Page 1 of 1

[Til sölu] E-36 318 1991 (seldur)

PostPosted: Wed 17. Oct 2007 20:59
by Jón Bjarni
Jæja

Þar sem ég er frekar löt manneskja og kann frekar lítið fyrir mér í bílaviðgerðum, þá ætla ég að sjá hvort eitthverjum langi ekki að taka þennan af mér

Þetta er sem sagt E-36 318 1991 módel ekinn 233xxx km
hann er óskoðaður og það þarf að laga eitt og annað sem ég veit um:
dempari farþegamegin að framan
spyrnur á sama stað og eitthvað eitt enn sem ég man ekki hvað heitir
og svo gæti verið að hann leki bensíni, en ég hef ekkert getað fundið nema lykt sem staðfestir þann grun.
og svo er miðstöðin bara on off heitt
svo gæti vel verið eitthvað fleira sem ég veit ekki um


Svo er ég búinn að skella nýju sæti í hann bílstjóramegin, en það var svona meira til gamans :lol:

Það fylgir allveg böns af dekkjum með bílnum:
4 16'' nagladekk í ágætu standi
4 stálfelgur með hinum og þessum dekkjum
4 álfelgur með hanook dekkjum ef mig minnir rétt

Myndir

Image
Image
Image

Verð: 60000 kr ekki krónu minna

Hringið í 8473217 eða sendið EP eða tjáið ykkur bara hér ef ykkur langar að vita eitthvað fleira

PostPosted: Wed 17. Oct 2007 21:53
by Angelic0-
finnst endilega eins og þessi bíll hafi alltaf verið fyrir utan hjá Hinna vini mínum....

PostPosted: Wed 17. Oct 2007 21:55
by Jón Bjarni
það má vel vera að hann hafi verið þar eitthvertíman, hann er búinn að vera hjá mér í 3 eða 4 mánuði

PostPosted: Wed 17. Oct 2007 22:18
by bakari22
illa farid með finan bill ! hvad ertu ad spá fá firir hann eins og hann er senta mér pm um verð sirka !

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 09:37
by Raggi-
verðhugmynd í pm?

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 15:08
by torri
mátt endilega kasta í mig verðhugmynd í PM!

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 17:48
by Jón Bjarni
Komið verð... fyrstu kemur fyrstur fær :)

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 18:16
by Axel Jóhann
Hehe, vona þessi verði til um mánaðamót. :lol:

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 18:18
by Jón Bjarni
ég vona nú að hann verði seldur þá :D

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 18:52
by Jón Bjarni
Hann er seldur

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 20:56
by Húni
Flappinn wrote:Hann er seldur



hver keypti eitthver hér á kraftinum

PostPosted: Thu 18. Oct 2007 21:26
by Jón Bjarni
já.. ég held allaveganna að hann sé skráður... er ekki viss með nickið

PostPosted: Sun 21. Oct 2007 23:32
by drözömzerexxs
er hann seldur?:P

PostPosted: Mon 22. Oct 2007 08:40
by Djofullinn
drözömzerexxs wrote:er hann seldur?:P
Nei þetta "seldur" í fyrirsögninni er bara grín og hann er ennþá til sölu ;)

PostPosted: Mon 22. Oct 2007 09:43
by Jón Bjarni
Djofullinn wrote:
drözömzerexxs wrote:er hann seldur?:P
Nei þetta "seldur" í fyrirsögninni er bara grín og hann er ennþá til sölu ;)


Afhverju helduru það.. ég hélt að fólk skoðaði frekar selda bíla en óselda :lol: