bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

525i E34 1991 <<<SELDUR>>>
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=10986
Page 1 of 2

Author:  Schulii [ Mon 04. Jul 2005 01:19 ]
Post subject:  525i E34 1991 <<<SELDUR>>>

Til sölu:
BMW 525i 1991 árgerð!

SELDUR!!!
Ekinn: 171.000km.
Bíllinn er innfluttur til landsins í september 2004 af Sæma hér á spjallinu. Þá var hann ekinn um 158.000km.

Búnaður:

- Topplúga (handdrifin)
- OBC (litla tölvan)
- Rafmagn í rúðum
- 18" BMW "style 32" felgur með glænýjum 245 40 R18 WANLI dekkjum

- Bíllinn er auðvitað með ABS bremsukerfi og CHECK/CONTROL bilanatölvu sem lætur vita af flestum minniháttar bilunum.
- Bæði frambrettin og húddið var sprautað þegar hann var fluttur inn.
- 4 x 50 watta pioneer spilari fylgir bílnum
- Nýjir Bilstein demparar að framan og gormar af annarri tegund
- Nýlegir bremsudiskar að aftan
- M5 púst stútur
- Nagladekk á álfelgum fylgja

Bíllinn er allur þéttur og góður og mjög þægilegur í akstri. Tvær rispur eru á farþegahliðinni en að öðru leyti er lakkið mjög gott.

Ég er eflaust að gleyma ýmsu en þið spyrjið bara hér ef eitthvað er en auðvitað er besta leiðin til að vita meira að koma og skoða/prófa.

VERÐ: 590.000kr.

Helst engin skipti nema á bíl sem er auðseljanlegur en ég skoða helst BMW skipti.

myndir:
[img]http://patti.hot.is/skuli/ax-569/Skúli_Bmw525%20004%20(small).jpg[/img]
[img]http://patti.hot.is/skuli/ax-569/Skúli_Bmw525%20005%20(small).jpg[/img]
[img]http://patti.hot.is/skuli/ax-569/Skúli_Bmw525%20006%20(small).jpg[/img]
[img]http://patti.hot.is/skuli/ax-569/Skúli_Bmw525%20007%20(small).jpg[/img]
[img]http://patti.hot.is/skuli/ax-569/Skúli_Bmw525%20008%20(small).jpg[/img]
Betri myndir seinna

Hér er gamall sölulinkur að þessum með betri myndum:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7792

Author:  Joolli [ Mon 04. Jul 2005 19:03 ]
Post subject: 

Hvernig afsakaru verðhækkunina?

Þetta eru ekki leiðindi! Aðeins saklaus spurning.

Author:  Schulii [ Mon 04. Jul 2005 19:12 ]
Post subject: 

Verðhækkun?

Ertu að meina frá gömlu auglýsingunni þar sem Sæmi auglýsir hann á 560.000kr ??

Ef svo er þá var það verð miðað við að bílnum fylgdu aðeins 15" álfelgur með nagladekkjum. Ég keypti bílinn í febrúar og er búinn að kaupa 18" felgur og NÝ dekk á þau. Bílnum fylgja líka 15" felgurnar og dekkin sem fylgdu honum þegar ég keypti hann.
Síðan eru líka nýjir demparar og gormar að framan síðan þá.

Kostnaðurinn við þetta er um 150.000 síðan ég keypti hann.

Endilega spyrja ef eitthvað fleira er.
Kv. Skúli

Author:  A.H. [ Mon 04. Jul 2005 20:29 ]
Post subject: 

er ekki m50 vél í honum?

Author:  arnib [ Mon 04. Jul 2005 21:27 ]
Post subject: 

A.H. wrote:
er ekki m50 vél í honum?


Júbb.

M50B25.

Author:  Flake [ Tue 05. Jul 2005 01:34 ]
Post subject: 

erum við þá að tala um 192@5900 hoho og 245@4700 Nm?

Hvað eyðir svona dreki? 12-13?

Author:  Schulii [ Tue 05. Jul 2005 08:43 ]
Post subject: 

Flake wrote:
erum við þá að tala um 192@5900 hoho og 245@4700 Nm?

