bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36, 323i Coupe, bsk, 1996 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=24982 |
Page 1 of 1 |
Author: | jonthor [ Mon 15. Oct 2007 16:04 ] |
Post subject: | E36, 323i Coupe, bsk, 1996 |
Jæja, ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að selja gullmolann eða ekki. Núna eru nokkrir að auglýsa eftir svona bíl svo kannski er ágætur tími til að skoða málið núna. BMW 323i Coupe Skráður mars 1996 Svartur BSK Topplúga Skoðaður '08 3 eigendur frá byrjun Ofl. Verð staðgreitt: 700.000 (engin skipti) - Áhugasamir hafið samband í ep. Nánar um bílinn Bílinn er ég búinn að eiga í 4,5 ár og er þriðji eigandinn að honum. Fyrstu 70k km var bíllinn í Þýskalandi svo flutti fyrriverandi eigandi bílinn heim og keyrði hann 52k km þegar ég svo keypti bílinn. Fljótlega eftir það tók ég bílinn með mér til Frakklands í tvö ár þar sem ég bætti um 60k km á hann og í dag er bíllinn ekinn 191k km, þar af einungis um 60k hér heima. Ég hef dekrað við hann allan tímann, ekki með uppfærslum heldur 100% viðhaldi. Allir varahlutir hafa verið OEM og viðhald verið hjá BMW í París & Reykjavík (og ég sjálfur). Hér er upptalning á því sem ég er nýlega búinn að skipta um, ég man alveg örugglega ekki allt. Ég eyddi miklu púðri í að losna við titringsvandamál í bílnum og skipti um óþarflega mikið. En það er í staðinn ekki vottur af titringi í bílnum. Viftukúpling Vatnsdæla Vatnslás Kerti Legur að framan Bremsudælur að framan Nýlegir diskar og borðar að framan & aftan Nýir OEM demparar að framan & aftan Allar fóðringar að framan Spindilkúlur Stýrisendar Nýr flex diskur Nýr rúðumótor vinstra megin Nýr rafgeymir Nýleg Michelin Aplin vetrardekk Nýr stýrishnúður Bætti við armpúða Nýjar mottur ofl. ofl. Svo að sjálfsögðu annað reglulegt viðhald eins og olíuskipti, skipt reglulega um kælivökvann og allan vökva á bremsukerfinu. Hef líka látið skipta um olíu á skiptingunni. Kannski eitt sem er gott að taka fram. Kúplingin er orginal. Það er enn nóg eftir af henni svo best sem ég veit og það segir allt sem segja þarf um hvernig hefur farið með þennan bíl að það er enn orginal kúpling í honum. Hér eru nokkrar myndir og svo linkur á „bílar meðlima“ þráðinn: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=1414 |
Author: | Kristjan [ Mon 15. Oct 2007 21:57 ] |
Post subject: | |
Mega potential í þessum bíl. Bara flottur. |
Author: | Hrannar [ Mon 15. Oct 2007 23:06 ] |
Post subject: | 323 |
Og hvað á fá sér í staðinn ![]() |
Author: | Kull [ Tue 16. Oct 2007 07:26 ] |
Post subject: | |
Ég get alveg staðfest að hugsað hefur verið mjög vel um þennan bíl enda er hann mjög þéttur og góður. Topp eintak! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |