bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

316i e30 - Fullkominn í swap, heillegt boddy
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=28402
Page 1 of 1

Author:  flatbeat [ Sat 29. Mar 2008 22:36 ]
Post subject:  316i e30 - Fullkominn í swap, heillegt boddy

Ætla að athuga áhuga, er að gæla við hugmyndina um að fá mér eitthvað sem er með aðeins meira undir húddinu þar sem ég er ekki fátækur námsmaður lengur í bili :lol:

Hér er ég með gullfallegt eintak af bláum (Gletscherblau Metallic) 1990 módel af 316i e30. Tveir eða þrír eigendur á undan mér, allt fólk á miðjum eða gömlum aldri. Var bíllinn keyrður um 145þús þegar ég fékk hann í hendurnar, er núna keyrður rétt rúma 150þús km. Mælaborð sýnir tæpa 210þús km, en það er vegna þess að ég skipti út original mælaborðinu sem var með klukku í stað snúningsmælis og fékk það núverandi frá Valla Fudd 8) Á ennþá original mælaborðið.

Ég hef farið með þennan bíl eins og hann væri barnið mitt; mesta sem ég hef þjösnast á honum var að slæda niðri á sundahöfn í hálkunni í örfá skipti (tímdi því ekki oftar :lol:)

Tvær smurbækur fylgja sem sýna smurningar bílsins frá upphafi, flestar stimplaðar af B&L.

Síðasta smurning var fyrir um 4þús km síðan.

Þykk og djúsí mappa sem inniheldur aragrúa af allskonar nótum fyrir hinu og þessu sem gert hefur verið við bílinn, held að elsta nótan sé frá 1995 eða fyrr. Einnig flest ef ekki öll skoðunarvottorð frá 1995.

Boddý er mjög heillegt og mjög lítið um ryð. Flest allt ryðið er yfirborðsryð sem massa mætti í burtu. Eina alvarlega ryðið er undir vinstri sílsanum, og er það um 3cm vítt gat. Þó er ekkert mál að sjóða í það þar sem yfirborðið er slétt og fínt.

Innréttingin í bílnum er einnig mjög heilleg. Dökkblár vínill í hurðarspjöldum, grátt tau í sætum. Smá slit vinstra megin á bílstjórasætinu, en það er ofurlítið.

Features:
-Rafdrifnar framrúður
-Samlæsing
-Original 14" Basketweaves 8) (Og fæ kannski miðjur bráðlega frá okkar kæra spjallmeðlim bimma_frík)

Það sem er nýtt og nýlegt:
-Soggreinapakkning
-Pústkerfi
-Bensíntankur
-Bensíndæla
-Hægri framljósalukt
-Nýjir hjólaleguhöbbar báðum megin framan

Með fylgja nýleg sumardekk og ný nagladekk (keypt rétt fyrir jól).

Fór með bílinn í skoðun fyrir nokkrum dögum og fékk endurskoðun út á hjólalegur að framan, spindilkúlu vinstra megin að framan og bremsurör að framan. Fer ég með bílinn á verkstæði eftir helgi (útborgun) og verður allt þetta lagað. Fyrir utan þessa þrjá hluti er bíllinn, að sögn skoðunarkallsins, fullkominn :lol:

--Búinn að skipta um hjólaleguhöbba báðum megin :)

Það sem gera þarf:
-Það sem nefnt var fyrir ofan
-Skipta um gírkassafóðringar (Gírstöng er mjög laus. Þó er ekkert mál að finna gírana)
-Laga ryðið í sílsanum og pússa eða massa burt ryðbletti hér og þar.
-Í langvarandi blautverði kemur upp dularfullur raki innfyrir hægra framljós, einhver þétting líklegast farin.
-Laga skránna á bílstjórahurðinni, líklegast brotinn cýlinder. Samlæsing virkar farþegamegin frá 8)
-Mótorinn fyrir rafmagnsrúður frammí tregur. Rúður fara alltaf upp og niður en hægt og brösulega.
-Klossaljósið logar öðru hvoru í mælaborðinu. Grunar að það sé lóðningarvandamál í mælaborðinu þar sem þetta byrjaði þegar ég skipti úr gamla.
-Miðstöðin er í svolitlu rugli. Virkar fínt en kemur væl frá dælunni þegar það er stillt á hita. Einnig ískrar stundum svolítið í henni á lágum blæstri.
-Stærri vél :lol:

