Page 1 of 2

Til sölu: E39 540 '98 - SELDUR !

PostPosted: Fri 26. Aug 2005 23:53
by oddson
Árgerð 06.1998
Skoðaður 2006
Ekinn 153 þús. km.

Meðal búnaðar í bílnum má nefna.:

- Sjálfskipting, 5 þrepa með sportstillingu og steptronic
- Xenon ljós
- Hraðastillir (cruise control)
- Loftkæling, tölvustýrð og tvískipt
- Leðuráklæði, svart
- Hiti í sætum
- Rafmagn í sætum með minnisstillingum
- Útvarp (business)
- Rafdrifnir speglar
- Rafmagn í stýri
- Skíðapoki
- Backtronic skynjarar
- Dráttarkúla (sem hægt er að setja á)

Bíllinn er á mjög fallegum 18" felgum og nýjum sumardekkjum (ekinn c.a. 3.000 km). Með bílnum geta fylgt nýjar 16" BMW replica felgur á Michelin nagladekkjum. Bíllinn er mjög vel farinn og hann hefur fengið gott viðhald t.d. er búið að skipta um vatnskassa og vatnskassaforðabúr auk þess sem skipt var um pakkningu í sjálfskiptingunni og ABS skynjara svo eitthvað sé nefnt.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Ásett verð.: 2.190þ

Góður staðgreiðsluafsláttur í boði !!

Upplýsingar í síma.:

6901112
eða
oddur@ekran.is

PostPosted: Sat 27. Aug 2005 09:15
by Logi
Flottar felgur 8)

PostPosted: Sat 27. Aug 2005 16:21
by Valdi-
Geðveikur bíll hjá þér :drool: og virkilega töff felgur.

PostPosted: Sat 27. Aug 2005 21:13
by SUBARUWRX
shjitt fallegur bíll, mar fær íann við að skoða þessar myndir..... :?

PostPosted: Sat 27. Aug 2005 23:19
by Schulii
Ég held að ég keyri daglega framhjá þessum bíl við sundagarðana 8)

Sný mér alltaf úr hálsliðnum í hvert sinn!! Virkilega flottur bíll!!

PostPosted: Sun 28. Aug 2005 18:31
by hlynurst
Ég verð nú að bæta við að hljóðið í þessum bíl er gríðarlega flott! :twisted:

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 21:14
by oddson
Ég þakka skemmtilega gullhamra um bílinn.

Það hafa ekki komið nein tilboð enn :cry: , reyndar hafa nokkrir sent mér einkapóst og einhverjir mætt og skoðað gripinn. Ég vil endilega fá að heyra einhver tilboð. :wink:

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 21:17
by Svezel
Er hann með ///M-fjöðrun?

PostPosted: Thu 01. Sep 2005 11:18
by oddson
Já hann er með M fjöðrun sem gerir hann sportlegri og skemmtilegri performance vice.... :wink:

PostPosted: Tue 13. Sep 2005 16:28
by oddson
Ég vil vekja athygli á lækkuðu verði... :evil:

:wink:

PostPosted: Thu 15. Sep 2005 15:12
by Trausti
Sem væri þá???? :D

PostPosted: Thu 15. Sep 2005 15:36
by hlynurst
oddson wrote:Ásett verð.: 2.190þ

Góður staðgreiðsluafsláttur í boði !!


Hann er búinn að lækka fyrra verð svo að þetta er það nýja. :wink:

PostPosted: Fri 16. Sep 2005 11:32
by oddson
Já eins og Hlynur bendir réttilega á þá sérðu það ofarlega undir myndunum.

Ég breytti verðinu þar, úr 2.390þ kr. í 2.190þ kr.

PostPosted: Fri 16. Sep 2005 12:59
by Valdi-
Það er ekki mikið verð fyrir þennan bíl, þetta er engin smá kerra, virkar ótrúlega vel.

Hljóðið í honum er líka rosalegt 8)

PostPosted: Thu 24. Nov 2005 23:53
by oddson
Bíllinn er seldur.