Hérna sést gatið - ekkert ógurlegt.
Brettin voru eitthvað ryðguð og ég gaf Aroni Andrew og Co fyrir Dorifto - flest allir aðrir hlutir eru til fyrir utan mögulega eitthvað smávægilegt. Fram og afturrúða eru báðar til, allir hlutir í vélarrými eru til og svo framvegis.
Taka skal fram að ég er þriðji eigandinn af þessum ágætis bíl.
Árgerðin er 1990 - man ekki í hvaða mánuði.
Vél og vélarsalur & ástand:
Vélin er ekin rúmlega 220.000km.
Ástandið tel ég vera mjög gott - alltaf smurður á réttum tíma í minni eigu auk þess lét ég ventlastilla hann 2x (frá 188.000 km, það var staðan þegar ég fékk hann frá Þýskalandi).
Í bílnum er nýlegur vatnslás & vatnsdæla - öruglega skipt um hann í ca. 210þúsundum.
Nýupptekinn altarnator og notaður startari frá ///M (Óskari). Ástand hans óvitað, en hann virkar í bílnum núna.
Tímareim í 192.000km.
Innrétting & Ástand:
Um er að ræða grátt pluss með sportsætum en ekkert bucket-in-da-back.
Komin er smá rifa í bilstjórasætið og hafa sætin greinilega ekki verið í bílnum frá upphafi miðað við ástand.
Það varð óhapp í bílnum og kom sígarettugat á bekkinn afturí.
Hurðarspjöldin eru mjög heilleg.
Miðjustokkurinn er með þessum klassíska kassettuhaldara og er hann í fínu ástandi - öll kassettuhólf virka og get ég látið Micheal Jackson kassettu fylgja með
Engar græjur eru því miður í bílnum (var búinn að "uppfæra" alla hátalara og spilara og ég seldi þetta allt sitt í hvoru lagi).
Hanskahólfið er ekki fast að neðan og er því leiðinlegt að opna og loka því.
Fallegur límmiði sem sést þegar hanskahólfið er opnað fylgir og stendur á honum: "Þegar ekið er í gegnum hættulegt svæði, skal farþegi bílsins setja höfuð í klof ökumanns". Þessi miði er vitaskuld á þýsku.
Undirvagn & ástand:
Komið er stærðarinnar gat á aftasta kút í pústi - hljóðið orðið hávært og leiðinlegt. - henti pústinu.
Bíllinn er með coilovers að hætti Gunna og stebba í GSTuning.
Það er einhver djöfullinn að drifinu eða hjólalegu að aftan og heyrist leiðinlegt hljóð - svona eins og það sé eitthvað að dragast með bílnum.
Demparar eru í la-la ástandi - enda var meiningin hjá mér að uppfæra þá með coilovers seinna meir.
Kemur smá víbríngur í stýri þegar ég bremsa - en það er spurning hvort það sé ekki orginal í E30?
Ryð/Boddí og ástand:
Bíllinn er Sterlingsilber Metallic. (Kannski svolítið camouflage)
Bíllinn er með Hartge kitti.
Felgurnar eru seldar.
Annar kastarinn virkar ekki - gæti verið farin pera eða eitthvað annað, hef ekki athugað það.
Á bílnum eru smókuð framljós.
Bílnum fylgir strut-brace að framan.
Það eru komnar nokkrar ryðbólur í bílstjórahurðina og smá ryð í skemmdina sem ég varð fyrir á bílnum (En það er búið að laga beygluna).
Núverandi ástand bílsins:
Ég ætlaði að vera ógeðslega kúl og svalur að gera og græja (einsog allir á kraftinum reyndar
Núna kemur eitthvað allir bíða eftir og það er ástæða sölu:
Ég fór ALLT of geyst í þetta project og á litla peninga og get ekki haldið aðstöðu minni lengur. Ég er hinsvegar að reyna koma bílnum fyrir einhverstaðar þar sem ég þarf ekki að borga enda get ég ekkert unnið í bílnum.
Þarf að losna við hann sem allra allra fyrst.
Verð: Tilboð
Endilega hringiði frekar í mig til þess að fá upplýsingar.
6622231
Þráðurinn um bílinn sjálfann.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=10325[/img]


