bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 750iL ´92 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=325 |
Page 1 of 1 |
Author: | basten [ Sat 16. Nov 2002 04:59 ] |
Post subject: | BMW 750iL ´92 |
Bimminn minn er til sölu. Um er að ræða 750iL V12 ´92 Shadowline ekinn 182 þús. Bíllinn er nánast eins hlaðinn af aukabúnaði og hægt er, t.d. topplúga, buffalaleður á öllu, aksturstölva, gardínur. Hann er dökkfjólublár á litinn (original). Bíllinn er á ekkert sérstaklega fallegum BMW 15" álfelgum, en hægt er að láta fallegar 16,5" BMW felgur á dekkjum fylgja með ef hagstæðir samningar nást. Nýbúið er að taka bæði vél og skiptingu í gegn (gert af fagmanni sem lærði hjá BMW í Germany) og skipta um nánast allar pakkningar í vélinni og skipt um allt innvolsið í skiptingunni. Skipta þarf um dempara í bílnum sem og gormana að aftan, en ég gæti látið gera það áður en bíllinn yrði seldur. Lítilsháttar skemmd er í hurðaspjaldi innanverðu á vinstri afturhurð (eftir schäfer hundinn minn) en ég ætla að láta laga skemmdina hjá bólstrara. Ég er tilbúinn til að skoða flest skipti en ásett verð er ca. 1400 þús, lækkar helling við staðgreiðslu. (væri alveg til í BMW stationbíl) |
Author: | GHR [ Sat 16. Nov 2002 11:31 ] |
Post subject: | |
Endlilega pósta mynd af glæsivagninum (ef þú átt) ![]() Fyrst þú átt IL(Long weelbase) týpu, er það ekki rétt hjá mér að hún sé 4" lengri en venjulega??? |
Author: | Bjarki [ Sat 16. Nov 2002 17:06 ] |
Post subject: | |
Stóð þessi bíll á Bílasölu Guðfinns? |
Author: | basten [ Sat 16. Nov 2002 23:20 ] |
Post subject: | |
Jú hann er 11 sm lengri en venjulega týpan. Ætla að reyna senda mynd af honum fljótlega inn á netið. Þessi bíll er ekki á neinni bílasölu og hefur heldur ekki verið mikið á bílasölunum. Ég gleymdi að taka það fram í auglýsingunni að hann er með nýja bremsudiska og klossa allan hringinn (kostaði ca. 60 þús). |
Author: | GHR [ Thu 21. Nov 2002 12:18 ] |
Post subject: | |
Hvernig er þetta með 750 bílanna, komu eittverjar týpur með Shadowline eða er fólk bara búið að kaupa svona lista eða mála þá? |
Author: | basten [ Thu 21. Nov 2002 15:43 ] |
Post subject: | |
Þeir eru til einhverjir Shadowline (þ.e. ekkert króm nema í grillinu). Þessi er "original" Shadowline. Annars hef ég ekki heyrt um það að menn séu að mála listana, en það er víst allt til í þessu. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |