Page 1 of 1

E30 318 Seldur

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 18:51
by Aron Andrew
Jæja, hef ákveðið að selja beaterinn.

Þetta er original 316i sem hlaut m10 ígræðslu eftir að m40 dó.

Hann er 90 eða 91 módel, man ekki alveg hvort, og ekinn 214þús km.

Ég er búinn að eyða smá í að "lagfæra" hann þarsem swappið virtist vera frekar mikið mix, og er hann kominn í sæmilegt stand.

Það sem ég er búinn að skipta um og laga er:

[list=]
Alternator
Stýrisdæla
Reimar
Vatnslás
Bracket fyrir stýrisdælu
Reimahjólið
og örugglega eitthvað fleira sem ég gleymi
[/list]

Það eina sem að pirrar mig við hann er það að það eru bölvuð læti í stýrisdælunni, en hún virkar (bíllinn er semsagt ekki þungur í stýri)

-Það er útvarp í bílnum, sem er reyndar eitthvað skrýtið þannig ég læt orginal BMW útvarp með kassettutæki fylgja með.

-Bíllinn er á 14" Bottlecaps felgum sem ég sprautaði svartar og á þeim eru nagladekk

-Það eru cover á frammsætum þarsem að þau voru frekar illa farin.

-Hanskahólfið er brotið en það er teipað fast þannig það virkar fínt, eina sem er að því er að ég get ekki opnað það :lol:

Þetta er fínn bíll til að nota sem beater, og skilaði sínu ágætlega í vetur.

Verð 85 þúsund!

Image

Image

Aron Andrew

Náið í mig í síma 8696722, EP eða á msn: aron_andrew@hotmail.com

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 18:52
by Axel Jóhann
Fastur á þessu verði? :)

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 18:54
by Aron Andrew
Það má ræða verðið eitthvað, vill samt ekki fara neitt svaka langt undir þetta.


En ég gleymdi að taka fram aðalatriðið, þessi bíll er hækkaður upp um 5 cm :lol:

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 18:56
by Axel Jóhann
Sweet, ætla sjá aðeins til. :lol:

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 19:13
by arnibjorn
Þetta er fínt verð fyrir fínan beater!

Hann er alveg í lagi svona surtaður 8) 8) :lol:

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 20:01
by Huffins
Einhver skipti?

PostPosted: Tue 27. Feb 2007 23:23
by Aron Andrew
Huffins wrote:Einhver skipti?


Nei

PostPosted: Wed 28. Feb 2007 01:26
by aronjarl
leiðnlegt hvað þessir bílar eru dýrir miðað við bara venjlega gamla druslur..

eimitt þegar mér vantar :?

ég skoðann kannski hjá þér..


kveðja...

PostPosted: Wed 28. Feb 2007 19:38
by Aron Andrew
Þessi græja verður til sýnis í kringlunni í kvöld, mæli með að allir komi og skoði 8)

PostPosted: Thu 01. Mar 2007 10:31
by Doror
aronjarl wrote:leiðnlegt hvað þessir bílar eru dýrir miðað við bara venjlega gamla druslur..

eimitt þegar mér vantar :?

ég skoðann kannski hjá þér..


kveðja...


Dýrir? Mér finnst þetta einmitt massagott verð og get ekki séð hvernig það ætti að vera lægra. 75 rækjur og kassi af bjór og bíllinn er örugglega þinn.

PostPosted: Thu 01. Mar 2007 21:35
by Aron Andrew
Þessi er seldur

PostPosted: Thu 01. Mar 2007 22:01
by ömmudriver
Aron Andrew wrote:Þessi er seldur


Til hamingju með það :)

PostPosted: Thu 01. Mar 2007 22:14
by arnibjorn
:naughty: