Page 1 of 1

E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu [SELDUR]

PostPosted: Tue 14. Jul 2009 09:51
by Jóhannes
E46 318 ´98 árgerð
Ekinn 133.000
Silfurlitaður
Sjálfskiptur
Ekkert áhvílandi
Á ársgömlum sumardekkjum, slitin vetradekk fylgja.

Núna rétt eftir að þessi bíll fór í gegnum skoðun, þá náði kærastan að velta honum í Hrútafirðinum :( . Ég hef ekki orku né pening í að gera hann upp svo að það er einfaldast að selja hann. Hliðarspeglarnir eru farnir í frumeindir, það er stór dæld á þakinu og vatnskassinn lekur. Ef það er lagað ætti hann að sleppa í gegnum skoðun, eða ef menn vilja þá er hann tilvalinn til niðurrifs því allt kramið, vél, gírkassi osfrv. er í fínu lagi. Ég keypti hann fyrir 18 mánuðum á 690þús, gerið mér tilboð.

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Tue 14. Jul 2009 11:36
by doddi1
ótryggður?

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 13:09
by einarivars
viltu ekki bara rífa hann ?

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Thu 16. Jul 2009 16:02
by omar94
væri til í mynd :P

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Fri 17. Jul 2009 15:42
by Jóhannes
Bíllinn var ekki í kaskó, og ég er skítblankur. Þessvegna verð ég að selja hann.
Fastanúmer bílsins er pr-469 ef þið viljið fletta honum upp.

Ég veit hreinlega ekkert um hvað er sanngjarnt verð fyrir svona bíl, á ég ekki bara að prófa að segja 318.000 kr fyrst þetta er BMW 318?

Ég hef ekki aðstöðu eða tíma til að rífa hann svo að þessvegna ætla ég bara að selja hann í heilu lagi. Hann er staðsettur fyrir neðan Krókháls 6, hérna eru nokkrar myndir:

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Ég er annars farinn út á land, verð ekki í netsambandi aftur fyrr en eftir helgi...

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Thu 13. Aug 2009 18:19
by Jóhannes
Bíllinn er ennþá óseldur, ég hef ekki náð að sinna þessu fyrr en núna, hafa menn ennþá áhuga?

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Sat 15. Aug 2009 00:16
by bimminn
Hvað villtu minnst fyrir hann?

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Sat 15. Aug 2009 01:09
by sindrib
eru til í skipti?

Re: E46 318 ´98 gangfær tjónabíll til sölu

PostPosted: Wed 19. Aug 2009 16:24
by tommih
ég skal losa þig við hann á 150 þús.