturstuðara og litlar rispur hingað og þangað. Einnig er húdd grjótbarið


-Kaup & kjör: Ásett verð er 2.890,- sem að ég held sé bara frekar hófleg verðlagning þrátt fyrir ofantalda galla.
Það er ekkert áhvílandi.
Ég er til í að skoða snyrtilegan E46,E39 uppí á verðbilinu ca 700-1300þús.

-Sími: 660-4096 eða 891-8277 (frekar 891-8277 á kvöldin) Magnús, eða EP


-MYNDIR: Kemst ekki inná Imageshack, þannig að þetta verður að sleppa (Það eru fínar myndir á síðu 1 og 2)
ATH: er að sjálfsögðu kominn með "10" miða eftir að þessar myndir voru teknar.

http://blyfotur.is/viewtopic.php?t=5534

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Thu 03. Sep 2009 12:05
by petur-26-
flottur þessi

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Thu 03. Sep 2009 14:05
by Karlsson
Langar í hvað fæst hann á stgr. ??? :D

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 09:40
by SteiniDJ
Þetta eru frábærir bílar í alla staði og þessi virðist ekki vera nein undantekning. 8)

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Tue 15. Sep 2009 22:34
by Wolf
Minni á þennan :P

Hann fór í ástandsskoðun hjá Frumherja á föstudaginn var, sú skoðun leiddi ekkert í ljós nema það sem ég er búinn að nefna sam galla í auglýsingunni.

Allavega gat sá sem vildi endilega láta ástandsskoða bílinn ekki fjármagnað hann, og því vil ég minna á gripinn......


Skoða E46 eða E39 uppí....... og óska eftir staðgreiðslutilboði :o

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sun 27. Sep 2009 17:47
by Wolf
ATH skipti á svipað dýrum 4wd bíl,,,helst touring...

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Thu 08. Oct 2009 22:11
by Wolf
Er til í að skoða X5 , jafnvel dýrari......anyone :?: :alien:

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sun 25. Oct 2009 22:54
by Wolf
Minni á þennan :santa: Óska eftir staðgreiðslutilboði eða u.þ.b 1mkr bíl uppí.... :arrow:

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sat 30. Jan 2010 18:24
by Wolf
Minni á þetta ljúfa eintak af E60,,, hentar einstaklega vel þar sem verðlag á eldsneyti er eins og það er :!: :thup:

--Fæst á mjög góðu STGR verði,,, eða athuga uppítöku.........

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sat 06. Feb 2010 14:10
by DMP
Sæll, viltu skoða Cadillac Escalade og pening... allar uppl. um Caddann eru á síðu Höfðabíla. (svartur,20"króm).
Davíð , 8657660

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sat 06. Feb 2010 18:48
by Wolf
Escalade, hentar ekki.. en takk samt.

Re: BMW 520i E60 12/04

PostPosted: Sun 14. Mar 2010 19:52
by Wolf
Er jafnvel til í að skoða tvo BMW uppí,, þá eins og E39-E46 e-h svoleiðis,,, þá er ég samt ekki að tala um tvo E46 316 "99 og dönn díl... eitthvað "skynsamt" á svipuðu verði. Af gefnu tilefni vil ég taka fram að mig vantar EKKI jeppa, gamla ameríska bíla, fjórhjól krossara, sendiferðabíla og þess háttar bull.

Annars gott STGR, verð.......