Page 1 of 3

SELDUR E34 525iA

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 22:47
by saemi
Til sölu er 525iA E34 1993 árgerð.



Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image



Image

Image

Image

Image

Image

Bíllinn er ekinn c.a. 247þús km.

Eins og flestir vita þá er þessi vél 24ventla 192hö. Snilldarvélar.

Bifreiðin er sjálfskipt svo það fari ekki á milli mála.

Hann er með svartri comfort leðurinnréttingu. Rafmagnsfærsla í framsætum og hiti í þeim.

Cruise control
Airbag leðurstýri
Stóra tölvan
Topplúga
Samlæsingar
Rafmagn í framrúðum
Rafstýrð sóllúga
Hæðarstilling á framljósum (virkar meira að segja)
EKKI læst drif :(

17" "Rondell" felgur með dekkjum (Bridgestone minnir mig) sem eru svo til ný. Allar felgur ókantaðar, beinar og líta ágætlega út.

Nýskoðaður

Þessi bíll var innfluttur árið 1997. Ég keypti bílinn fyrir um 2 mánuðum síðan. Hann hafði þá staðið í rúmt ár. Bíllinn lenti í framtjóni og ég setti á hann húdd, ljós, grill og framstuðara. Ásamt því að skipta um hitt og þetta smálegt. Setti einnig í hann svarta leðurinnréttingu (það var búið að ræna innréttingunni úr honum).

Það skal viðurkennast strax að þessi bíll hefur lent í framtjóni eins og áður sagði og vegna þess þá passa ekki allar línur 100% að framan (húdd bretti og framstykki). Það er ekkert ljótt að sjá að framan í grindinni, en þó hefur bitinn fremst gengið aðeins til. Ég hef ekki gefið mér tíma í að stilla þetta af, það er eflaust hægt að ná þessu betur með smá tíma og fyrirhöfn. Ég átti boddíhluti í sama lit og með þessum V8 framenda (þetta kom af 540i bíl).

Bíllinn er ótrúlega þéttur, samlæsingar í 100% lagi, engin villuboð, cruisið, rúðurnar, sætin og lúgan virka, ekkert bull í gangi.

Búið er að leggja fyrir magnara og setja öflugri nýrri hátalara í bílinn sem eru með nýjum lögnum í.

Við skúra Bjarki erum að klára bílinn, smotterí eftir.

Þetta er mjög snyrtilegur og "clean" bíll. Lakkið gott, svo til ekkert ryð í bílnum.


LÆKKAÐ VERÐ: 350.000.- stgr. Þar sem gott væri að losna við gripinn sem fyrst

Hægt að fá hann ódýrari með 15" felgum, þá er verðið 270þús!

Það má semja um að láta með honum 500W magnara, keilu og Pioneer MP3 spilara með fjarstýringu með fyrir rétt verð.

Sæmi 699-2268 / smu@islandia.is

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 23:10
by íbbi_
úúú..

ég væri til í þennan sem snattara.. eru þetta sjöusæti?

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 23:13
by saemi
íbbi_ wrote:úúú..

ég væri til í þennan sem snattara.. eru þetta sjöusæti?


Jebb, kemur úr sjöu.

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 23:19
by íbbi_
kannski úr svörtum 730?

fallegur á þessum felgum, mjög myndarlegur E34 finnst mér

PostPosted: Thu 19. Jun 2008 23:19
by gardara
Huggulegur! :shock:

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 00:00
by Elnino
skítt með bílinn, mig langar í þessar felgur :!: :drool:

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 00:11
by saemi
Þess má geta að felgurnar (og dekkin) eru falar fyrir 100 kall.

PostPosted: Fri 20. Jun 2008 12:02
by saemi
Er farinn úr bænum, kem á sunnudag! Bíllinn stendur samt í Reykjavík og hægt að kíkja á hann yfir helgina til að skoða.

PostPosted: Sat 21. Jun 2008 08:34
by xripton
hvar færðu alla þessu æðislegu bíla :shock:

PostPosted: Mon 23. Jun 2008 20:45
by saemi
xripton wrote:hvar færðu alla þessu æðislegu bíla :shock:


Ég fæ þá hálf bæklaða og massa þá til sjálfur :D

PostPosted: Tue 24. Jun 2008 21:09
by saemi
TTT

PostPosted: Wed 25. Jun 2008 19:17
by saemi
LÆKKAÐ VERÐ, 399,000.- Þar sem gott væri að losna við gripinn sem fyrst.

PostPosted: Wed 25. Jun 2008 23:09
by Ásgeir
Mmm, væri til í þennan. Viltu ekki fá e34 touring í staðin ;)

PostPosted: Wed 25. Jun 2008 23:42
by saemi
Ásgeir wrote:Mmm, væri til í þennan. Viltu ekki fá e34 touring í staðin ;)


Ég á bara touring líka... eiginlega alveg eins og þinn :lol:

PostPosted: Sun 29. Jun 2008 18:36
by siggik1
héllt að þessi væri selldur um helgina þegar ég sá hann í kóp, lýtur einstaklega vel út að utan, fyrir utan smá misræmi á framstuðara