Page 1 of 1

530iA '93 V8 til sölu. - Seldur

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 21:51
by Joolli
Sælir

Um er að ræða: BMW 530iA
Árgerð: '93
Vél: M60b30 vél eða 3.0L V8 32v 218Hö
Keyrður: 230.xxx KM
Litur: DiamondSchwartz Metallic eða dökkgrá-sanseraður?

Sjáum hvort ég muni það sem hann inniheldur:
    - 5 Gíra sjálfskipting með Sport, Economic og Vetrar stillingum
    - Topplúga
    - ABS
    - Armpúðar
    - Gardína í afturrúðu
    - Airbag
    - Orginal BMW CD spilari
    - Hiti í sætum
    - Leðurklæddur (Í góðu ástandi)
    - Rafmagn í öllum rúðum, speglum og topplúgu.
    - 17" Álfelgur með ágætis sumardekkjum
    - 15" Álfelgur með ágætis vetrardekkjum
    - Viðarinnrétting
    - Gataðir og skornir diskar (Race diskar?)
    - Fjarstýrð samlæsing
    - GSM Sími :lol:
    - Einhversskonar þjófavörn
    - Ræsivörn
    - Þokuljós/kastarar


Bíllinn er almennt í góðu ástandi mjög þéttur og góður í akstri, sjálfskiptingin er algjör draumur og lakk nokkuð gott en vélin er komin á það stig þar sem galli þessarar vélar kemur oftast í ljós og hann gerði það í þessu tilviki. Málið er að vélin gefur frá sér mikil óhljóð sem koma frá tímakeðjunum. Þetta hljóð kemur og fer. Það þarf að skipta um strekkjara og sleða til að losna við þetta. Samkvæmt B&L er ekki nauðsynlegt að gera við þetta strax en þegar maður hlustar á vélina þá vill maður helst ekki keyra bílinn. Mest myndi ég vilja gera við þetta áður en ég sel bílinn en hef enganvegin tök á því. Bíllinn selst þar með á lægra verðinu.

Verð 400.000 kr.-

S: 824-2202

Þessar myndir eru teknar í sumar. Gleymdi að taka myndir innan úr honum, þær koma seinna.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 22:41
by IceDev
Dólgakerra fyrir dólga!

Mæli með kerruni

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 22:56
by Alpina
8) 8)

PostPosted: Mon 21. Jan 2008 22:57
by Alpina
8) 8)

bmw

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 01:42
by HÞH
flottur bíll

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 07:32
by Schulii
þessi myndi dempa vel fráhvörfin af 530d!!

Eigulegur bíll!

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 11:14
by gardara
Læst drif?

Eigulegur!

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 13:44
by Þórir
Ekkert smá eigulegur bíll! V-8 nýru og allar græjur. Ef ég væri að leita mér að bíl nr.2 þá myndi ég skoða þetta betur.

Gangi þér vel með söluna.

Kv.
Þórir

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 15:10
by Joolli
gardara wrote:Læst drif?

Nei, hann er ekki með læst drif. Ég myndi ekki mæla með læstu drifi í þennan bíl. Það er ágætis kraftur í honum en engin leikgræja. Þetta er cruiser út í eitt. :)

Re: Eigulegur!

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 15:11
by Joolli
Þórir wrote:Ekkert smá eigulegur bíll! V-8 nýru og allar græjur. Ef ég væri að leita mér að bíl nr.2 þá myndi ég skoða þetta betur.

Gangi þér vel með söluna.

Kv.
Þórir


Takk! :)

PostPosted: Tue 22. Jan 2008 16:05
by gardara
Joolli wrote:
gardara wrote:Læst drif?

Nei, hann er ekki með læst drif. Ég myndi ekki mæla með læstu drifi í þennan bíl. Það er ágætis kraftur í honum en engin leikgræja. Þetta er cruiser út í eitt. :)


læst drif þarf nú ekkert endilega að þýða að þetta sé spólgræja heldur er það skemmtilegra í snjónum :)

Annars er madur nú svolítid heitur. Hvad kostar það u.þ.b. að laga þetta með keðjuna?

PostPosted: Wed 23. Jan 2008 07:46
by stjani74
viltu skipti á husaberg 650 06árg

PostPosted: Wed 30. Jan 2008 09:31
by Joolli
Bíllinn er seldur