Page 1 of 1

- SELDUR - E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Sun 09. Aug 2009 23:45
by gummio
Bíllin er seldur

Til sölu er BMW E34 540i árgerð 1993.

Helstu upplýsingar:
Árgerð: 1993
Keyrður: 187.xxx
Sjálfskiptur
Svört buffalo leðurinnrétting
Dráttarbeisli sem hægt er að taka af
Loftkæling
Sjálfvirk tvívirk miðstöð
Ný frjókornasía
Fjarstýrðar samlæsingar
Velour mottur

Það er ekki topplúga á bílnum.

Í fyrra voru settir nýir bremsudiskar allan hringinn og púðar.

Eftir því sem ég best veit hefur bíllinn aldrei lent í tjóni.

Bíllinn er á 17" BBS style 5 felgum. Dekk á felgum eru Michelin Pilot Sport sem eru hreint út sagt fantagóð akstursdekk.
Breidd á felgum er 8" að framan og 9" að aftan. Framdekk eru 235/45 og eru hálfslitin. Afturdekk eru 255/40 og eru komin niður í slitrendur.

Vetrardekk á original 15" basket weave felgunum fylgja með.

Það er farið að myndast ryð neðst í hurðum. Lakkið á toppinum er slappt og það er sprunga í einu framljósinu.

Bíllinn hefur staðið nokkra mánuði inni í skúr hjá mér en rann athugasemdalaust í gegnum skoðun um daginn.

Íslendingur sem hafði verið búsettur í Lúxemborg tekur þennan bíl heim með sér í ársbyrjun 2004 og setur upp í annan bíl hjá B&L. Ég kaupi bílinn af B&L 2004 og er þriðji eigandi (ef B&L er ekki talið með þ.e.a.s). B&L, Tækniþjónusta bifreiða og nú síðast snillingarnir hjá Eðalbílum, hafa sinnt öllu viðhaldi.

Bíllinn er gríðarlega þéttur í akstri og ekkert sem skröltir. Vegna stækkandi fjölskyldu er maður kominn á einhverja jeppadruslu og þess vegna er bíllinn til sölu.

Ásett verð: 450.000 kr.

ENGIN SKIPTI


Myndir

Image
Image
Image
Image
Image


Hafið samband í ep
-eða-
Sími: 842-3142

Gummi

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Sun 09. Aug 2009 23:46
by arnibjorn
Ég veit nú ekki mikið um E34 en þetta hlýtur að teljast gott verð fyrir 540 :shock:

Væri alveg meira en til í þennan sem daily. :)

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Sun 09. Aug 2009 23:48
by GunniClaessen
eru þetta gamlar myndir?

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 00:13
by saemi
Bara í lagi. Fínt verð og flottur bíll.

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 12:51
by Jón Ragnar
Virkilega fallegur bíll!

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 13:30
by gunnar
Ohhh veskinu langar að koma út að leika núna! :bawl: :aww: :argh:

Re: E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Tue 11. Aug 2009 14:50
by IngiThule
feel your pain :O fallegur kaggi :D

Re: - SELDUR - E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Tue 11. Aug 2009 17:20
by gummio
Þakka áhugann og öll kommentin :)

Bíllin er seldur. Ég veit samt ekki hvort ég á að vera glaður eða dapur :? :)

Re: - SELDUR - E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Tue 11. Aug 2009 20:08
by Mánisnær
Dapur, þú fékkst of lítið fyrir bílinn.

Re: - SELDUR - E34 540i Silfurgrár

PostPosted: Tue 11. Aug 2009 20:32
by iar
gummio wrote:Bíllin er seldur.


Sjúkk!! :lol:

Til hamingju með söluna!