Til sölu... aftur! 528i 1986

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

Til sölu... aftur! 528i 1986

Postby saemi » Thu 05. Jun 2003 23:39

Sá sem keypti bílinn (og borgaði inn á hann) hætti við. Hann pakkaði saman og ég (af því að ég er svo næs gæi) sagði bara allt í lagi.

His loss is your gain!



BMW 528i 1986. Þessi bíll var upphaflega 520ia, en var breytt í Maí 2003 í 528i. Ekinn um 180.000 km.

Bíllinn er Grænsanseraður (Achatgrun) og lakkið er gott á honum. Hann hefur greinilega verið heilsprautaður einhverntíman fyrir ekki svo löngu, sennilega framtjón þar sem húddið er nýlegt. Ekkert stórt samt.

Dökkgræn innrétting sem lítur mjög vel út. Leðursæti. Hvergi rifið úr sætum og innréttingin er mjög fín.

Aksturstalva
Sport stýri (leður í toppstandi)
Dráttarkúla
Krómbogar (ef þú vilt)
Þokuljós.
Litað gler (brúnt)
Samlæsingar
Vökvastýri (að sjálfsögðu)
8x álfelgur með dekkjum
Diskabremsur að aftan


Nýr Jensen CD spilari (ef bíllinn selst bráðlega og ég verð ekki búinn að setja hann í annan bíl)

4 gíra sjálfskipting

Vélin er M30 2.8L, 184hö með L-jetronic innspýtingu. Ég tók þessa vél sjálfur upp fyrir u.þ.b. 30.000km síðan (1999). Skipti um stimpilhringi, sveifaráslegur, og stangarlegur. Heddið var tekið upp hjá Vélalandi. Allt varðandi rafkerfið var tekið í gegn (spíssarnir mældir, kaldræsibúnaðurinn yfirfarin, kveikjan yfirhöluð ofl). Allar hosur endurnýjaðar (BMW) í kæli- og vacuumbúnaði.

Það er allt endurnýjað í bremsubúnaði og fjöðrun að aftan í bílnum, nýir handbremsubarkar, handbremsuborðar, hlífar að innanverðu sem bremsuborðarnir festast á, bremsudælur uppteknar (ný gúmmí og málaðar), nýjir gúmmípúðar í upphengju afturöxuls. Bremsur að framan eru í fínu standi.

Pústið er í lagi, afturhluti mjög góður, fremsti kútur er verstur ásamt öðru rörinu úr pústgreininni. Það á eftir allavega 2 ár eða svo (kostar nýtt kannski 20.000 kall). Tvöfalt kerfi alveg afturúr.

Ég skipti um innra bretti í bílnum (sauð nýtt í) þar sem það var eiginlega eini staðurinn sem ryð var í bílnum. Undirvagninn er góður og bremsu- bensínrör í fínu lagi. Framendinn fyrir neðan húdd er nýsprautaður, ásamt báðum frambrettum og framhurð v/m. Einnig er búið að laga örfáa ryðbletti sem voru á boddíinu.

Bíllinn er nýskoðaður (29.05.03), með tveim athugasemdum. Það sem fannst að var brotið gler í þokuljósum, ásamt gúmmíi sem er rifið á einum stýrisenda. Bíllinn er samt með fulla skoðun, ekki endurskoðun.


Bíllinn er í RVK fyrir þá sem vilja skoða.

Fyrir þennan vagn ætla ég að fá 170.000.- STGR

Sæmi 699 2268 smu@islandia.is


Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image[/img]
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Benzari(o: » Fri 06. Jun 2003 00:33

oooooo, bara ef hann væri með topplúgu og öðrum lit á innréttingu :?
Benzari(o:
 

Postby bjahja » Fri 06. Jun 2003 00:41

Benzari(o: wrote:oooooo, bara ef hann væri með topplúgu og öðrum lit á innréttingu :?


Velurðu bíl eftir því?
Svo lengi sem bílinn er í góðu ástandi, þá er mér nokk sama hvort hann væri með lúgu og líka sama um innréttingu (eins og sést :lol: )
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Benzari(o: » Fri 06. Jun 2003 00:51

Litur skiptir nú einna mestu hjá mér, en já eftir að ég eignaðist topplúgu lúxus :lol: þá get ég sleppt henni.
Benzari(o:
 

Postby Benzari(o: » Fri 06. Jun 2003 00:53

EKKI!!!!!!!!!!!!


Birt með leyfi Hauks Haukssonar Ekkifrétta manns.
Benzari(o:
 

Postby BirgirS » Fri 06. Jun 2003 01:03

Úff, ég ætla að koma að skoða á morgun!
Ég hef samband!

kv. Birgir
BirgirS
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 54
Joined: Fri 16. May 2003 00:05
Location: Reykjavík

Postby saemi » Fri 06. Jun 2003 01:25

Jámmz.

Ég verð ekki við frá 14:00 á föstudag 06.06 og fram á hádegi á sunnudegi 08.06. Verð svo heldur ekki heima frá 14:00 þann 10.06 til hádegis 12.06.

En þess á milli er guðvelkomið að koma og skoða gripinn.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Guest » Fri 06. Jun 2003 09:47

Ok, þá hef ég bara samband á sunnudaginn. Kemst ekki úr vinnu fyrr en um klukkan 17 í dag.
Guest
 

Postby Guest » Fri 06. Jun 2003 09:51

Verður hann úti meðan þú ert í burtu ? Langar að renna fram hjá honum.
Ef svo er, hvar ?
Guest
 

Postby saemi » Fri 06. Jun 2003 11:12

Hann er við MS planið, Ferjuvogi.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby BirgirS » Fri 06. Jun 2003 12:00

Frábært!
(Gleymdi að logga mig inn, ég er Gesturinn í 8. og 9. innleggi!)
BirgirS
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 54
Joined: Fri 16. May 2003 00:05
Location: Reykjavík

Postby Óðinn » Fri 06. Jun 2003 12:51

Ein spurning Sæmi afhverju er hann bara með fender trim að aftan en ekki að framan, bara svona að pæla...
Svíþjóð
Monark hjól sjálfskipt 0 gíra
ísland
bmw 316 '86 harlem
Óðinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 66
Joined: Wed 25. Sep 2002 15:15
Location: I landi ABBA

Postby saemi » Fri 06. Jun 2003 13:40

Athugull...

Það er vegna þess að ég sprautaði frambrettin og vildi ekki setja krómbogana á þau aftur, þar sem ég veit ekki hvað væntanlegur kaupandi vill gera. Hvort hann vill setja þau aftur á, eða taka þessi að aftan af!

En bogarnir fylgja að sjálfsögðu með og það tekur 20 mín að setja þá á aftur.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby McHanic » Fri 06. Jun 2003 14:27

Væri hægt að borga hann á tveimur mánuðum? Þeas 85+85. Og hvað er hann að eyða á 100?
McHanic
 

Postby saemi » Fri 06. Jun 2003 14:44

Það er mögulegt.

Hann eyðir alveg slatta :)

Hann á að eyða eitthvað svona 12-14 innanbæjar.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Next

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests