bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

323i coupé
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=3139
Page 1 of 2

Author:  jonthor [ Wed 22. Oct 2003 19:53 ]
Post subject:  323i coupé

Sælir - 323i coupé til sölu

Vill bara minna á að þessi elska er ennþá til sölu og fæst fyrir 1200k á borðið vegna þess að ég er fluttur til frakklands og þarf að selja hann. hann er skráður 27.03.1996 og innfluttur 1999. Ég keypti bílinn af þeim sem flutti hann inn. Bíllinn er allur eins og nýr og er ekinn 127k. Á myndunum sést ekki innanrýmið en það er einnig eins og nýtt. helstu aukahlutir eru sportsæti (svört), leðurstýri, vetrarpakki og sóllúga. Ég verslaði á hann hvít ljós og tók hann allan í geng, eyddi um 130k í hann, kvittanir fylgja. Nýyfirfarinn af B&L - toppeintak.

<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-1.JPG">
<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-2.JPG">
<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-3.JPG">
<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-4.JPG">
<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-6.JPG">
<img src="http://www.jonthor.com/bmw/323ic-7.JPG">

Ég verð á íslandi 24 okt - 2 nóv. Þeir sem hafa áhuga á að prófa hringja í mig í síma 8959242, ég opna símann flótlega eftir að ég kem heim.

Kveðjur frá frakklandi
JÞS

Author:  Logi [ Wed 22. Oct 2003 21:31 ]
Post subject: 

Mér finnst þessi bíll alveg ótrúlega fallegur, svo stílhreinn eitthvað. Verst að maður hefur ekki efni á að eiga 2 bíla!!!!

Author:  Gunni [ Wed 22. Oct 2003 21:42 ]
Post subject: 

Stendur hann ekki inní á bílasölu rvk ?? Ef þetta er hann þá vill ég bara benda þér á eitt jón þór að þetta eru ekki sportsæti ;)

Author:  jonthor [ Wed 22. Oct 2003 21:49 ]
Post subject: 

Jú hann er einmitt á bílasölu reykjavíkur, ég sæki hann á föstudaginn. Ég stóð í þeirri merkingu að þetta væru sportsæti. Þetta eru allavega ekki venjulegu sætin sem eru í mörgum bmw, þessi eru með hliðarstuðningi og úr allt öðru efni. Kannski heitir það eitthvað annað? Allavega þá er bíllinn til sölu og verðið er mjög gott. Ég keypti hann á 1400k eins og ég hef minnst á áður. Ég var búinn að leita lengi að góðu eintaki og prófaði mjög marga bíla. Það var augljóst þegar ég prófaði þennan að það var búið að fara ótrúlega vel með hann. Enda bara konur átt hann á undan mér :)

Author:  Haffi [ Mon 27. Oct 2003 18:32 ]
Post subject: 

Ég get staðfest það að þessi bíll er 105% í ALLA STAÐI !¨
Og þetta er einn besti 3 línu BMW sem ég hef keyrt ef ekki sá besti.
ég er bara :shock: :shock: :shock: :shock: :shock:

Author:  Kull [ Mon 27. Oct 2003 19:18 ]
Post subject: 

Fáðu lán einhversstaðar og kauptu gripinn :)

Author:  fart [ Mon 27. Oct 2003 22:19 ]
Post subject: 

Mig langar í þennan bíl sem 2. car.

Sé hann fyrir mér með 18" M5 felgunum mínum. :roll:

Author:  jonthor [ Tue 28. Oct 2003 14:03 ]
Post subject: 

til að ná í einhvern út af bílnum er best að hringja í foreldra mína í 8969759 eða 8633183

eða senda mér póst

kv.
JÞS

Author:  jonthor [ Tue 04. Nov 2003 19:37 ]
Post subject:  Hætti við

Strákurinn sem ætlaði að kaupa bílinn hætti við. Bíllinn er því enn til sölu, fæst á 1200k á borðið.

kv.
JÞS

Author:  jonthor [ Fri 21. Nov 2003 14:56 ]
Post subject:  Bíllinn farinn í skip til frakklands

jæja, það er hrikalegt að selja í dag. Ég ætla ekki að gefa bílinn svo hann er kominn í skip og er á leiðinni til mín. Hlakka auðvitað mest til að sjá elskuna aftur. Bíllinn er sem sagt ekki lengur til sölu.

kv.
JÞS

Author:  hlynurst [ Fri 21. Nov 2003 15:02 ]
Post subject: 

Góður! Það verður ekki leiðinlegt að krúsa á þessum á hraðbrautunum þarna í frakklandi sem ég hef heyrt að séu góðar. Have fun! :wink:

Author:  saemi [ Fri 21. Nov 2003 15:08 ]
Post subject: 

Þetta var lagið.

Bara fá hann til sín 8)

Miklu betra en að selja

Author:  Gunni [ Fri 21. Nov 2003 15:10 ]
Post subject: 

Miklu betra :) Annars fer greinilega soldið eftir því hvað er verið að selja. Ég seldi 318 bílinn sama dag og ég auglýsti hann! Auglýsingarnar gömlu fyrir DV voru ekkert að plata sko ;)

Author:  jonthor [ Fri 21. Nov 2003 15:23 ]
Post subject: 

já ég held að það sé bara alltaf erfitt að selja fyrir cash ef það er meira en milljón, virðist vera einhver barrier þar.

It's all good, ef ég hefði selt hann hefði ég líklega keypt mér einhverja franska púddu sem hefði verið hundleiðinlegt að ferðast í :D

Author:  bebecar [ Fri 21. Nov 2003 15:47 ]
Post subject: 

Ég get náttúrulega staðfest það að það er nánast vonlaust að selja eldri bíla í þessum verðflokki cash...

Maður fær eintóm tilboð með hestum, Camaro, Trans Am og vélsleðum... Afhverju bauð mér engin mótorhjól :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/