Page 1 of 2

BMW 520 bsk E-34 89' til sölu -----seldur------

PostPosted: Mon 09. Mar 2009 19:03
by Jón Bjarni
Ég er með einn slíkan til sölu
Þettar er semsagt 89 árgerð af 520 E-34 sem var sjálfskiptur en skúra-bjarki sett í hann beinskiptingu.
Það er topplúga, Læst drif og plussáklæði sem er aðeins farið að sjá á.

Það er búið að gera slatta fyrir bílinn en það þarf að gera aðeins meira

Fyrri eigendur gerðu:
nýtt í pústi og nýtt í öllum bremsum. demparapúði o.fl. nýlega ventlastilltu

skipti um ballansstangar tengi, stýrisenda og púst upphengju í mars 2008. skipt var um dempara og gorma að aftan ásamt millibilstöng í apríl 2008. skipt var um alla klossa diska og handbremsuborða, demparapúða og öxulhosu og settunýr rafgeymir í október 2007.

Ég hef gert:
Skipt um mest allt sem eftir var að skipta um í framhólabúnaði og hjólastillt hann.
Skipt um bensídælu (ekki ný, fékk hana úr öðrum bíl)

Það sem þarf að gera til að fá skoðun: (hann er mað endurskoðun 3)

Hann lekur bensíni, ég veit ekki hvað hann lekur.
Lyggur út í bremsur hægra megin að aftan.
Nýjar rúðuþurkur
og eitthvað smotterí enn sem ég man ekki.

Annað sem er að:
Það eru ótengdar samæsingar í afturhurðum og sílendirinn á bílstjórahurðinni er ónýtur.
Það er smá ógangur í vélinni.
Startarinn er orðinn slappur, Bendexinn skýst eitthvað aðeins vitlaust út.
hanskahólfið er læst fast.

Það er slatti af nótum í hanskahólfinu fyrir hinu og þessu sem var gert við bílinn áður en ég eignast hann.

það fylgja 2 heil sett af felgum, það eru dekk á öllum nema 2, en eitt dekkið er ónýtt og annað sem lekur..
þannig að það eru eiginlega bara þessi 4 undir bílnum sem eru heil.

nokkrar myndir
Image
Image
Image
Image
Image

Þar sem ég hef ekki aðstöðu til að gera við hann þá vantar mig að losna við hann
Ásett verð verður 100þ
Ég skoða skipti á ýmsu.. en mig langar ekki í annan bíl
Ég skoða öll tilboð.

Það er hægt að ná í mig í PM, email eða síma.
Email - Flappinn@simnet.is
Sími - 847-3217

Kv
Jón Bjarni

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 23:21
by Jón Bjarni
vantar að losna við hann
tilboð 70Þ

(ef þig vantar læst drif og nokkra varahluti í e-34 með þá færðu 15þ fyrir að henda honum :lol: )

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Sat 14. Mar 2009 11:58
by Jón Ragnar
Damn vantar þessa læsingu :shock:

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Sat 14. Mar 2009 13:14
by ingo_GT
Jón Ragnar wrote:Damn vantar þessa læsingu :shock:


Spurning hver verður á undan að kaupa þennan mér vantar svona líka :)

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Sat 14. Mar 2009 14:09
by Jón Bjarni
þá er um að gera og hringja 8473217

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Sat 14. Mar 2009 19:26
by birkire
Þessi læsing virkaði rosalega vel fyrir ári síðan.. looking back finnst mér ótrúlegt að þessi 520 hafi náð að mökka í hringi með 5 manns í bílnum :lol:

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Sat 14. Mar 2009 21:05
by Grétar G.
passar þetta drif eða læsing í E30 stóra drifið ?

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Tue 17. Mar 2009 15:43
by Jón Bjarni
til sölu út þessa viku.. annars geri ég við hann

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 14:00
by diddilitli
skipti á polaris indy 500 92

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 14:43
by Jón Bjarni
áttu mynd?

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 15:35
by Bandit79
"Það er smá ógangur í vélinni."

Hvernig er hægt að lýsa því ? er þetta lausagangurinn eða þegar hún er á snúningum í keyrslu ?

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 16:01
by Jón Bjarni
þetta er í lausagangi

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 16:28
by jens
Hvaða hlutfall er í drifinu.

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Mon 23. Mar 2009 16:36
by Jón Bjarni
ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd.. en annar gír endar í um 90 km hraða ef það hjálpar eitthvað

Re: BMW 520 bsk E-34 89' til sölu

PostPosted: Tue 24. Mar 2009 11:26
by Axel Jóhann
Flappinn wrote:ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd.. en annar gír endar í um 90 km hraða ef það hjálpar eitthvað



Eflaust 3,73 eða 3,64