bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW 525ia 92'
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=28907
Page 1 of 1

Author:  GummiMorall [ Sat 19. Apr 2008 16:58 ]
Post subject:  BMW 525ia 92'

Til sölu er BMW 525ia árgerð 92'
keyrður 350.000 km og í frábæru ásigkomulagi!!! óslitinn bíll!
bíllinn er hvítur og er lakkið í fínu ásigkomulagi enda var bíllinn sprautaður fyrir að mig minnir 3 árum, sjálfskiptur með spólvörn, economy og s stilingum,

hann er á nýjum 15" sumardekkjum á stálfelgum með koppa, það er rafdrifin tvívirk topplúga í honum, rafmagn í rúðum frammí, hiti í sætum, blá innrétting og pluss áklæði á sætum, í þessum bíl er stóra aksturstalvan, dökkar filmur afturí.

hann er ekki á númerum einsog er, var nýskoðaður þegar það fór í honum vatnsdæla og bíllinn ofhitnaði svo það kom sprunga í heddið, en af þessum sökum er búið að setja í hann NÝTT HEDD, nýja vatnsdælu, nýjan vatnslás, nýjan vatnskassa og var vélin skoðuð í leiðinni þegar þetta var opnað og það leit allt út einsog NÝTT inní henni, enda hefur þessi bíll aldrei brennt smur eða neinu þessháttar, ávallt smurður með mobil1 síðan núverandi eigandi eignaðist hann en hann keypti bílinn í 190.000 kílmómetrum, bíllinn verður settur á númer eftir helgi og farið með hann í skoðun og þa verður hann til sölu! einnig eru í bílnum nýlegir gormar og demparar að aftan.

ekkert áhvílandi, og ásett verð er kr 450.000

Viðar Guðmundsson s:6966937


ég er ekki eigandi svo vinsamlegast hafið samband við Viðar!

öll óþarfa komment vinsamlegast afþökkuð


Image
Image
Image
Image

Author:  gunnar [ Sat 19. Apr 2008 18:26 ]
Post subject: 

Var keypt glænýtt hedd ?

Author:  saemi [ Sat 19. Apr 2008 19:10 ]
Post subject: 

Hvernig getur bíll sem er ekinn 350 þúsund km verið óslitinn?

Author:  ömmudriver [ Sat 19. Apr 2008 19:21 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Hvernig getur bíll sem er ekinn 350 þúsund km verið óslitinn?


Kannski af því að það er búið að hugsa vel um hann ?!

Author:  Alpina [ Sat 19. Apr 2008 19:38 ]
Post subject: 

Lítur vel út..

Author:  spear [ Sat 19. Apr 2008 20:40 ]
Post subject: 

450 þúsund fyrir ´92 ekinn 350 þús ???? er búið að uppfæra verðið vegna gengislækkunar....... En annars fallegur bíll og góð auglýsing.

Author:  Angelic0- [ Sat 19. Apr 2008 20:42 ]
Post subject: 

Fallegur bíll, sé ekkert að verðlagningunni ef að um algjöran mola er að ræða....

Annars er þetta auðvitað alveg pínu of hátt :lol:

Author:  GummiMorall [ Sun 20. Apr 2008 03:17 ]
Post subject: 

óslitinn, já, auðvitað er kanski óþarfi að ´fólk taki þetta gjörsamlega bókstaflega en hann er mjög þéttur og flottur og finnur ekki fyrir því að hann sé keyrður svona mikið!! þó mér finnist þetta ekki mikið á bmw þá hefur fólk nú alveg átt japanskt og smitast af að sjá yfir 200.000 bakteríunni sem einhverju útúrkeyrðu drasli, en með verðið, bíllinn er góður! reyndar mjög góður að mínu mati! auðvitað er mönnum velkomið að ræða verðið við eigandann, sjálfsagt má bjóða þetta eitthvað niður án þess þó að ég viti eitthvað um það fyrir víst, endilega spjallið við hann ef þið hafið áhuga :wink: held allaveganna að enginn verði vonsvikinn með þennann! 8)

p.s. gengi hefur ekkert með verðið að gera :wink: :lol:

Author:  Angelic0- [ Sun 20. Apr 2008 17:20 ]
Post subject: 

Þetta er auðvitað engin spólgræja og því alls ekki bíll fyrir einhver spólóðan einstakling til þess að kaupa... taka verður mið af því að bíllinn er ekinn þetta mikið :!:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/