Eins og sagði fyrr, þá er ég á leiðinni með bílinn á verkstæði og gæti látið redda einhverjum af þessum smotterísgöllum í leiðinni. Update-a þráðinn eftir því sem við á 8)

Í skottinu eru tvær 800w Boss keilur í boxi sem sérsmíðað er í skottið á e30. Áfastur er einn 2600w 2-rása magnari frá Power Acoustik sem keyrir keilurnar og síðan einn 1000w 4-rása magnari frá American Pro sem keyrir hátalara í bílnum. Getur allt keila klabbið fylgt með fyrir rétt verð 8)

Ég svara PM, ég svara á þræðinum og ég svara í símann eftir kl 7 á virkum dögum, eftir kl 5 á laugardögum og allan daginn sunnudaga (6900049).

Bíllinn mun seljast með nýjum hjólalegum að framan, nýrri spindilkúlu framan vinstra megin og nýjum bremsurörum að framan. Læt ekki bílinn frá mér fyrr en '09 miði er kominn á hann :lol:

Ég óska eftir tilboðum í bílinn. Fullkominn bíll í swap (hverjum langar ekki í 4-door 325 :D), eða þá fátæka námsmanninn sem dauðlangar að eiga BMW :lol: Ég skoða líka skipti.

Hægt að skoða upprunanlega gallery þráðinn hérna: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... highlight=

Myndir eru síðan í janúar, bíllinn kominn með apríl endurskoðun núna, framljósaþurrkurnar eru farnar og komið svart original lip undir framsvuntuna. Annars er bíllinn nákvæmlega eins 8)

Ef þess er óskað er lítið mál að smella nokkrum nýjum myndum af honum :)

Síðan eru hérna nokkrar myndir frá því að ég keypti hann (Búinn að þrífa felgurnar síðan þá, þær eru ekki alveg jafn dökkar núna :oops:)

Image
Image
Image
Image

Author:  Tonisig [ Sat 05. Apr 2008 04:09 ]
Post subject: 

verð i pm?

Author:  saemi [ Sat 05. Apr 2008 09:15 ]
Post subject: 

Tonisig wrote:
verð i pm?


Settu frekar verðið inn í auglýsinguna, mikið betra að hafa það þar :wink:

Author:  Spratz [ Sat 05. Apr 2008 18:45 ]
Post subject: 

Hvað er verðið á þessum ?

Author:  ömmudriver [ Sat 05. Apr 2008 18:50 ]
Post subject: 

Góður efniviður í þessum bíl :)

Author:  elli [ Sat 05. Apr 2008 19:10 ]
Post subject: 

Ég á helvíti góðan "donor" í þennan.

Author:  Jónas [ Sun 06. Apr 2008 15:58 ]
Post subject: 

"Svona 200þús væri ég sáttur með eftir að hafa hent honum á verkstæði að laga legur, spindil og rör Cool"

Author:  Angelic0- [ Sun 06. Apr 2008 16:41 ]
Post subject: 

Jónas wrote:
"Svona 200þús væri ég sáttur með eftir að hafa hent honum á verkstæði að laga legur, spindil og rör Cool"


200 þús fyrir 316i :?:

Eru menn að missa sig í E30 verðlagningunni :?:

Author:  Mazi! [ Sun 06. Apr 2008 18:47 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Jónas wrote:
"Svona 200þús væri ég sáttur með eftir að hafa hent honum á verkstæði að laga legur, spindil og rör Cool"


200 þús fyrir 316i :?:

Eru menn að missa sig í E30 verðlagningunni :?:


reyndar er þetta rosalega heill bíll, hef setið í honum nokkrum sinnum, og plús það að hann mun laga allt sem þarf að laga í honum fyrir afhendingu

Samt finnst mér 200 þús alveg max! það er satt!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/