Page 1 of 1

E39 530d -Seldur

PostPosted: Mon 28. Jul 2008 22:05
by Kull
Fyrst maður er búinn að kaupa M5 þá er best að leyfa öðrum að njóta dísel power!

Bíllinn er fyrst skráður 22.09.2000 og var fluttur inn af B&L. Ég er þriðji eigandi.

Helsu upplýsingar:

Vél: 2926cc línu sexa með 184 hestöfl og 390 NM tog.
Litur: Cosmosschwarz Metallic
Ekinn: 138 þús
Skipting: 5 gíra beinskipting

Helstu aukahlutir:

Svart leður
Gler topplúga
Þokuljós
Loftkæling
Spólvörn
Aðgerðastýri
Cruise control
Business CD
18" original M5 felgur á góðum dekkjum
Facelift pakki, ljósin framan og aftan, original Hella

Ég er auðvitað búinn að framkvæma ýmislegt viðhald á þessum þremur árum sem ég hef átt hann og skipt um t.d. glóðakerti, báðar eldsneytisdælur, diska og klossa framan og aftan, knastásskynjara og ýmislegt fleira. Ég fór með hann í InspectionII í B&L síðasta vetur.

Þetta er mjög fínn bíll, rosalega góð blanda af miklu afli en lítilli eyðslu. Eyðslan er einungis 8-9L innanbæjar en fer í 5-6 úti á vegum.

Ásett verð er 1990 þús sem er nokkuð gott miðað við það sem er sett á flesta.
Það er ekkert áhvílandi en sjálfsagt hægt að fá eitthvað lán hjá lánastofnunum ef menn vilja.
Ég vil helst ekki skipti en þá bara ódýrari auðseljanlega bíla.
Mjög gott staðgreiðsluverð!

Hægt að hafa samband með PM, pósti á gunni(hja)isl.is eða í síma 861-4028.

Image

Image

Image

Image

PostPosted: Mon 28. Jul 2008 23:56
by Djofullinn
Djöfull lýst mér á uppfærsluna 8)

PostPosted: Tue 29. Jul 2008 14:49
by jonthor
Ég get vottað að þetta er algjört eðal eintak og búið að hugsa vel um hann síðustu þrjú ár!

Líka einn af mjög fáum beinskiptum 530d á landinu.

PostPosted: Tue 12. Aug 2008 18:47
by Kull
Þessi er enn á lausu, hef ekkert verið í bænum en mun væntanlega færa bílinn á bílasölu í vikunni.

PostPosted: Thu 21. Aug 2008 14:01
by Kull
Bíllinn er kominn á sölu hjá Nýju bílahöllini uppá höfða.

PostPosted: Thu 21. Aug 2008 16:25
by Angelic0-
jonthor wrote:Ég get vottað að þetta er algjört eðal eintak og búið að hugsa vel um hann síðustu þrjú ár!

Líka einn af mjög fáum beinskiptum 530d á landinu.


Mjög slæm alhæfing þetta :!:

En fallegur bíll og vonandi selst þetta fljótlega ;)

PostPosted: Fri 22. Aug 2008 11:06
by jonthor
Angelic0- wrote:
jonthor wrote:Ég get vottað að þetta er algjört eðal eintak og búið að hugsa vel um hann síðustu þrjú ár!

Líka einn af mjög fáum beinskiptum 530d á landinu.


Mjög slæm alhæfing þetta :!:

En fallegur bíll og vonandi selst þetta fljótlega ;)


Nú, afsakið. Getur verið að ég hafi rangt fyrir mér. Ég hélt að það væri staðreynd.

PostPosted: Fri 22. Aug 2008 19:34
by Alpina
Ekki margir E39 bsk 530d hérlendis

PostPosted: Sat 23. Aug 2008 00:03
by ///MR HUNG
Angelic0- wrote:
jonthor wrote:Ég get vottað að þetta er algjört eðal eintak og búið að hugsa vel um hann síðustu þrjú ár!

Líka einn af mjög fáum beinskiptum 530d á landinu.


Mjög slæm alhæfing þetta :!:
En fallegur bíll og vonandi selst þetta fljótlega ;)
:?:

PostPosted: Thu 28. Aug 2008 21:31
by Kull
Góðir bílar fara fljótt, þessi er seldur! :)

PostPosted: Thu 28. Aug 2008 22:05
by Benzer
Tók mánuð uppá dag :D

PostPosted: Fri 29. Aug 2008 12:15
by ömmudriver
Til lukku með söluna !!

Er hann enn innan klúbbsins ??

PostPosted: Fri 29. Aug 2008 13:26
by Kull
Held að hann sé ekki í klúbbnum, en bíllinn fór allavega útá land veit ég.

PostPosted: Sat 30. Aug 2008 01:53
by ömmudriver
Kull wrote:Held að hann sé ekki í klúbbnum, en bíllinn fór allavega útá land veit ég.


Nú jæja, þá kannski sleppur hann við salt ógeðið í vetur :)

PostPosted: Sun 31. Aug 2008 00:42
by jonthor
Til hamingju með söluna!