Page 1 of 1

BMW 525iA '92 E34 ((SELDUR))

PostPosted: Mon 03. Aug 2009 22:02
by JónP
Bíllinn minn er til sölu.
Eðalvagn alveg hreint.

Skráningarnúmer: LK143
Fastanúmer: LK143
Verksmiðjunúmer: WBAHD61000BK76088
Tegund: BMW
Undirtegund: 5
Litur: Grár
Fyrst skráður: 18.03.1992
Staða: Í lagi
Næsta aðalskoðun: 01.03.2010

Fékk auðveldlega skoðun um mánaðamótin maí-júní á þessu ári. Var bara sett út á sprungnar ljósaperur. Háa geislann öðru meginn og stefnuljós að aftan.
Ekinn um 196.000
Svart leður, armpúða bílstjórasætisins er samt ekki hægt að festa í hæðarstillingunum. Það þarf eitthvað að kafa þar inn í, líklega eitthvað brotið þarna.
cd spilari
rafmagn í rúðum frammí
Fyrstu 3 árin var þetta bankastjórabíll Landsbankastjóra Sverris Hermannssonar. Á þeim tíma var sjálfskiptingin víst endurnýjuð þegar hann var keyrður um 70.000. Skiptingin í dag er mjög góð, skiptir sér vel og er þægileg í gírana.
Gott að keyra bílinn, tilfinningin er eins og það sé allt í himnalagi, fjaðrar vel og mjúkt að keyra hann, sérstaklega bara á þessum original dekkjum og felgustærð sem hann er á. 15" original felgur. Finnst það langbest. Ég leita meira þæginda en lúkks.
Eitthvað er komið af ryði, þó mest á skottlokinu.
Bensínlokið er eitthvað laust út af brotnu plasti. Það er samt ekkert að detta af,,,nema einhver rífi í það.
Smurbók fylgir og slatti af kvittunum fyrir viðgerðum frá fyrri eigendum.
Gangurinn í honum mætti vera betri...gengur svolítið svona: vrummmmmmvrummmmmvrummmmmmmmm rokkar svona upp og niður en hann er bara svona í hægagangi. Hann er alveg salímjúkur á ferðinni.
Ég skipti um loftflæðiskynjara til að reyna að bæta ganginn, fannst hann batna aðeins við það en mætti alveg gera betur.

Er að fara til útlanda núna 4-15 ágúst.
Set þessa auglýsingu inn núna til þess að menn geti skoðað þetta, velt auglýsingunni fyrir sér og hugsað málið. Ef einhver hefur áhuga er best að senda bara einkapóst. Annars er númerið 848 9852 en ekkert vera að trufla mig við að djamma í útlöndum. Skiljið frekar fyrirspurn og nr ykkar eftir í EP ef þið hafið raunverulegan áhuga og ég hef þá samband eftir að ég kem heim. Stefni á að reyna að selja bílinn fyrir septemberbyrjun. Ástæða sölu er skóli og fáránlega lág námslán.
VERÐ: 260 þús Kassi af Víking í dós fylgir með þessu verði.


Image


Image


Image


Image

Minni á að best er að nota Einkapóstinn. Takk fyrir.

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 22:04
by IngiThule
gætiru nokkuð hent inn myndum af innréttingunni? :D

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Mon 10. Aug 2009 06:36
by JónP
á ekki myndir af henni, eins og er. En hann er grár ad innan med svortu ledri og hurdaspjoldum.

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Wed 12. Aug 2009 01:06
by IngiThule
ég reyni að nota þá ímindunaraflið :santa:

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Fri 28. Aug 2009 22:09
by JónP
Kominn í Reykjavík með bílinn

Þið sem hafið áhuga hafið samband bara. Síminn er 8489852

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Fri 04. Sep 2009 20:51
by JónP
upp

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Sat 05. Sep 2009 14:23
by Róbert-BMW
PM sent...

Re: BMW 525iA '92 E34

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 00:48
by JónP
Bjóðið endilega í bílinn

Re: BMW 525iA '92 E34 ((SELDUR))

PostPosted: Wed 09. Sep 2009 14:20
by JónP
Bíllinn er seldur, takk fyrir sýndan áhuga :)