Page 1 of 2

e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 00:40
by Simmi_Þ
hef þennan bíl til sölu ! lítur bara þokkalega vel út. Það virka ALLIR pixlar í mælaborði og þar sdendur að hann sé ekinn 155.xxx km (ég legg ekki höfuðið að veði gagnvart því) annars er ágæt útbúnaðarlýsing og myndir af honum í bíll mánaðarins hér á spjallinu undir (BMW E38 740ia 1995 árgerð) þriðji neðstur í röðinni ! skoða allan bíttibissnes og verðhugmund er 600 þús

s.8663188

með fyrirfram þökk um gáfulegar spurningar og athugasemdir
k.v.Simmi

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 19:13
by sjava
Hvar er linkurinn fyrir bíla mánaðarins? Geturðu sett linkinn inn?

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 21:57
by doddi1
þú hlýtur að geta gert betri auglýsingu :wink:

copy paste á þessa lýsingu

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 22:12
by GunniClaessen
Er það þessi?


http://www.bmwkraftur.is/desember/


Er hann ennþá á BBS felgunum?

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 23:03
by sh4rk
Ég held að Sæmi hafi ekki selt þær með honum þegar hann seldi hann eftir að hann skypti um vél í þessum

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 09:19
by gardara
Ég veit hvar þessar felgur eru 8)

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 12:44
by sjava
ekki loaded :roll:

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 15:39
by kristofervv
atti að vera ep

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 16:05
by sh4rk
Hvað er að bílnum???
Hann er nefnilega með endurskoðun

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 00:03
by Tommi Camaro
Bíll desember mánaðar er BMW 740ia árg. 1995. Þetta er sannkallaður forstjórabíll en í senn er hann sportlegur. Að utan er bíllinn mjög stílhreinn og flottur. Hann er klæddur navarraviolett-metallic lit sem fer honum reglulega vel. Það er búið að skipta öllum upprunalegu stefnuljósunum út fyrir glær sem undirstrika hreinleikann og flottu línurnar.

Skóbúnaðurinn er ekki af verri endanum enda eru 16" Orginal bmw felgur undir honum og utanum þær er vafið Michelin pilot sport gúmmí í stærðinni 225/50/16. Það er einnig búið að setja í hann lækkunargorma sem lækka hann og gera fjöðrunina mjög passlega stífa. Undir húddinu er vélin M60 V8 4.0L og er hún heil 286 hestöfl með K&N síu. Skottlokið er búið skemmtilegum fídus, en það er rafmagns lokun. Það er nóg að leggja lokið bara niður og það lokast sjálfkrafa.

Þegar inn er komið sést að bíllinn er ansi vel búinn. Hann er klæddur leðri sem er í stíl við litinn að utan en það er nefnilega fjólublátt líka. Framsætin eru hituð og rafdrifin með minni sem auðveldar allar stillingar, en tengt því er minni í stýri og speglum. Það eru ekki allt því höfuðpúðarnir á aftursætunum eru líka rafdrifnir. Í loftinu er að sjálfsögðgu rafdrifin topplúga sem opnast í báðar áttir. Bíllinn er búinn allskyns þægindabúnaði eins og PDC (park distance control) sem hjálpar mannig að leggja, ASC spólvörn, rafmagnsmiðstöð, farsíma, aðgerðastýri, hraðastilli og lengi mætti telja. Það er búið að setja Alpine CD magazine sem er tengt með útvarpssendi og er tíðnin stillt á útvarpinu og voila geisladiskurinn spilast í græjunum. Í hurðunum er búið að koma fyrir glás af hólfum sem er gott ef maður ætlar að geyma hluti.

Þegar allt kemur til alls er þetta frábær bíll. Það er rosalega þægilegt að keyra hann enda er hann hinn dæmigerði hraðbrautabíll. Það er ávallt nægilegur kraftur til staðar sama hvar maður er og á hvaða hraða. Ekki skemma góð sæti fyrir og mikill og góður búnaður til að auka þægindin!

Image

Image

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 10:54
by KristoferK
sh4rk wrote:Hvað er að bílnum???
Hann er nefnilega með endurskoðun


Og er hann enn þá jafn getnaðarlegur og hann var fyrir nokkrum árum?

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 20:48
by sh4rk
nei ekki allveg það vantar 18" BBS felgunar þá væri hann perfect og 4,4 vélina

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 22:31
by Leikmaður
Er virkilega enginn búinn að fletta bílnum upp og sjá raunverulegan akstur? :roll:

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 23:29
by saemi
sh4rk wrote:nei ekki allveg það vantar 18" BBS felgunar þá væri hann perfect og 4,4 vélina


Það var aldrei 4.4 vél í þessum ;)

Re: e38 740 1995 loaded !

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 23:29
by saemi
Leikmaður wrote:Er virkilega enginn búinn að fletta bílnum upp og sjá raunverulegan akstur? :roll:


Ert þú búinn að því?

Annars er önnur vél í bílnum, svo það er nú ekki allt að marka það sem stendur á mælinum.