bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bmw 325ix ´87 til sölu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=167
Page 1 of 2

Author:  montoya [ Sat 12. Oct 2002 00:03 ]
Post subject:  Bmw 325ix ´87 til sölu

Bmw 325ix ´87

Vegna óviðráðanlegra ástæðna verð ég að selja greyið

DemantaSvartur
2 dyra
ekinn rúmlega 200 þús.
þarf að rétta hann fyrir aftan bílstjórahurð (lítið)
þarf að mála frambretti og Svuntu
M-tec. Spoilerakitt
bílstjórasæti frekar slappt
Útvarpslaus, Hátalaralaus 6x9 göt í hillu
Vantar eitt tannhjól í fjórhjóladrif (kostar 25þúsund kall)
Orginal Bmw útvarp (Bavaria) getur fylgt (Kasettutæki)
Skoðaður 09/03
Nýir framdemparar + Bremsuklossar framan
Virkar þrususkemmtilega muhuhuhahahaha :twisted:
er að spá í 200 þúsund kalli fyrir gripinn
Visa raðgreiðslur möguleiki
Skipti á góðri fartölvu koma til greina

Einnig til sölu:;
Alpine Skjár CVa-1003R
Playstation 2 tölva með 2 leikjum WRC og Smugglers run 2
Einnig Alpine CHA-S634 6-DISC CD/MP3 CHANGER
Fjarstýring
2 mánaða gamalt
Hægt að tengja sjónvarpsmagnara við
skjárinn kemur i stað geislaspilarans þíns
Verð úr Búð c.a. 200.000.-
fæst á 170.000.-
Nauðsynlegt i bimmann þinn

Skipti möguleg á fartölvu
Visa raðgreiðslur möguleiki

Sævar S: 8986908
www.taxi4u.is
taxi4u@taxi4u.is

Author:  flamatron [ Sun 13. Oct 2002 22:19 ]
Post subject: 

Er alveg í lagi með Bmw inn?, er kassinn í lagi, því hann er 4x4, og ég get ímindað mér að það er dýrt að skipta um hann.? :?

Author:  montoya [ Sun 13. Oct 2002 22:50 ]
Post subject: 

kassinn er þrusugóður og tengist bilunin i fjórhjóladrifinu því ekkert.

Author:  flamatron [ Sun 13. Oct 2002 23:09 ]
Post subject: 

Áttu myndir, einnig ég sendi þér póst.

Author:  montoya [ Tue 12. Nov 2002 00:09 ]
Post subject: 

hmm bifreiðin er enn til sölu

Nú er kominn leddari í hann er alveg að verða gæjalegur

Author:  Moni [ Tue 12. Nov 2002 02:21 ]
Post subject: 

Hvað viltu fá furir PS2 tölvuna og hvað viltu fá fyrir leikina???

Author:  montoya [ Tue 12. Nov 2002 07:53 ]
Post subject: 

talva selst með heildarpakkanum Þeas sjonvarpinu og því

Colin mcrae 3 er kominn i safnið yfir leiki sem fylgja

Author:  gstuning [ Tue 12. Nov 2002 15:17 ]
Post subject: 

Hvað með drifið sem er í honum núna,,

Það passar ekki með 4x4 fram drifinu,

það var nefninlega skipt um þegar 4x4 dæmið bilaði,

ég hef áhuga á drifinu sem er undir núna!!

Því að það verður náttúrulega að segja hitt aftur undir þegar er gert við 4x4 framhlutan

Author:  montoya [ Tue 12. Nov 2002 23:47 ]
Post subject: 

sama drif öxlar fjarlægðir

Author:  gstuning [ Wed 13. Nov 2002 12:28 ]
Post subject: 

Mig minnir að bubbi hafi sagt að hann hafi sett eitthvert annað drif í hann,
eitthvað sem hann fékk á partasölu??


Er hann þá kannski með hitt drifið?

Author:  montoya [ Wed 13. Nov 2002 14:30 ]
Post subject: 

Þú ert bara held ég að ruglast eins og ég hann sagðist alltraf hafa tekið framdrifið úr honum en hið rétta er að hann fjarlægði öxlana og á öðrum framöxli er farið tannhjól sem rúllar á kambnum þeas mismunadrif skv erlendum síðum er þetta einn helsti veikleiki í x bílnum. og kostar þetta hjól kr 23500 pantað úr B&L jafnvel hægt að fá ódýrara úr fálkanum. Orginal afturdrif er í bílnum og hefur ekki verið hreyft.

Author:  montoya [ Wed 20. Nov 2002 01:22 ]
Post subject: 

ef einhver vill kvikindið fæst hann a 135.596.- Nóvembertilboð

nokkrar visagreiðslur möguleiki

sævar 898-6908

Author:  hlynurst [ Wed 20. Nov 2002 16:13 ]
Post subject: 

En segjum að einhver komi með 1 kr lærra tilboð... þetta er rosalega nákvæm tala hjá þér. :lol:

Author:  montoya [ Thu 21. Nov 2002 00:22 ]
Post subject: 

nei það verður ekki samþykkt heldurðu að ég ætli að gefa bílinn :!:

:lol: :lol:

Author:  saemi [ Thu 21. Nov 2002 00:29 ]
Post subject: 

Þetta er nebblilega akkurrat talan sem konan heimtar, til að kaupa nýja sófasettið... :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/