SELDUR BMW 325i '88 e30 LÆST DRIF!

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

SELDUR BMW 325i '88 e30 LÆST DRIF!

Postby Bjarki » Fri 22. Oct 2004 05:12

Image

Til sölu BMW 325i
Kom á götuna 05/88
Diamantschwarz Metallic, dökkgrár að innan, sportsæti. Skoðaður án athugasemda ’05. Bíllinn er í mjög góðu ástandi, einstaklega þéttur og skemmtilegur í akstri, kvikindið hendist gjörsamlega áfram. Bíllinn er nýinnfluttur frá Þýskalandi af mér.
Er á 15” felgum, koma vel út, ágætis Avon dekk allan hringinn, á svo eitthvað af felgum sem hægt er að láta fylgja með bílnum fyrir veturinn stál eða ál 14”.
Hér er á ferðinni “swap” bíllinn er fyrrverandi 320i sem er ekinn 180þús og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar síðan 1989, mjög heillegt og óryðgað boddy, þess má til gamans geta að bíllinn er algjörlega þurr að innan þ.e. ekkert vatn undir teppum. Vélin, fjöðrunin, pústið, bremsurnar og fleiri partar eru úr ’88 325i bíl sem lét lífið í Þýskalandi nú á dögunum þ.e. vélin var tekin úr honum. Sá bíll var ekinn 188þús á vél skv. fyrri eiganda en þetta var ekki upprunaleg vél sem var í bílnum samt upprunalegur 325i bara önnur vél. En þessi vél er með nýupptekið hedd einnig skv. fyrri eiganda þ.e. ekki neinir pappírar upp á það en allt sem styður það því vélin er frísk og allt eins og það á að vera. Drifið er læst og er úr 325i bíl sem einnig lét lífið í Þýskalandi í sumar þegar vélin var tekin úr honum, sá bíll var bara ekinn 153þús km. Það er guðdómlegt að vera með læst drif! Vökvastýri er í bílnum, pústið er allt nýlegt. Búið að skipta um alla vökva þ.e. olíu, kælivökva, drifolíu, bremsuvökva og gírkassaolíu. Góðir bremsuklossar og diskar allan hringinn.
Rafgeymirinn er í húddinu, ekki kastarar og það er ekki skynjari á bremsuklossana að aftan að öðru leiti er bíllinn alveg eins og 325i
320i VIN: WBAAA510X02773993
325i VIN: WBAAD110202314067

Ég swapaði öllu dótinu og lagði mikið upp úr góðum frágangi, ekkert drullumix í gangi!
Bíllinn stendur fyrir utan hjá mér á íslenskum númerum, skoðaður og tilbúinn!


Topplúga
Sportstólar
M-tech 1, 3 arma stýri
Lækkaður 60/40, Eibach gormar aftan, Jamex framan.
K&N cone loftsía
Læst drif
6 diska magasín í skottinu
JBL GST hátalarar afturí, noname 130w peak power framhátalarar.
Svört Hella ljós
Svört nýru
Shadow Line

Eftir að hafa keyrt svona tæki þá skilur maður e30!

Ásett verð 430þús
Ekkert áhvílandi, bara bein sala.
Upplýsingar í S: 895 7866

Image
Image
Image
Image Image
Last edited by Bjarki on Fri 22. Oct 2004 17:56, edited 1 time in total.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby IceDev » Fri 22. Oct 2004 05:46

Geðsjúk sjálfrennireið!

:shock:

Ég er ekki frá því að segja að þetta sé með þeim flottari E30 hér á landi og virðist vera toppeintak
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Farinn » Fri 22. Oct 2004 05:50

Gullfallegur bíll hjá þér!

Gangi þér vel með söluna á honum!!
Farinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 228
Joined: Mon 15. Mar 2004 06:22

Postby gunnar » Fri 22. Oct 2004 07:03

úff... me wants :(
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby jens » Fri 22. Oct 2004 07:53

Glæsilegur bíll hjá þér og með flottari E30 bílum sem ég hef séð ever...
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby bebecar » Fri 22. Oct 2004 08:25

Sérlega myndarlegur - það fer nú bráðum að vera komin tími á könnun hér á kraftinum, sjá hvað eru margir með E30 núna :shock:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Guest » Fri 22. Oct 2004 08:27

hehe... sýndist fyrst eins og hann væri með 2ja metra langt loftnet! :shock:

en svo var þetta bara flaggstöngin sem hittir svona vel á... :lol:
Guest
 

Postby saemi » Fri 22. Oct 2004 09:32

Þessi bíll hlýtur að seljast STRAX, þetta er mjög flott tæki og vel til vandað í alla staði. Og bara fínt verð!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Svezel » Fri 22. Oct 2004 09:33

SVÖL græja 8)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby spandex » Fri 22. Oct 2004 10:01

Til í einhver skipti ?
spandex
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 12
Joined: Wed 12. May 2004 00:18

Postby gstuning » Fri 22. Oct 2004 10:45

Bílinn er geðveikt kúl

Mér einhvern veginn finnst eins og hann sé eitthvað betri en á að venjast :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Bjarki » Fri 22. Oct 2004 10:52

spandex wrote:Til í einhver skipti ?


Ekkert heitur fyrir því þetta er náttúrlega svo ódýr bíll, hvað ætti maður að taka upp í bíl sem kostar undir 500þús. Gamlan videolager :D
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby moog » Fri 22. Oct 2004 11:05

Ótrúlega svalur bíll hjá þér bjarki. Ég hélt samt að þú ætlaðir að halda í þennan. Ég verð a.m.k. að prófa hjá þér áður en þú selur hann ;) E30 er málið í dag!
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík

Postby oskard » Fri 22. Oct 2004 11:58

Þetta er ótrúlega góður bíll, felgurnar er mjög flottar og framljósin
eru bara kúl svona smokeuð 8)
oskard
 

Postby joiS » Fri 22. Oct 2004 17:06

langar þig ekki í 325ix turing með öllu í skiptum :twisted:
e46 320td 02
e21 335I
User avatar
joiS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 946
Joined: Wed 11. Sep 2002 10:39
Location: milf hunting

Next

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests