Page 1 of 1

Seldur______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 10:32
by Lunds
_________BMW E39 523ia_________

--------------------------------------------------------------------------------

Til sölu er þessi gullmoli.

BMW 523 ia

Árgerð: 1999

Akstur: 93.000 km

Meðalakstur á ári: um 9300 km

Skoðaður: 2010

Litur: Steingrár (Antrazit Metallic)

Skipting: SSK

Body: Sedan (4dyra)

Litur innréttingar: Svört innrétting og svört leðursæti

Aukabúnaður: Vel hlaðinn bíll og ætla að nefna það helsta:
- Topplúga
- Leður
- Þokuljós framan og aftan
- Loftkæling

Annað: - Bíllinn er á 16" heilsársdekkjum á hrikalegum BMW koppum.
- Mjög flottar 18" BMW felgur fylgja. Þær eru gríðarlega vel farnar og hafa ekki verið undir bílnum í 7 ár.
- Bíllinn er innfluttur notaður árið 2000 minnir mig, ekinn í kringum 10-20 þúsund km þá.
- Sami eigandi síðustu 7 ár.
- Lakk er mjög vel farið miðað við aldur, örfáar Hagkaupsdældir, en ekkert til þess að tala um.
- Innrétting er í frábæru ástandi, engir dauðir pixlar í mælaborði og leðursætin líta vel út.
- Viðhald á bílnum hefur verið mjög gott, B&L og TB hafa þjónustað bílinn.
- Það er svo gott sem ekkert ryð í bílnum, ekkert í skottloki eða í brettum.
- Bíllinn er því miður ekki með geislaspilara, heldur agalega fínum BMW buisness kassette útbúnaði.

Bíllinn er óaðfinnanlegur, þvílíkt heill og þéttur. Eina sem ég gæti sett út á er að það er ekki geislaspilari í honum og hann er frekar "afalegur" í útliti á koppunum, en það mun lagast þegar 18" verða settar undir.

Verð: 1250 þúsund í beinni sölu. Ekkert áhvílandi.
Skoða skipti á ódýrari.

Hafið samband ef það er eitthvað. PM eða bara hringja.
Högni, sími 6908742
Redda myndum sem fyrst.

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 10:51
by Einarsss
- Rafdrifin miðstöð


hvaða lúxus er það eiginlega? ég er með handsnúna

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 13:24
by Lunds
einarsss wrote:
- Rafdrifin miðstöð


hvaða lúxus er það eiginlega? ég er með handsnúna


menn að reita af sér hérna, en allavega er vel flókin miðstöð með aðeins of mörgum stillingum.

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 14:22
by Ívarbj
Myndir :D

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 15:24
by HugiÓmars
einarsss wrote:
- Rafdrifin miðstöð


hvaða lúxus er það eiginlega? ég er með handsnúna


HAHAH

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 15:26
by bErio
Var þetta billinn sem var til sölu á Barnaland?

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 20:20
by siggik1
mátt endilega henda á mig myndum

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 20:24
by Lunds
bErio wrote:Var þetta billinn sem var til sölu á Barnaland?

gæti passað

siggik1 wrote:mátt endilega henda á mig myndum

Set inn myndir á morgun

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Tue 28. Apr 2009 19:53
by batti
Image
Image
Image
Image
Image
Image

hérna eru umræddar myndir

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Tue 28. Apr 2009 20:16
by Aron Fridrik
bara svalur hjá Högna 8)

Re: ______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Wed 29. Apr 2009 22:11
by Lunds
Aron Fridrik wrote:bara svalur hjá Högna 8)

Takk fyrir það Aron

Þessi er seldur!

Re: Seldur______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Wed 29. Apr 2009 22:58
by antonyo
vá hvað hann var ekki lengi að fara :shock:

Re: Seldur______BMW E39 523ia_______

PostPosted: Sat 02. May 2009 00:34
by batti
antonyo wrote:vá hvað hann var ekki lengi að fara :shock:


nei, en góður bíll á fínu verði