Page 1 of 3

318i E46 '01 - SELDUR

PostPosted: Sat 16. Aug 2003 14:21
by iar
Bíllinn er seldur

Jæja, þá er kominn tími til að skipta. :-)

Minn er til sölu. Sjá allar upplýsingar á http://www.pjus.is/bmw/

Stutta útgáfan: Sjálfskiptur, ekinn 41þ. km. spólvörn, CD, armpúði, 16" felgur, sumar og vetrardekk, 6 loftpúðar, reyklaus, einn eigandi (ég :-) ). Meira á síðunni hér að ofan.

---> 2.200þ. <--- (áhvílandi 950þ.)

Er jafnvel til í að skoða skipti á ódýrari (E30, E34, E36, E39).

Image

PostPosted: Sat 16. Aug 2003 15:14
by hlynurst
Núnú... hvað á að fá sér?

PostPosted: Sat 16. Aug 2003 16:05
by sh4rk
Hva á að fá sér eitthva 6 eða 8 cylindra bimma

PostPosted: Sat 16. Aug 2003 16:24
by bebecar
Jæja... ég vona að þú fáir þér ALPINA :wink:

PostPosted: Tue 19. Aug 2003 21:02
by iar
hlynurst wrote:Núnú... hvað á að fá sér?


Held það sé alveg kominn tími á fimmu...

Verður samt sárt að horfa á eftir þristinum.. E46 er svo mikil snilld, þó það sé bara 318i. :-)

Og nei bebecar, ég fæ mér ekki Alpina. ;-)

PostPosted: Tue 19. Aug 2003 23:55
by hlynurst
Fimman er klassabíll... líst vel á þig. Núna vill ég bara sjá eitthvað meira en 1,8l undir húddinu hjá þér. :wink:

PostPosted: Tue 19. Aug 2003 23:57
by iar
hlynurst wrote:Núna vill ég bara sjá eitthvað meira en 1,8l undir húddinu hjá þér. :wink:


Ég líka. 8)

PostPosted: Thu 13. Nov 2003 00:53
by iar
Bara að minna á að hann er enn til sölu. ;-)

PostPosted: Thu 13. Nov 2003 02:33
by Benzari
Eins og ég hef nokkrum sinnum sagt í sumar, ef bíllinn heitir ekki Toyota þá er erfitt að selj'ann :evil:

PostPosted: Thu 13. Nov 2003 09:22
by bebecar
Þetta er allt spurning um verð félagar.

Svo þarf maður bara að passa það sjálfur að gera góðan díl.

Ertu að spá í 523 Ingimar?

PostPosted: Thu 13. Nov 2003 13:44
by iar
bebecar wrote:Síðan er alltaf hægt að setja uppí - þó þú sért að spá í fimmu þá væri þessi nú ekki leiðinlegur fyrir þig.


Þessi er örugglega ekki leiðinlegur, það er rétt. Það vantar bara tvær hurðar á hann. ;-) (ekki þó útlitslega! Coupe er alger snilld útlitslega séð!)

En aftur varðandi minn þá er ég að komast aftur í sölugírinn þar sem framkvæmdir heimavið og annað hafa haldið mér frá öllum sölumálum.

Verðið er alveg umsemjanlegt og Kraftsafsláttur vel inní myndinni sem og einhver smá umboðslaun ef einhver meðlimur finnur kaupanda. 8)

PostPosted: Sun 07. Mar 2004 15:48
by iar
Bara aðeins að minna á vagninn, hann er semsagt enn til sölu og svo ég vitni nú í sjálfan mig:

iar wrote:Verðið er alveg umsemjanlegt og Kraftsafsláttur vel inní myndinni sem og einhver smá umboðslaun ef einhver meðlimur finnur kaupanda. 8)


:-)

PostPosted: Tue 06. Apr 2004 20:21
by iar
Uppfærði síðuna aðeins. Vagninn er enn til sölu. ;-)

PostPosted: Tue 06. Apr 2004 21:59
by JónIngi
Sæll kappi.... á ekki að uppfæra aðeins herlegheitin og skoða 523 árg. 2000 ? fleiri hö og mehr Freude am fahren ? 5 gíra, topplúga, ek.112 þús nýinnfluttur, 2 eigendur og gæðavagn í alla staði með hinum ýmsa tilheyrandi aukabúnaði sem ég nenni ekki að telja upp. sími 66 99 371

.

PostPosted: Wed 07. Apr 2004 03:40
by Wolf
Hey! Þið gætuð nú bara bíttað á sléttu, þið eruð allavega með þá á nækvæmlega sömu verðunum, ja munar 10þús kalli, hvað er það á milli vina :D Myndir þú annars skoða E38 740ia 1995 uppí ? Hummm....átta göt :D