bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Svartur BMW 316i Compact 1999 til sölu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=1869
Page 1 of 1

Author:  oskar [ Wed 02. Jul 2003 21:24 ]
Post subject:  Svartur BMW 316i Compact 1999 til sölu

Til sölu 316i compact 1999 (E-36) - /// M sportpakki

Bíllinn er því miður seldur!!!!! SORRY!

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Bíllinn er eins og sést kannski, cosmosschwarz að utan. Innan er hann Königsblau / schwarz.

Fluttur inn nýr af B&L í mars 1999, einn eigandi frá upphafi. Hefur farið reglulega í viðhald hjá B&L eins og þjónustubók bílsins ber vitni um. Síðasta skoðun var Inspection II þann 19.11.02 við 58.000km. Ekinn 65.000km.



Tæknilegar upplýsingar:

1.6L vél 4cyl 102hö@5500rpm / 150Nm@3900rpm

5 gíra beinskiptur

M-fjöðrun

Álfelgur 16x7" á glænýjum ContiSportContact II dekkjum - 205/50 R16

4 Vetrardekk fylgja með

Rafmagn í rúðum

Sportsæti

Höfuðpúðar að aftan

M-Sportstýri og gírhnúður

4 líknarbelgir (af hverju hljómar þetta alltaf jafn fáranlega ...líknarbelgir!)

BMW Business CD útvarp með Hi-Fi hátalarakerfi (10 hátalarar).

Spólvörn (ASC+T)

Hemlalæsivörn (ABS)

Fjarstýrðar samlæsingar



Annað:

Reyklaus bíll

Næsta skoðun Apríl 2004

[color=blue][size=18]Verð: 1.290.000.-

Nánari upplýsingar og eigandi: Óskar Tryggvi Svavarsson

oskartr@vortex.is

Author:  saemi [ Wed 02. Jul 2003 21:32 ]
Post subject: 

Jæja Óskar.. á að fara að stækka við sig.. :wink: Barnabílstólar og 2ja sæta bílar eru kannski ekki eins og gin og tónik.

En já, þetta er fínn bíll, ég get alveg vottað það. Merkilegt hvað það er hægt að taka beygjur á þessum bíl, þetta er alveg límt við malbikið.

Það er ábyggilega hægt að fara hraðar í gegnum beygju á þessu heldur en á M5! Það munar sko helling um að hafa ekki nema 4cyl frammi í þessu, ótrúlega vel "balance-eraður" bíll.

Og ekki skemmir framleiðslan á eldsneyti fyrir :wink:

Hvað á að fá sér næst svo?

Sæmi

Author:  oskar [ Wed 02. Jul 2003 23:53 ]
Post subject: 

Sæll Sæmi!

Þú meinar 2ja dyra! Nei, það gengur víst ekki alveg, tveggja dyra og barnabílstóll.

Næsti bíll? Humm.... Er að spá í 520iA ca. 1997. Ekki slæmir bílar það!!!

Óskar

Author:  saemi [ Thu 03. Jul 2003 00:42 ]
Post subject: 

Æj já.. 2ja dyra átti ég víst við .. :?

520i já, ekki slæmt, ekki slæmt.

Mig langar einmitt soldið að prufa svoleiðis 540i, gæti fallið fyrir svoleiðis tæki huxa ég :roll:

Sæmi

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/