Hvað eyðir svona dreki? 12-13?


jújú þetta eru specin fyrir þennan bíl. Fór á honum norður bíladaga helgina og þá var hann að eyða svona 9l/100. En það var miðað við að fylgja umferðinni á þetta 90 - 100 km/klst.

Þarf bara að koma með betri myndir af bílnum. Liturinn er mjög spes og lakkið er í mjög góðu standi miðað við aldur en það sést kannski ekkert vel á þessum rigningarmyndum.

Author:  Tommi Camaro [ Wed 06. Jul 2005 00:20 ]
Post subject: 

Flake wrote:
erum við þá að tala um 192@5900 hoho og 245@4700 Nm?

Hvað eyðir svona dreki? 12-13?

hann er bsk þannig hann á ekkert að vera að drekka bensin í innanbæjarsnati , þetta er SOLID bíll alveg þegar ég prófaði hann þegar sæmi átti hann alveg hefur hann ekki vesnað síðan

Author:  Schulii [ Wed 06. Jul 2005 00:27 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
Flake wrote:
erum við þá að tala um 192@5900 hoho og 245@4700 Nm?

Hvað eyðir svona dreki? 12-13?

hann er bsk þannig hann á ekkert að vera að drekka bensin í innanbæjarsnati , þetta er SOLID bíll alveg þegar ég prófaði hann þegar sæmi átti hann alveg hefur hann ekki vesnað síðan


I would like to thank those kind words into my cars garden. :wink:

Ég hef verið alveg í skýjunum með þennan bíl. Málið er bara að ég átti E32 730i v8 bíl sem ég sakna mjög mikið þannig að ég tók bara ákvörðun um að reyna að selja þennan og fá mér svo E32 bíl aftur. Sennilega ekki skynsamlegt but hey, it´s fun !!!

Author:  Heimir S. [ Wed 06. Jul 2005 01:36 ]
Post subject: 

Mjög flottur bíll...Ef ég næ að selja opelin minn fljotlega þá verður erfitt að velja milli þessa bíls og bílsins hjá Einari fyrir norðan...báðir mjög flottir..er að leita að bmw frá 600 uppí 800....

kv.
Dóri
899-4758

Author:  íbbi_ [ Wed 06. Jul 2005 05:55 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Tommi Camaro wrote:
Flake wrote:
erum við þá að tala um 192@5900 hoho og 245@4700 Nm?

Hvað eyðir svona dreki? 12-13?

hann er bsk þannig hann á ekkert að vera að drekka bensin í innanbæjarsnati , þetta er SOLID bíll alveg þegar ég prófaði hann þegar sæmi átti hann alveg hefur hann ekki vesnað síðan


I would like to thank those kind words into my cars garden. :wink:

Ég hef verið alveg í skýjunum með þennan bíl. Málið er bara að ég átti E32 730i v8 bíl sem ég sakna mjög mikið þannig að ég tók bara ákvörðun um að reyna að selja þennan og fá mér svo E32 bíl aftur. Sennilega ekki skynsamlegt but hey, it´s fun !!!



þú ert smekkmaður 8)

Author:  Schulii [ Fri 08. Jul 2005 23:08 ]
Post subject: 

Var að sjá að pósthólfið mitt er búið að vera fullt sennilega í allan dag.
Ef einhver var að senda mér í dag þá endilega senda mér aftur.

Kveðja,
Skúli

Author:  oskard [ Fri 08. Jul 2005 23:21 ]
Post subject: 

Ef þú ert að tala um einkapósthólfið þitt hérna á bmwkrafti þá færðu
öll skilaboð sem eru send til þín... elstu skilaboðn eyðast bara
sjálfkrafa í staðin ;)

Author:  Eggert [ Fri 08. Jul 2005 23:32 ]
Post subject: 

oskard wrote:
Ef þú ert að tala um einkapósthólfið þitt hérna á bmwkrafti þá færðu
öll skilaboð sem eru send til þín... elstu skilaboðn eyðast bara
sjálfkrafa í staðin ;)


...sneðugt...

Author:  Schulii [ Sat 09. Jul 2005 00:58 ]
Post subject: 

Vill ítreka það að ég er mjög spenntur fyrir skiptum á TOPP-eintaki af E32 !!

Skoða allt

Kveðja,
Skúli

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/