Page 1 of 1

318 E-36 árgerð 91 til sölu

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 19:40
by asgjon
Núna er kominn tími til að smella sér á stærri bimma svo að ég ætla að selja 318-inn minn. Hann er í mjög fínu standi, nýskoðaður án athugasemda og hefur ekkert verið að bila. Hef átt hann í rúmt ár og hef enn ekki keyrt bíl sem er betri í keyrslu.

Hann er 91´árgerð, bsk og keyrður 240 þús.

Hann er eilítið byrjaður að ryðga á sílsunum og á skottinu en það er auðveldlega hægt að laga. Honum fylgir 500 w magnari og í honum eru tveir 200 watta sony hátalarar en þarf aftur á móti að tengja græjurnar almennilega, á bara eftir að gera það. Sætin gætu þurft á smá hreinsun að halda en annars lítur hann mjög vel út og í heildina frábær bíll.
Hann er að eyða um 10 lítrum á hundraðið og ég get látið 16" helvíti flottar álfelgur fylgja með og hann er á 15" felgur með micro-skornum vel förnum sumardekkjum.

Verð:Tilboð

Ég reyni svo að senda link með myndum á næstunni ef menn vilja og ef þið viljið fá hugmynd um verð þá verð ég að hugsa málið en sendið þá bara comment varðandi það.

PostPosted: Thu 30. Aug 2007 22:33
by Neini
uuu....árgerð kannski :roll:
og kannski væri gaman að vita hvað hann er keyrður, hvort hann sé bsk eða ssk og svona "smáatriði" :D

PostPosted: Fri 31. Aug 2007 16:42
by arsaellg
Hehe, já ég væri líka forvitinn að fá að vita þessi "smáatriði" ;)

PostPosted: Fri 31. Aug 2007 17:03
by Djofullinn
Neini wrote:uuu....árgerð kannski :roll:
og kannski væri gaman að vita hvað hann er keyrður, hvort hann sé bsk eða ssk og svona "smáatriði" :D
Árgerðin er í fyrirsögninni :)

Úps

PostPosted: Mon 03. Sep 2007 13:53
by asgjon
Jæja ég var nú kannski að flýta mér of mikið. En árgerðin er í fyrirsögninni, hann er 91 árgerð og er bsk og er keyrður 240 þús.

PostPosted: Sun 23. Sep 2007 12:33
by T-bone
hentu endilega inn myndum ef hann er ekki farinn:)


Veit að það er lang liðið, en það má athuga þetta