Page 1 of 1

E30 318I Facelift til sölu **Seldur**

PostPosted: Thu 04. Aug 2005 13:00
by CosinIT
árgerð 87/88
Keyrður 180 þús
mjög lítið ryðgaður.
ein rispa á hlið eftir að það var rekist í hann fyrir utan bónus.
það eru nýjar bremsudælur að aftan og handbremsan er eins og ný, ef ekki betri :lol:
nýjar hjólalegur að aftan, nýbúin að skipta um vatnskassa, kom úr bíl sem var lítið sem ekkert keyrður.
bílstjórasætið er rifið, enn það eru leðuráklæði á öllum sætum.
ég sel hann á vetrardekkjum á stálfelgum með bmw koppum.
liturinn er Bronzbaige.
hann er skoðaður, enn með ónýta mótorpúða, hann hefur bara farið nokkra km eftir að það gerðist.
það er ekki langt síðan að það skiptum einhvað mikið í velinni. og það eru 9þúsundkm síðan að það var skipt um tímareim.
þetta er 2 dyra boddý.

langar ekkert að selja þennann bíl. sel hann bara ef ég fæ gott tilboð.
útaf slæmum fjárhag.:(
sé til hvort ég set myndir inn, eða hvort ég hætti við að selja greyið

PostPosted: Thu 04. Aug 2005 13:08
by Lindemann
Ertu með einhverja verðhugmynd?

PostPosted: Thu 04. Aug 2005 13:09
by Einarsss
myndir eru stór kostur ;) og er topplúga ?

PostPosted: Thu 04. Aug 2005 16:06
by Tommi Camaro
50kall

PostPosted: Thu 04. Aug 2005 18:06
by CosinIT
nei því miður er engin topplúga, eina sem mér hefur fundist vanta í hann :D skoða aðeins boð yfir 100þús
get alveg hent 15" álfelgum með

hmm

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 23:38
by CosinIT
ég er búinn að skipta um báðamótorpúðana og loftslönguna frá síu að sogrein. og minna enn 100km síðan að ég skipti um olíu, er að spá hvort einhver sé spenntur fyrir bílnum. hendi inn myndum ef ég verð einhverntíman kominn heim áður enn það fer að dimma

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 23:56
by oskard
Magnað að það skuli vera nýjar dælur að aftan þegar það eru skálar á 318 e30 :) er sem sagt búið að converta að aftan ?

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:06
by srr
Það eru dælur inni í skálunum til að ýta borðunum út í skálina ? :roll:

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:08
by GunniT
:lol:

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:11
by oskard
srr wrote:Það eru dælur inni í skálunum til að ýta borðunum út í skálina ? :roll:


þurfa þá ekki að vera nýja skálar þar sem að það er cylinder inni í skálunum en ekki separate bremsu caliperar ?

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:13
by srr
Ég hef ekkert til að miða við nema bremsuskálarnar á mözdunni minni.
Þar eru bremsudælurnar festar á backplate (bakplötuna) og skálin kemur yfir allt heila dótið.

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:16
by oskard
srr wrote:Ég hef ekkert til að miða við nema bremsuskálarnar á mözdunni minni.
Þar eru bremsudælurnar festar á backplate (bakplötuna) og skálin kemur yfir allt heila dótið.

jæja skiptir ekki öllu, en mig minnir að e30 sé með cylinder inní skálinni sjálfri en ekki standalone dælu :)

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 00:20
by GunniT
hann er með standalone dælu :) Eða það var allavega í 320 bílnum mínum

?

PostPosted: Wed 31. Aug 2005 02:11
by CosinIT
ha, ég þurfti ekki að skipta um skálar þegar ég skipti um dælurnar, þetta var voða einfalt einhvað.ekkert neitt svo stórt stikki einusinni. og nei það er ekki búið að converta bremsunum, hann er með skálum að aftan